Óðinn - 01.08.1910, Blaðsíða 5

Óðinn - 01.08.1910, Blaðsíða 5
ÓÐINN 37 Þorkelsson síðar rektor, sem báðir kendu mjer latínu og grísku; þeir voru báðir mjög lærðir gáfu- menn og liprir, viðfeldnir kennarar, mjög frjáls- lyndir við pilta og þjTðir í viðmóti. Sjerstaklega fanst oss sveinum mikið um skarpleik Gísla og fjölfræði þeirra beggja. 5 síðustu ár mín í skóla fjekk jeg 200 kr. námsslyrk á ári, fyrsta árið ekk- ert. Að öðru leyti kostaði skólanám mitt í lærða skólanum að öllu minn ógleymanlegi velgerðamað- ur, ágætismaðurinn og göfugmennið verslunarstjóri Guðmundur Tborgrímsen á Eyrarbakka, og gaf mjer það alt. Fyrsta sumarið, sem jeg var í skóla, var jeg bjá síra Guðmundi Bjarnasyni í Kálfhaga i Kaldaðarneshverfi; leið mjer þar ekki vel; það var meðal annars eitt sultarbælið, ónógar veiting- ar um sláttinn, og skilnaður okkar síra Guðmund- ar varð með þeim atvikum, að mjer varð á eftir ver við liann en nokkurn annan, er jeg hef kynst á lífsleið minni, því að hann rægði mig við vel- gerðamann minn, og gerði þannig það, sem í hans valdi stóð, til að reyna að spilla gæfu minni, og gat jeg aldrei fyrirgefið honum þetta að mínum dómi auðvirðilega athæfi. Öll hin sumurin var jeg hjá velgerðamanni mínum, og var við búðar- störf, oftast við afgreiðslu innan búðar. Leið mjer þar í flestum greinum ágætlega. Þar hafði jeg ekki af sulli að segja, en helst til stuttur þótti mjer svefntíminn á kauptíðinni. Man jeg það, að eitt sinn gleymdist að vekja mig og færa mjer kaffi; svaf jeg þá af til dagmála, og var eigi laust við að samþjónar mínir í búðinni brostu að mjer, er jeg kom eftir morgunverð, og spyrðu, hvort jeg mundi útsofinn. Fyrir jólin 1801 gekk jeg austur á Bakka, og liafði þar miklu betri og skemtilegri jól en jeg mundi hafa haft í Reykjavík. (Frh.) % /■ PóniDn Astríöur Björnsdóttir ljósmóðir. Fæðing barns er venjulega ekki sá viðburður, er mikla athygli vekur, og hinni ldjóðlátu starf- semi góðrar ljósmóður er sjaldan mikill gaumur gefinn. En fyrir það er ekki minna vert um þá starfsemi í mannfjelaginu en marga aðra, er meira ber á og háværari er, meiri athygli vekur. Það gelur haft meiri þýðingu fyrir framtíð manns en margan grunar, hverjum höndum er farið um höfuð barns eftir fæðinguna. Og mörg konan hef- ur mist heilsuna fyrir ónóga eða fákænlega um- hirðu við slík tækifæri. Ljósmóðurstarfið mun með rjettu mega skoðast sem eitt hið þj'ðingar- mesta mannfjelagsstarf, og því mikið undir því komið, að þær konur, er til þess veljast, sjeu þeirri stöðu vaxnar. í fjölbygðum hjeruðum er það og eitt hið mesta ónæðisstarf, og krefur meira þreks og þolgæðis en flest annað. Þórunn Á. Björnsdóttir hefur algerlega. helgað líf sitt þessu starfi, og að almenningsdómi staðið mjög vel í þeirri stöðu sinni. Fædd er hún að Vatnshorni í Skorradal 29. des. 18591)- Þar ólsl liún upp við umhirðu búfjenaðar og önnur almenn búskaparstörf; og með því að snemma . bar á nærgætni . hennar við sjúka og lægni til að að- stoða við fæðingar, átti hún oft við það á uppvaxtarárun- um, að lijálpa ám og öðrum skepn- um í þeim kring- umstæðum. 1884 lærði bún ljósmóð- , urfræði, og var . næsta ár skipuð í sveitahjeraði í Brg- fj.s. 1889 var hún á fæðingarstofnun- inni í Khöfn og var útskiifuð þaðan með besta vitnisburði. Síðan var hún í sveitahjeraði lil 1896, en þá flutti hún til Reykjavíkur fyrir hvatir Guðm. Björnssonar, er þá var þar hjeraðslæknir. 31. des. 1910 hafði hún verið ljósmóðir alls 1573 barna við 1540 fæðingar (þar af 445 fijrstu fæðingar, og sýnir það meðal annars traust það, er konur hafa borið lil hennar). Börnin voru 809 stúlkur, en 764 piltar. Var bið ljeltasta barn, er lifði, 31A pd., en þyngst 11 pd. Þ. Á. B. heldur nákvæma bók yfir allar fæðingar, og ritar í hana samviskusamlega rjett alt, er þar að lýtur. (Skömmu eftir að skýrsla með ofanritaðum 1) Foreldrar: Björn Eyvindarson, Hjartarsonar af kjarna-bænda- ættum úr A.rnessyslu, og Sólveig Björnsdóttir Pálssonar prófasts á Pingvöllum og Porunnar Björnsdóttur prófasts frá Hitárdal. For- móðir liennar var Pórunn ekkjufrú á Hamraendum, mesta bann- yrðakona landsins á sinni tið. — Astríður hjet æílvinnukona frú Pór- unnar á Pingvöllum, orðlögð Ijósmóðir og hjúkrunarkona. Pórunn Á. Björnsdóttir.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.