Eimreiðin - 01.09.1900, Blaðsíða 1
i6i
Móbergið á íslandi.
í síðasta hefti Eimreiðarinnar hefir herra cand. mag. Helgi
Pétursson skrifað grein, sem hann kallar »Nýjungar í jarðfræði ís-
lands«, og er aðalefni ritgjörðarinnar hugleiðingar um myndun mó-
bergsins á íslandi. Með því að grein þessi er stutt og höf. hefir
farið nokkuð fljótt yfir sögu, leyfi ég mér að rita nokkur orð til
skýringar. Pó get ég ekki, í alþýðlegu tímariti, skrifað eins ýtar-
lega um þetta mál, eins og þarf, ef það á að skýrast fullkomlega
frá öllum hliðum.
Eins og flestum mun kunnugt, nær móberg og þussaberg yfir
afarmikið svæði á íslandi og tekur yfir alt miðbik landsins, að sunnan
frá Faxaflóa austur fyrir Öræfasveit, að norðan frá Fnjóskadal
austur í Pistilfjörð. Móbergið myndar þannig belti yfir landið
þvert; það er mjög mismunandi að gerð og afarþykt, nokkur þús-
und fet sumstaðar. Allir aðrir hlutar landsins eru aðallega mynd-
aðir úr blágrýti (basalti) í þykkum hamrabeltum, sem bezt sjást í
dalafjöllum og við sjóinn. Pessi blágrýtislög hallast víðast inn á
við, inn undir móbergsbeltið. í blágrýtis-héruðunum eru víða smá-.
blettir af móbergi, og sumstaðar eru allþykk móbergs- og þussa-
bergslög milli blágrýtislaga, og það sumstaðar djúpt í fjöllum, svo
mörg hundruð feta blágrýtisberg liggur ofan á móberginu. Pó
eru þessi móbergs-millilög tiltölulega lítil í samanburði við mó-
bergið um miðbik landsins; þar eru aftur blágrýtislög innan um,
en þeirra gætir minna, af því móbergið er þar í meirihluta. Af
þessu sést, að móbergið er myndað á ýmsum tímum, þó mið-
beltið sé auðsjáanlega yngra en hinar stóru blágrýtismyndanir.
l’etta er líka eðlilegt. ísland er því nær alt myndað af eldgosum;
blágrýtið er gamalt hraun, móbergið eldfjallaaska og gjall og sér-
hvert eldgos framleiðir hvorttveggja; bráðið hraungrjót rennur úr
gígunum og mulið grjót kastast í loft upp, dettur niður og myndar
móbergslög. Við öll eldfjöll um víða veröld eru hraun og mó-
bergslög á víxl, en það er mismunandi og komið undir atvikum
af hverju er meira á hverjum stað. I Utah og víðar sunnan og
vestan til í Bandaríkjum eru 2000 feta þykkar móbergsmyndanir,
er ná yfir afarstórt svæði, og móbergs- og hraunlög sjást um alla
jörðina, þar sem eldgos hafa orðið, sum ný, sum frá ýmsum tíma-
bilum jarðsögunnar.
u