Óðinn - 01.09.1917, Blaðsíða 1

Óðinn - 01.09.1917, Blaðsíða 1
OÐINN 0. MLAU SKPT. 1»17. XIII. A lí Borgarstjóri Knud Kimsen. Borgarstjóri Knud Zimsen er fæddur í Hafnar- firði 17. ágúst 1875, og voru foreldrar hans Christian Zim- sen, kaupmaður þar, en síðar franskur konsúll í Reykjavík, og afgreiðslumaður Sameinaða gufu- skipafjel., og kona hans Anna Cath- inca Zimsen f. Júrg- ensen. Bæði voru þau úllend að upp- runa, en forfeður þeirra beggja höfðu þó verið riðnir við ísland langa tíð. Christian Zimsen var sonur Chr. Zimsen, er lengi var versl- unarstjóri i Reykja- vík, og konu hans Johanne, er var dótt- ir Dua Havsteen kaupmanns í Hofs- ós, bróður Jakobs föður Pjeturs aml- manns Havsteins, föður Hannesar Haf- steins bankastjóra. Eru þeir Hannes Hafstein og borgar- stjóri því skyldir að þriðja og fjórða, og geta þeir, er vilja, lesið nánar um Hav- steensættina í ævisögu Júlíusar amtm.Havsteen í And- vara 1916. En um móðurætt borgarstjóra er þetta að segja: Um 1800 var Jes Thomsen frá Norðborg á Knud Als (altaf kallaður Norðborgar Thomsen) einn af stærstu íslensku kaupmönnum, en í styrjöld Dana og Englendinga misti hann 19 skip, sem hann fjekk engar bætur fyrir. Við það gekk auður hans mjög til þurðar. Ein dætra hans átti Christensen skip- stjóra, sem var í ís- landsförum. Þau bjón áttu 10 börn; ein dóttir þeirra, Jesmine, var gift Skovrider C. Júrg- ensen, og dóttir þeirra var fyrnefnd Anna Cathinca móð- ir Knuds borgar- stjóra. Einn af bræðrum hennar var faðir frú Christoph- ine, konu Sæmund- ar prófessors Bjarn- lijeðinssonar. Bróðir Jesmine Christensen var Jes Christensen, kaupmaður í Hafn- 'arfirði, keypti versl- un þar 1867, er ált hafði Th. Thomsen sonur Norðborgar- Thomsens; Christen- sen var kvæntur dóttur Abels sýslu- manns í Vestmanna- eyjum, og ólu þau hjón, sem voru harn- laus, frú Önnu Zim- sen upp. Ein dóttir zimseu. Norðborgar Thom- sens var fyrri kona P. C. Knudtzon, áttu þau einn son, sem kvongaðist hjer á íslandi, en dó ungur. Hans sonur var Peter Christian Knudtzon, sem var factor fyrir afa sinn

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.