Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 13.02.1919, Blaðsíða 2

Verkamaðurinn - 13.02.1919, Blaðsíða 2
4 VERKAMAÐURINN. VERKAMAÐURINN kemur út á hverjum Fimtudegi 48—50 blöð til ársloka 1919. Árgangurinu kostar 4 kr. Gjalddagi 1. júlí. Útgefendur: Verkamenn á Akureyri. Ábyrgðarmaður: Halhlór Friðfónsson. Afgreiðsla fyrst um sinn hjá Finni Jónssyni, Hafnarstrœti 37. —y$x— —-*$>!— ——- Prentsmiðja Björns Jónssonar. Viðskiftaráðherra Bandaríkjanna hefir beð- ið forsetann að skipa iðnaðarráð til að koma skipulagi á iðnaðinn. Sé ráðið skipað full- trúum verkamanna og auðmanna og starfs- mönnum stjórnarinnar. Wilson verður líklega forseti alþjóðabanda- lagsins æfilangt. (Frá Fréttaritara V.manns t Rvlk.) Húsaleigumálið. Síðasti fundur Verkamannafélags Akureyrar sam- þykti að skora á bæjarstjórnina, að fá húsaleigulög Reykjavíkur gildandi fyrir Akureyrarbæ, eins og 7. gr. þeirra laga veitir heimild íi!. Og þar sem þetta mál kemur fyrir næsta bæjarsijórnarfund, þykir við- eigandi að taka húsaleigumálið hér á Akureyri dálít- ið til athugunar. Rað hefir töluvert bólað á þvt undanfarin ár, að kjör Ieigutaka þætti eigi sem best hér í bæ, og með hverju ári sém hefir Iiðið, hefir verið hert á klónni, og nú má sjá það á öllutn veðramerkjum, að fyrir oss liggur sama öngþveitið og Rvík var komin í, þegar lög þau voru samin, sem hér hafa verið nefnd að ofan. Pað er ekki einungis það, að húsaleiga hefir stigið hröðum fetum síðustu ár, heldur verð- ur aðstaða leigutaka ótryggari með hverjum degi, og er nú svo komið, að fjöldi fólks á ekki vísan samastað eftir 14. mat n. k., og þó hefir fólkinu ekki fjölgað teljandi í bænum. Það skal strax tekið fram, að framkoma húseig- anda í þessu máli er afar misjöfn, og húsaleiga því mjög mishá í bær.um. En það er einmitt vegna þeirra manna, sem leitast við að okra á húsaleigu, sem vér þurfum að fá húsaleigttlög. Og svo er ann- að atriði, sem kallar enn hærra eftir húsaleigulög- um, og það er, að sú sýki virðist vera orðin al- menn í bænum, að selja. Rað sem kom húsaleigumáli Reykvíkinga í óeftti, var einmitt þetta atriði. Pegar skrið komst á húsa- söluna í Rvík, risu allskonar brallarar upp. Allir þurftu að græða á húsabrallinu og húsin komust í óeðlilega hátt verð. Afleiðing þeirra varð tvenns- konar. Fyrst, að þeir, sem kéyptu húsin afarverði, urðu að ieigja þau dýrt, til að geta risið undir þeim, og svo hitt, að enginn vildi leigja nema til skamms tfma, þar sem setið var um fyrsta tækifæri til að selja. Niðurstaðan varð sú, að fjöldi leigutaka var staddur á götunni oft á ári. Séu engar skorður reistar við þessu hér í tíma, þarf eigi að efa að sama sagan endurtekst hér á Akureyri á næstu árum. Pað er hvort sem er talin heiðarleg atvinna, að kaupa fasteignir með það eitt fyrir augum, að selja þær aftur dýrara verði, og það talinn atvinnurógur, að vara menn við þeim, sem stunda þá atvinnu, svo fara verður sniðgötur til að gera bröllurunum óhægra um vik. Húsaleigu- lögin gera þetta óbeinlínis, því þegar hægt er að halda húsaleigunni hæfilega niðri, er þar með feng- in trygging fyrir því, að leigan verði ekki eingöngu miðuð við kaupverð húsanna, þó það sé ofan við alla sanngirni og vit. Menn geta freistast til að kaupa hús háu verði, út úr neyð, þegar engin takmörk eru fyrir leigumáta á þeim, en þeir fara að hugsa sig tvisvar um, þegar auðséð er, að ekki er hægt að láta eignina renta sig. Peir sem ekki hafa kynt sér húsaleigulög Rvíkur, munu sjálfsagt spyrja hvot þau nái tilgangi sínum og hvað sé unnið með að fá þau. Hvort lög koma að tilætluðu gagni er undir þeim komið, sem eiga að sjá um að þeim sé fylgt og hafa framkvæmd þeirra á hendi. Og til að svara hiuni spurningunni, skal hér getið helstu atriða laganna, og þau eru þessi. Skipuð skal 5 manna húsaleigunefnd, sem ákveð- ur leigu fyrir íbúðir, þar sem þess er krafist. Verða leigusali og leigutaki að hlýta úrskurði hennar í öllum greinum. Leigu má ekki segja upp, ef leigu- taki hefir staðið í skilum með borgun og eigi brot- ið af sér við leigusala á annan hátt, nema leigusali taki sjálfur ibúðina til notkunar. Verði ágreiningur milli leigusala og leigutaka út af þessum málum, eða öðrum áhrærandi leiguna, sker húsaleigunefndin úr þeim málum. íbúðarherbergi má ekki taka til annarar notkunar og eigi rífa íbúðarhús, nenia heil- brigðisnefnd banni að nota þau til íbúðar. Sá sem leigir íbúðir hærra en húsaleigunefnd hefir ákveðið eða tekur á móti hærri leigu, sætir sektum frá 10 — 2000 krónur. Síðasta alþing samþ. þá viðbót við lögin, að bæjarstjórn veitist réttur til að taka til notkunar í- búðir, sem standa auðar, einnig hús sem ekki eru notuð og breyta má í íbúðir. Petta eru aðalatriði laganna, sem almenning varða mestu. Ymsum mun þykja lögin ganga nokkuð langt á persónuréftinn, en það er með þau eins og svo mörg önnur lög, að þeim þarf ekki að beita, nema full ástæða sé til, og þá eru þau í alla staði réttlát. Og þó þau gerðu ekkert annað, en stemma stigu fyrir óeðlilegu húsabralli, eiga þau fult erindi hingað. Væri hér starfandi og framtakssöm heilbrigðisnefnd, myndi mega ganga út frá því sem vísu, að íbúðir þær, sem fátækara fólkið í bænum verður að búa í, væri betur úr garði gerður en á sér stað. Ekki munu þess svo fá dæmi, að leigutakar fái eigi fram- kvæmdar nauðsynlegustu umbætur og viðhald á íbúðunum. Svarið alt of oft það, ef kvartað er, að ef eitthvað sé út á íbúðina að setja, gæti sá hinn sami farið; það séu nógu margir, sem vilji fá leigt. Svo langt hefir þetta gengið, að þess eru dæmi, að leigutakar hafa orðið að láfa gera við íbúðirnar upp á sinn kostnað, svo lífvænt væri þeim. Petta er önnur hlið húsaleigumálsins hér í bæ, og verður máske drepið á það síðar. Bæjarstjórn Akureyrar er einu sinni búin að neila að hlutast til um að bærinn fengi húsaleigulög. Von- andi neitar hún ekki í annað sinn. Pað hefir verið haft á móti lögunum, að þau væru ekki tímabær nú. Pau eiga að koma í veg fyrir yfirvofandi vand- ræði. Séu þau ekki fengin fyr en í vandræði er kom- ið, koma þau á eftir tímanum. Bæjarstjórnarkosningarnar. Þeim lauk svo að B-Iistinn kom að 6 mönnnuru, fékk 416 atkv. C-listinn kom að 5 mönnum, fékk 326 atkv. A-listinn féll — með 28. Á B-I. hlutukosningu:ErlingurFriðjónsson(404l0/ii) Böðvar J. Bjarkan (365) Ingimar Eydal (328) Sveinn Sigurjónsson (288l0/n) Halldór Einarsson (232!'/n) og Porsteinn Þorsteinsson (230s/n). Á C-l.: Otto Tulinius (2938/u) Ragnar Ólafsson (2774/n) Sig. Ein. Hlíðar (260]/ii) Júlíus Havsteen (2275/ii) og Sig. Bjarnason (1973/11)- Alls voru greidd 798 atkvæði og er það miklu fleira en áður hefir átt sér stað, enda kosningin sótt af miklu kappi á báðar hliðar. 28 seðlar dæmdust ógildir. B-Iistinn hafði 90 atkv. fram yfir C-l. og verður það að teljast álitlegur meiri hluti, þó hann hefði vel getað verið stærri, ef ýmsir hefðu eigi setið heima si m áttu kost á að sækja kjörfund. »ísl.« 31. f. m. er að leitast við að gera kosn- ingu B-lista manna toríryggilega, af því að sjöundi maður hafði verið færður upp á nokkrum seðlum. Hefði blaðinu verið sæmilegast, fyrst það fór út í þessa sálma, að geta þess um leið, hvort það mundu Irtfa verið »samtök«, að sjötti maðurinn á C-listan- um var víða færður upp fyrir fimta mann, og af hvaða ástæðum. Otto Tulinius var svo víða strikað- ur út. Einnig virðist blaðið furða sig á kosningaúrslit- unum. »Blindur er hver í sjálfs sins sök.« Mörgum mun þó Ijóst, að hin glapsamlega framkoma blaðs- ins fyrir kosningarnar hafi átt drjúgan þátt í því hvernig leikar fóru. Hvar er gróðinn? Eins og sjá má að öðrum stað hér í blaðinu, er leigan á slægjulöndunum í Hólmunum komin upp úr öllu viti. Pað er gott og blessað fyrir bæjarsjóð- inn að fá háa leigu eftir slægjulöndin, því verður ekki neilað, en sjálfsagt hlýtur þetta að hafa alvar- legar afleiðingar fyrir bæjarbúa. Það liggur í augum uppi, að þeir sem neyðast til að leigja slægjurnar slíku verði, sem hér er um að ræða, verða að vinna það upp á öðrum sviðum. Ökumaðurinn, sem verður að ala hestana sína á hálfu dýrara fóðri en áður hefir verið, verður að hækka aksturslaunin að sama skapi, og þeir sem nota heyið handa kúnum, sem þeir selja bæjarbúum mjólkina úr, verða að færa mjólkurverðið upp úr öllu veldi, eigi rrjólkursalan að borga sig. Pað má og gjöra ráð fyrir, að þeir sem selja hey til bæjar- iiis, renni hornauga til þessa afriðis og hækki sölu- verð heysins. Og er þá svo óeðlilegt, þó spurt sé, hver gróði sé að því, að hleypa Hólmaleigunni upp úr öllu veldi. Alvarlegasta atriðið í þessu máli verður sjálfsagt mjólkurvandræðin, sem hljóta að verða bein afleið- ing þessa. Mörgum mun virðast mjólkurverðið þeg- ar hafa náð hámarki, og ekki þarf að efa það, að stigi mjólkin úr þessu, treystist efnalítið fófk ekki tíl að kaupa þessa nauðsynlegustu fæðutegund, sem við megum síst vera án. Og þó að ýmsir muni máske segja, að ástæðu- laust sé fyrir sveitabóndann að hækka mjólkina, þó að hún hækki hjá framleiðendum hér í bænum, mun verða sú reyndm á, að þeir, bændurnir, muni »Ialla eftir á«, og okkur tjái ekki að mögla. Hér er athugunarefni fyrir heilbrigðisnefnd og bæjarstjórn. Verði ekki komið í veg fyrir hækkun á mjólkurverði, mun tíminn sýna og sanna, að börn- um fátæklinganna hérna er bænum er réttur bikar bölvunarinnar í stað mjólkurpelans. Og skyldu tekjur bæjarsjóðs af uppskrúfaðri slægju- landaleigu, þá ekki rírna til muna, og margur freist- ast til að spyrja: Hver og hvar er gróðinn? Mjólkurbarn. Samtíningur. Verkamannafélag Akureyrar hélt aðalfund 26. f. m. Eignir félagsins höfðu vaxið um rúmar 400 kr. s. 1. ár. 10 menn höfðu noiið styrks úr sjúkra- sjóði á árinu. Atvinnufyrirtæki hafði félagið haft með höndum upp á 20 þús. krónur. Stjórn endurkosin í einu hljóði. Félagið telur nú yfir 300 meðlimi. Mælt er að blaðið »Lsafold« sé selt stórgróða- mönnum í Reykjavík. Sjálfsagt hefir engan dreymt fyrir því í tíð Björns heitins Jónssonar, að það blað myndi bíða þeirra hörmulegu forlaga. »Fram« á Siglufirði skiftir um ritstjórn 1. maí n. k. Friðb. Níelsson og Hannes Jónasson hætta, en við tekur Sophus Blöndal kaupmaður.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.