Verkamaðurinn - 09.01.1923, Blaðsíða 2
6
VERKAMAÐURINN
2. fbl.
Kosningarnar.
Þær fóru fram á Fimtudaginn, eins
og til stóð. Kosningu var lokið kl. 7
um kveldið og upptalningu kl. 11.
Kosningin féll svo, að A-Iistinn —
til 6 ára — hlaut 195 atkv. B-listinn
167 atkv. C-listinn 68 atkv. D-Iistinn
298 atkv. E-listinn 72 atkv.
Kosningu hlutu því:
Steingrímur Jónsson 293 J/4 atkv.
Óskar Sigurgeirsson 223 —
Erlingur Friðjónsson 193 lli —
Sveinn Sigurjónsson 166 —
A-listinn — til 4 ára — hlaut 215
atkv. B-listinn 572 atkv.
Kosningu hlutu þvf:
Jakob Karlsson 569V2 atkv.
Kristján Arnason 287 —
Kaupmannaliðið og stillendur Sveins
Sigurjónssonar höfðu bandalag við
kosningarnar. Báðir smöluðu eins og
þeir væru að flýja undan dauðanum.
6 fólkssleðar gengu látlaust frá þvf
kosningin hófst og fluttu styðjendur
beggja listanna jöfnum höndum. »Fylli-
rfið« óx þvf meira sem á daginn leið
og öll bar kosningin vott um ofur-
kapp og bæxlagang uppvöðslumanna.
Vegna rúmleysis f blaðinu f dag,
verða kosningarnar ekki ræddar al-
ment fyr en f næsta blaði. Fjöldi at-
kvæða voru ónýt og kosningin ólög-
leg að margra dómi.
Kosningavísur.
Dálftið hefir komið á fiot áf kosn-
ingavísum þessa dagana. Hér fara á
eftir nokkrar, sem blaðið hefir náð f,
og vill Vm. gjarna fá méira af þvf
tægi til birtingar, ef vfsurnar eru
smellnar og ekki um of nærgöngular
eða klúrar.
Út á hálan óðarstig
Ýti’ eg — sár að vonum. —
Þvf enginn vildi eiga mig
Á undan kosningunum.
A. 1. Erfitt gékk þeim A-liðum,
— Oft er smátt að meini. —
Trausti gleymdi »tyglinum«*
Og tók f skott á Sveini.
A. 2. Steinþór ekki kjósa kann
Kvenþjóð létt f spori.
Engin girnist mcntamann
Merktan sfldarstori.*
B. 1. Sveini íylgja frfliðar,
Sem frjálsum hæfir kappa.
Sumir flytja »fréttirnar,«
Á fundum aðrir stappa.
B. 2. Sá flaut inn á samvinnu
Sfst með löku hiski,
»Einokunar«-olfu
Og »samkepnis« fiski.
C. Það var ei von að þessar tvær
Þægju hylli af konum,
Þvf allir karlmenn eltu þær
Á undan kosningunum.
Simfréttir.
Rvík 3. Jan.
Smdvegis uppþot voru víðs-
vegar i Englandi jyrir jólin, af
hdlfu atvinnulausra manna.
Ekkert rekur í skaðabóta-
máii Þjóðverja. Frakkar ger-
ast œ kröfuharðari.
Grikkir hamast gegn Tyrkj-
um. Viðsjar með Bretum og
Tyrkjum.
Norskir atvinnurekendur hafa
sagt upp samningi við 50 þús-
und verkamenn.
Algerð vinnuteppa í prent-
smiðjunum hér. Prentsmiðju-
eigendur krefjastalls 25°lo kaup-
lœkkunar hjd prenturum. Kaup
er hið sama og dður hjá verka-
mönnum og sjómönnum, en
engir samningar hafa tekist.
Claessen hefir útvegað Islands-
banka 4. millj. króna lán i
Danmörku, Englandi og Ame-
riku.
Rvík í gcer.
Samsœri hefir komið upp
gegn Mussoline.
Enn þjarkað um skaðabœtur
Þjóðverja. Frakkar og Bretar
ósammdia.
Dagblöðin hér koma út vél-
rituð. Prentvinnuteppa enn.
D. Um D-listans afrek mi
Eg það færa f letur.
Hann hefir biðilsbuxum á
Brölt f allan vetur.
Öllum virtist þörf á þvf
— Það fór eftir vonum. —
Að setja mótor aftan f
Efsta mann á honum.
E Þorsteinn enga frægðarför
Fór að þessu sinni.
En nú skal lekan kjalarsknör
Kljúfa á þagnargrynni.
Z.
Bæjarstjórnarkosning
fór fram á Siglufirði á Föstudaginn
var. Á A lista, kaupmannalista, voru
séra Bjarni Þorsteinsson, Sophus
Blöndal kaupmaður og Guðm. Skarp
héðinsson skólastjóri. Á B-lista, verka-
manna lista, voru Fióvent Jóhannesson
verkstjóri, Helgi Hafliðason kaupmaður
og Kjartan Jónsson smiður. A-listinn,
fékk ioo atkvæði og kom að séra
Bjarna.
B íistinn fékk 123 atkvæði og kom
að Flóvent og Helga. Klofningur f
hafnarbryggjumálinu varð þess valdandi,
að verkamenn tóku Helga á lista
sinn. 20 atkvæði voru ógild. Um 400
á kjörskrá.
* Sambr. að það var helst fundið að
Steinþóri, að hann hafði gengið að sildar-
vinnu s. I. sumar.
** Sambr. >~nema Trausti með tygilinn.c
Fréttar. Vm.
Prenttmiðja Odds Björnssonar
Frá ísafirði.
Þar voru kosnir 3. bæjarfulltrúar á
Laugardaginn var. Fram *komu tveir
listar. A-Iisti frá kaupmönnum og B-
listi frá verkamönnum. A-listinn hlaut
327 atkv. og kom að Birni Magnús-
syni símastjóra. B-Iistinn fékk 411 atkv.
og kom að Finni Jónssyni póstmeistara
og Haraldi Guðmundssyni. 37 miðar
urðu ógildir. Á kjörskrá voru 914.
»Fram« dauðurf
Blaðinu er sagt af Siglufirði, að
>Fram< muni vera úr sögunni. Ekkert
heyrist frá útgefendunum sfðan fyrir
áramót og altalað að blaðið muni úr
sögunni.
>Villemoes<
kom á Sunnudaginn með olfu til
Landsverslunar. Fór f dag út að Svai-
barðseyri og tekur þar sfid tilútflutnings.
KvöldsHemtanir ,
tvær voru haldnar um s. 1. helgi,
sú fyrri að tilhlutun Hjúkrunarfél. Hlff
og var þar til skemtunar erindi, flutt
af Þorst. M. Jónssyni alþingism. smá-
leikur »Ötl fimm< með skrautsýningu,
Áraskiftin, skrautsýning, og dans á
eftir. Sfðari skemtunina hélt U. M. F.
A. Voru þar leiknir tveir smáleikir,
»Nei-ið« og »Upp til selja« einnig
skrautsýning, Áraskiftin. Báðar voru
skemtanirnar ánægjulegar og vel sóttar.
Um næstu helgi halda nemendur
Gagnfræðaskólans kvöldskemtun, fjöl-
breytta, og verður ágóðanum varið til
kaupa á munum til heimavistarinnar f
skólanum.
Dánardægur.
Valgerður Sigurðardóttir, kona Ólafs
Þorsteinssonar ökumanns, andaðist að
heimili sfnu hér á Oddeyri á Laugar-
daginn, var eftir margra ára þunga
vanheilsu, gæða og myndarkona. Sama
dag andaðist, úr lungnabólgu, frú
Ragnhildur Metúsalemsdóttir, ekbja
eftir séra Stefán Pétursson, sfðast
prest að Hjaltastað, að heimili tengda-
sonar sfns, Davfðs Sigurðssonar timb-
urmeistara, 78 ára að aldri. Sérstök
myndar- og atgerviskona.
I -0. G. T.
Stúkurnar halda sameiginlegan fund
annað kvöld kl. 8 { stóra sal Sam
komuhússins. Ræðuhöld og skemtanir
fara fram f tilefni af afmæli Reglunnar.
Stúkufélagar eru alvarlega ámintir um
að mæta kl. 8 stundvíslega.
Lárus Rist
kennari kom úr Amerfkuför, með
Villemoes. Lætur hann hið besta yfir
för sintíi.
»lslendingur<
stækkaði um áramótin — mest
spássfurnar.
Eldsvoði.
Kembingarvélarnar á Halldórsstöðum
f L’xárdal brunnu á Þriðjudaginn var.
Hvassviðri var á og varð engu bjarg-
að. Vélarnar voru vátrygðar lágt og
bfður því eigandinn, Haligrfmur Þor-
bergsson fjárræktarfræðingur, tilfinn-
anlegt tjón. Og fyrir sýsluna er það
hinn mesti bagi að missa vélarnar.
T ó 1 g
á kr. 2,40 kg í
Kaupfélagi Verkamanna.
Aðalfundur
U. M. F. A.
verður haldinn Sunnudaginn 21.
þ. m. kl. 3 síðd. í samkomuhúsi
bæjarins. — Dagskrá skv. félagslög-
unum. —
EST undirritaður tek að mér að
binda bækur og hefta, í vinnu-
stofu Sigurðar bóksala.
Akureyri 8. Jan. 1923.
Friðrik Hermannsson
bókbindari.
/tðalfundur
verður haidinn í „ Hjúkrunarfélaginu
Hllf", Mánudaginn 15. Jan. 1923, f
Samkomuhúsi bæjarins og hefst kl.
5. e. h.
Stjórnin.
Mjólk, á 40 aura lfterinn, fæst
daglega hjá
Jðni Helgasyni
á Eyralandi.
Silfur-blýant
fundinn á götunni. Oeymdur hjá
Gisla R Magnússyni.
| sambandi við hina almennu
* bænaviku, verða samkomur f
kvöld og alla vikuna kl. 8V4 í
Hjálpræðishernum
Æskulýðsstarfið á Laxamýri byrj-
ar f þessari viku. Nýir þátttakendur
i tungumálum og handavinnu geta
komist að.
/ólapotíar
Hjálprœðishersins.
Peningar f Jólapottana kr. 21300
Vörur _ 145 00
kr. 358 00
Jólatré fyrir 200 börn. Jólasamsæti
fyrir 100 Gamalmenni. Jólatré f Sand-
gerðisbót fyrir 70 börn og 40 full-
orðna. Hátfð fyrir sjómenn á Ls xa-
mýri.
Samtals kr. 34000
Sjóðfé — 15 OO
Samtals kr. 35500
J. Harylk.
H. Halldðrsson.
Athugið!
Gjaldkeri Verkamannsélagsins biður
blaðtð að flytja félágsmönnum þeim—
er enn skulda ársgjöld sfn til fé-
lagsins — áskorun um að greiða
gjöld sfn nú þegar, þar sem reikn-
ingsskil standa fyrir dyrum.