Reykjavík - 09.02.1907, Blaðsíða 2
30
REYKJAVIK
sá maður, sem ætlar Dönum slíka
varmensku, bæri til þeirra þungan hug.
En höf. tekur það fram, að svo sé
ekki. „Langt er frá því“, segir hann,
„að þetta sé talað af nokkuru Dana-
hatri, og því síður til að æsa það upp
hjá öðrum“.
En þau verk hafa oft verstar afleið-
ingar, er menn þykjast gera í góðum
tílgangi, og hér varðar það mestu, að
trauðla getur nokkur sannur íslend-
ingur lagt fullan trúnað á það, sem
höf. segir um Dani, svo að ekki vakni
um leið hatur til þeirra í hjarta hans.
Hvernig getur hann annað en hatað
Dani, ef hann sannfærist um, að þeir
sitji á svikráðum við ísland? En það
segir ritstj. Breiðablika afdráttarlaust,
með ofangreindum orðum.
Hann gerir fyililega ráð fyrir því,
að Danir sé blóðsugur, er með fleðu-
látum leiti lags að festa sig svo á inn
íslenzka þjóðlíkama, að þeir megi sjúga
úr honum hvern blóðdropa. En —
„fyrir danskri menning og ágætum
þjóðarkostum höfum vér einlæga lotn-
ing“, segir haníl.
Engum mun tjá að véfengja það,
að maðurinn segi þetta i hjartans ein-
lagni, og telji það málstað sínum mjög
til gildis. — Hann um það. — En hitt
má óhætt fullyrða, að sannir Islend-
ingar munu fáir vera þann veg skapi
farnir.
Nokkur vorkunn er höf. að visu, þó
hann geti ins versta til um Dani. Þeir
hafa áður reynst íslandi illa, og má
því enn ills af þeim vænta, ef þeir
hafa ekki breytzt til ins betra. En
það Iætur hann sér ekki nægja, heldur
segir hann enn fremur: „í vorum huga
er það vafasamt mjög, hvort nokkur
þjóð önnur myndi betur reynast. Hlut-
skifti íslands myndi líkt þessu verða,
hvaða þjóð sem í hlut ætti“.
Að ætla sér að telja mönuum trú
um, að t. d. Englendingar, ef þeir hefðu
ísland til yfirráða, mundu setjast að
öllum auðsuppsprettum og atvinnu-
vegum íslendinga og bola þeim út,
svo að þeir yrðu að leggja árar í bát,
það virðist oss undarlegt tiltæki, þó
það væri ekki gert af manni, sem bú-
settur er í enskri lýðlendu og hlýtur
því að hafa náin kynni af því, hvem-
ig Englendingar breyta við þau lönd,
er þeim lúta, og segir sjálfur að þeir
láti „Kanada naumast vita af öðru en
það só sjálfstætt og óháð land“.
„í hættu fyrir yfirgangi annara þjóða
myndi ísland (þegar það er sjálfstætt
orðið) eigi verða héeti fremur en nú“,
segir hann. „Verndin, er Danir láta
í té, er sama sem engin. Eitt herskip
ættu íslendingar að geta eignast" o. s. fr.
f*etta eina herskip ætlast hann auð-
sjáanlega til, að sé af skárra tæi, þvi
að hann nefnir engar aðrar landvarnir,
en gerir þó ráð fyrir að þjóðin geti
„borið hönd fyrir höfuð sér og haldið
uppi rétti sínum, án þess að þurfa að
sækja til annara“. Og það telur hann
„frumskilyrðiandlegssjálfstæðis". Þetta
er ið eina skilyrði þess, að þjóðin geti
verið sjálfstæð, sem nefnt er í allri
greininni. — Þetta eina herskip!
(Niðurl.)
Heimsendanna milii.
Bretland-írland. Um mörg ár
befir stjórnarbann Jegið á því, að menn
•-------------------------------»
ÚRSMÍBl-VINNUSTOFA.
Vönduð Úr og Hlukkur,
Bankastræti 12.
Helgi Hannesson.
mættu bera vopn í írlandi, nema með
sérstöku leyfi. Þetta kom af ótta Breta
við uppreisn og spellvirki. Irar hafa
jafnan unað þessu afarilla, ekki fyrir
það, að þeir væru svo uppreistarfúsir
eða sakir þess að þeim yrði nein vand-
ræði úr að gera spellvirki þegar þá
langaði til; það hefir þeim oft tekist;
heldur af því að þeim þótti þetta móð-
gun og tortryggni við þjóðina í heild
sinni, að þeir skyldu gerðir í þessu
að undantekning frá öðrum brezkum
þegnum.
Nú hefir brezka stjórnin numið bann
þetta úr gildi, og mælist það vel fyrir
með írum.
Símskeyti til Blaðskeytasamlagsins
f„Austri“, „Frækorn11, „Reykjavík“).
Kaupm.höfn, 8. Febr., 9,3 árd.
Rúsland. Fangelsin í Póllandi eru
svo full orðin, að til vandræða horfir,
og þvi hefir landsstjóri afráðið að rann-
saka nákvæmlega mánaðarlega, hvern-
ig á stendur hverjum fanga, sem í
Yarðhald hefir verið settur án dóms
og laga.
í Odessa eru friðsamir borgarmenn
margir myrtir um bjarta daga á stræt-
um úti eftir undirlagi stjórnarinnar,
og er sá tilgangurinn með þessu hátta-
lagi, að skjóta kjósendum af andstæð-
ingaflokki stjórnarinnar svo miklum
skelk í bringu, að þeir þori ekki að
mæta á kjörfundi, er kosið verður til
dúmunnar [19. þ. m.].
Danmörk. Skáldkonan frú Jenny
Blicher-Clausen er látin.
Þýzkaland. Nú er aðalkosningum
og endurkosningum lokið, og hafa
sósíalistar alls mist 36 þingsæti, er
aðrir flokkar hafa frá þeim náð. í
Berlín hefir manngrúi flutt keisara og
Bulow dýrlegustu fagnaðar-kveðjur. —
Ríkiskanzlarinn boðar frumvarp um
aukinn kostnað til hers og flota og
hækkun skatta.
Dagbók.
4. Febr.
Lækna-prófs síðari hluta hafa þeir
okið Halldór Stefánsson og Sigurmund-
ur Sigurðsson, báðir með 2. eink.
Háskóla-próf. Fullnaðarpróf í lœkni-
frœði tók í f. m. Sigurður Jónsson
(Eyrarbakka) með góðri 2. eink. —
Fyrri hlut prófs í lógum: Magnús Ouð-
mnndsson (Húnav.sýslu) með góðri 1.
eink. og Sveinn Bjórnsson (ritstjóra)
með 2. eink. — Málfrœði-prófs fyrri
hluta (enska aðalgrein): Sigurður Sig-
tryggsson, Reykjavík, með 1. eink.
Morðið. Morðinginn Bjerkan er
Norðmaður, en ekki Svíi; hann hafði
og aldrei unnið á dráttbrautinni hér.
Drukknir höfðu þeir báðir verið Bjerkan
og Christiansen. Bjerkan þykist ekk-
ert muna og ekkert vita hvað fram
hafi farið. Ekki sá þó á honum í
göngulagi, þá er hann gekk með lög-
regluþjónunum upp í fangahúsið. Nokk-
rir aðrir Norðmenn vóru við, er mað-
urinn var drepinn. Sátu þeir að brenni-
vínsdrykkju í herbergi i Sáluhjálpar-
hers kastalanum.
Mannalát. 26. f. m. Pétur Þor-
steinsson á Grund í Skorradal, fyrv.
hreppstjóri og sýslunefndarm., mesti
sæmdarmaður og dugnaðarmaður. —
— 22. f. m. Einar Einarsson á Ós-
koti í Mosfellssveit.
Botnvörpung, 6 ára gamalt skip,
hafa þeir nú keypt í Englandi Jes
Zimsen konsúll og fleiri menn í félagi
með honum. Hjalti skipstj. Jónsson
(einn eigandinn) er væntanlegur á skip-
inu hingað undir mánaðamótin.
Veðurathuganir
eftir Knud Zimsen.
Febr. 1907 Loftvog ; millim. j d. p Pc *o si t-i 3 *o o > C3 -*-> 'OS u *o <v >
Fd. 1. 7 757.5 2.5 sv 9 Skýjað
1 757.8 f- 1.0 sv 8 Alsk.
4 756.9 f- 1.5 sv 5 Alsk.
10 744 4 2.8 NA 6 Snjór
Júd. 2. 7 739.5 f- 1.0 V 1 Hálfsk.
1 745.6 0.6 NV 3 Skýjað
4 745.3 r- 0.8 A 3 Alsk.
10 742.2 0.2 ANA 2 Snjór
Sd. 3. 7 744.3 3.6 NV 6 Snjór
1 747.2 f- 4.0 V 5 Alsk.
4 748.8 =- 4.5 sv 6 Skýjað
10 754.9 r- 7 2 vsv 6 Hálfsk.
Md. 4. 7 759.7 6.6 VNV 3 Skýjað
1 762.7 r- 6 6 A 1 Snjór
4 76).4 8.4 A 7 Alsk.
10 754.4 r- 2.4 ANA 5 Alsk.
Þd. 5. 7 747.4 3.9 SA 5 Alsk.
1 745.8 3.0 Logn 0 Skýjað
4 745.2 1.6 ssv 4 Alsk.
10 745.1 05 ssv 6 Hálfsk.
Mvd. 6. 7 743.7 - 2.0 ASA 3 Smásk.
1 743.0 - 1.4 sv 3 Hálfsk.
4 743.2 - 2.4 sv 4 Alsk.
10 744.0 - 5.5 A 1 Hálfsk.
Fmd. 7. 7 748.5 - 3.8 ANA 1 Skýjað
1 744.9 - 3.9 Logn 0 Smásk.
4 745.8 - 3.9 Logn 0 Skýjað
10 747.4 - 8.5 Logn 0 Sk laust
Arðvænlegt fyrirtæki.
* Kaupmaður kér í bænum vill nú þegar
selja einum eða fleirum helming verzlunar
sinnar, sömuleiðis helming verzlunarhúsa.
Verzlunin heflr að allra dómi mjög gott orð á
sér, og er ef vel er á haldið i miklum uppgangi.
Um verzlunarhúsin er það að segja, að þau
eru án nokkurs efa á allra bezta stað í bæn-
um og seljast þó fleirum þúsundum króna
undir þvi verði, sem þau nú eru (eigi þarf
einn eyri í þeim að borga næsta l1/^ ár).
Vörubirgðir nú ca. 50,000 kr.; fastir viðskifta-
menn ca 400; ágæt sambönd við ensk, þýsk
og dönsk verzlunarhús og verksmiðjur. ör-
fá þúsund krónur út að borga. Ættu því
þeir sem 1000 kr. og þar yfir vilja leggja,
að send tílboð i lokuðu umslagi, mrk. „Busi-
ness“ til ritstj. þessa blaðs, og mun seljandi
þá heimsækja þann og skýra nákvæmlega
frá öllu.
Ef einhver vill taka ungan pilt, sem er
við nám, ti) að segja til börnum, snúi sér
til Jóhannesar Stcfdnssonar, Smiðjustíg 6.
Budda týnd frá Bakaríinu á Bræðraborg-
arstíg niður Brunnstíg að Nýlendugötu 13.
Skilist á Nýlendugötu 13.
Skemtun
heldur „Hring-urinn** í Good-
templarahúsinu á Fimtudaginn 14. þ.
m. Sjónleika o. fl.
Til ágóða fyrlr berklaveika.
Nánar á götuauglýsingum.
I Bakkabúð
er Margarínió, sem flestir kaupa.
Þar er kæf'a og ostur, þarer uijólk
frá Engey. Þar eru epli og appel«
sínur. — Mikið úrval af leirtaui, og
emailleraðar mjög góðar steinolíumask-
ínur.
Skótauíd nýkomið, rnikið úr-
val, hvergi eins ódýrt í bænum. Þar
eru til sokkar, nærföt, sjöl, fín svuntu-
tau og ýmsar fleyri tegundir af ódýr-
um tauum. Skoðið úrvalið og spyrjið
um verðið.
tJr og klukkur,
að eins frá vönduðum verksmiðjum.
Hvergi ódýrara eftir gæðum.
J»I HEKHIANM§§»W,
Hverfisgötu 6.
Til leigu óskast, frá 14. Maí næstkomandi
4 herbergi, eldhús og geymslurúm, helzt á
1. gólfi. Ritstjóri ávísar.
Sjóstigvéi »8
götustigvél
af vönduðustu gerð fást
Yesturgötu 24.
Gunnar H. Yigfússon.
Leikfélag Reykjavíkur.
SlerlBcí lolies
verður leikinn Nuuiiud. lO. í'ebr.
kl. § síðd.
Tekið á móti pöntunum í afgreiðslu
ísafoldar.
Ekkert eldhús
ætti að vera án okkar góða
emailleraða varnings.
Meira og betra úrval en ann-
arstaðar, sömuleiðis feiknin
öll af alls konar
íns d
íngi.
Þá má eigi gleyma okkar
stóra úrvali af
Járnvörum & byggingarefnum.
3000 króna virði
i viðbót af ágætis
M
sem án nokkurs efa eru þau
beztu á þessu landi, en seljast
eins og alt annað
stórkostlega óðýrt.
C. L. Lfaon d Co.
Laugaveg 1.
[-12
Kr. Knudsen,
Skibsmægler.
Christianssand S.,
Norge.
Við undirskrifaðar tökum að
okkur alls konar kjólasaum og
barnaföt. Þingholtsstræti 24.
lAatrm duðbrandsdóttir.
Gruðfinna Einarsdóttir.
Fundin zinkhvítudós á götunni. Vitja
má á HveríÍ8götu 6 '
Regnhlíf tapaðist á Laugardaginn í Iðn-
mannahikinu. Skilist í Báruhús.
Nordisk Handelskalender
omfattende N’orge, Danmark, Sverige
udkommer i Foraaret 1097.
Ethvert Firma (Haudel, Haandværk.
Industri etc.) bliver gratis optaget i
Kalenderen, naar Meddelelse herom snar-
est indsendes til Redaktionskontoret,
Kronprinsessegade 34, Kebenhavn K.
Onskes Firmaets Navn fremhævet med fed
Skrift, maa 2'Kr. samtidig indsendes.
Vilhelm Prior kgl. Hofboghandel.
Kobenhavn K