Verkamaðurinn - 11.04.1936, Blaðsíða 3
-
kvöldið. Hin lögin voru kunn
frá fyrra samsöng kórsins.
Kvennakór Einingar er all fjöl-
mennur kór — eða fjöl-kVSBlDf —
og mun vera nýr á opinberu
söngsviði, enda bar eðlilega tals-
vert á því fyrra kvöldið, og þá
sérstáklega bjá einsöngvurunum.
Hefir Kvennakór þessi mjög á-
þekka kosti og eiginleika og
Karlakórinn, enda mun tilvera
kórsins og samsetningur af lik-
um rótum runninn. Mun tak-
mark beggja kóranna miklu frem-
ur vera almenn söngmentun en
söngafrek. En eðlilega fer hvor-
tveggja þetta saman að vissu
marki. — Raddmark kórsins er
að vísu eigi mjög mikið, en
hreint og hljómþýtt, og gætti þar
mjög sömu markvissu þjálfarans
og hjá Karlakórnum. Er hjá
báðum kórum mýkt raddarinn-
ar og sönglsegni ætlað að bseta
upp það, sem skorta kann á
raddmagn, og er því sneitt alger-
lega hjá þeim skrækjum kvenna
og öskri karla, sem var algeng
isl. tiska i söng eigi alls fyrir
löngú.
1 »Álfakongurinn« eftir Reichart
sungu þrjár konur einsöng, Elisa-
bet Geirmundsdóttir, Guðrún
Jónsdóttir og Sigurlaug Jóhanns-
dóttir. Eru hlutverkin all misjöfn
í þessu lagi og mótaði það eðli-
lega nokkuð frammistöðu ein-
söngvaranna. I Möhrings »Sof í
ró« söng Sigurlaug einsöng, og
Guðrún í Kerulfs »Nikurinn«.
Fóru báðar laglega með hlutverk
sitt og naut rödd þeirra sín mun
betur heldur en í »Álfakongur-
inn«. Þessar þrjár sömu sungu
lika einsöng i faliegu lagi eftir
söngstjórann. Af einstökum lög-
um þótti mér kvennakórinn syngja
SÉrstakleoa vel »Fjólan«, eftir Magn-
ús Einarsson og »Nykurinn«.
Blandaði kórinn að lokum var
atar fjölmennur og »líklegur til
stórræða«, er fram í sækir. Þar
v“kti mesta eftirtekt »Hallgrimur
^éturssona eftir söngstjórann, sér-
kennilega frumlegt lag og ágæt-
lega sungið, »Alpahornið« eftir
Proch er fallegt og tilþrifamikið
VERKAMAÐURINN
lag í frumlegri útsetningu eftir
söngstjórann. — Er þessi sam-
steypa tveggja fjölmennra kóra
mjög athyglisverð. Var hér vel
af stað farið og má óefað búast
við all miklu góðu úr þeirri átt.
Eins og þegar er drepið á, voru
á söngskrá þrjú frumsamin lög
eftir söngstjórann og fimm önnur,
er hann hafði raddsett. Gætir hví-
vetna hjá hr. Áskeli Snorrasyni—
að mínum dómi — bæði i eigin
tónsmíðum og útsetningu sér-
kennilegs frumleika, sem er frem-
ur sjaldgæfur hér hjá oss. En
því miður skortir mig sérþekk-
ingu til að skilgreina það nánara.
Lög hans bera með sér djúpan
skilning á efni og meðferð ljóðs-
ins, og verður því fult og heilt
samræmi lags og ljóðs, en það
er þvi miður ekki algengt i isl.
kórlögum, þar sem lag og ljóð
kemur oft rétt úr hvorri áttinni
og fer hvort sína leið.
Samsöngur þessi var að öllu
athuguðu alls eigi smávægilegur
atburður í tónlista- og söngmenn*
ingarlífi Akureyrar. Eiga allir að-
standendur, og þá söngstjórinn
fyrst og fremst, miklár þakkir
skilið.
Helgi Valtýsson.
Austurrískur verkamaSur dæmdur i
6 ára fangelsi.
Wien, 20. 3. 36 (NP).
Hinn alræmdi dómstóll í Leoben
hefir dæmt bakarasveininn Zechner
í 6 ára fangelsi fyrir að útbreiða
kommúnistisk fiugblöð.
Vaxandi fylgi samfylkingarinar i
AmeríkU.
New York, 20. 3. ’36 (NP.).
Frambjóðandi samfylkingarmanna
við borgarstjórakosningarnar í
Seattle fékk 34.000 atkvæði. Fram-
bjóðandi borgaraflokkanna fékk að-
eins 11000 atkvæða meirihluta.
Samfylkingarframbjóðandinn var
studdur af Kommúnistafrokknum og
verklýðsfélögununi' en sósíalista-
flokkurinn barðist gegn honum.
3
Frá Siómannafélagi
Norðurlands.
Fundur var haldinn í Sjómanna-
félagi Norðurlands sl. slmnudag. A
fundinum var kosin kauptaxtanefnd
til að gera tillögur um síldveiða-
taxtann í sumar, rætt um söluskil-
yrði á ísfiski, fyrir bátasjómenn hér
á komandi vertíð, og í því máli
samþykkt eftirfarandi tillaga:
»Fundurinn felur stjórn félagsins
að vinna að þvf að bæjarstjórn Ak-
ureyrar sæki um nægilegt útflutn-
ingsleyfi á ísfiski, fyrir bátasjómenn
hér á koinandi vertíð ennfremur að
skora fastlega á bæjarstjórnina að
sjá til að e. s. »Þormóður« verði
tekinn hingað norður og starfræktur
héðan þegar á næsta sumric.
Þá var rætt um vinnulöggjöfina
og samþykt eftirfarandi tillaga:
»Fundur, haldinn í Sjómannafé-
lagi Norðurlands, sunnudaginn 5.
april 1936, mótmælir eindregið
frumvarpi þeirra íhaldsþingmann-
anna Thor Thors og Garðars Þor-
steinssonar, um vinnudeilur, sem
fram ef komið á Alþingi. Skorar
furtdurinn á alla alþýðu landsins, og
jafnframt á alla frjálslynda lýðræð-
issinnaða þingmenn, að beita sér
gegri því, að frumvarpið verði að
Iögum, eða rtokkrar aðrar lýðræðis-
skerðingar, sem yfirstéttin hefir '
fullan hug á að innleiða.
Éitraöur matur i Þýskalandi.
Berlín, 20. 3. ’36 (NP.).
»Junge Garde« skýrir frá því, að
aílir verkamennirnir í þegnskyidu-
vinnunni í Hameln hafi fengið eitr-
un vegna þess að þeir borðuðu
skemdan mat. Um kvöldið hafði
verið borið á borð fyrir þá kartöflu-
salat sem í var eirgræna, og daginn
eftir urðu allir verkamennirnir veik-
ir á leiðinni til vinnunnar. Þeir neit-
uðu að ganga og kröfðust þess að
þeir yrðu keyrðir f bíl aftur heim,
af því að þeir gætu ekki gengið.
Sama dag varð að flytja þá á næsta
sjúkrahús, og nokkur hluti þeirra
liggur með alvarleg eitureinkenni.
Stjórn vinnustöðvarinnar hefir ekki
enn verið refsað.