Alþýðublaðið - 10.09.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 10.09.1964, Blaðsíða 1
✓ 44. árg. — Fimmtudagur 10. september 1964 — 205. tbl. Heyfengur aldrei meiri Reykjavík, 9. sept. — HP. ÞRÁTT fyrir slæma óþurrka á Suður- óg Vesturlandi í júlímán- uði í sumar, má segja, að heyskap þar hafi víðast hvar lokið fyrir liálfum mánuði. Mun nú óhætt að fullyrða, að heyfengur lands- manna hafi aldrei orðið meiri á einu sumri en nú. Á Norður- og Austurlandi eru hey bœði mikil og góð, en sunnanlands og vestan verður eflaust nauðsynlegt að gefa talsvert af kjarnfóðri með í vetur vegna slæmrar nýtingar lieyjanna, þó að sjálfur heyfeng- urinn sé orðinn ágætur þar. Blaðið aflaði sér þessara upp- lýsinga í dag hjá Ólafi Stefáns- syni, sem nú gegnir störfum bún- aðarmálastjóra. Sagði hann alveg ástæðulaust að óttast fóðurskort í vetur, því að heyfengurtnn hefði aldrei verið meiri en nú. Fyrir hálfum mánuði mátti heyskap heita lokið hér á Suðurlandi, og var þá langt komið að ganga frá heyjum, sem víða standa nú úti, þar eð heyfengurinn er orðinn svo mikill, að hlöðupláss er ekki til fyrir hann allan. Óþurrkakaflinn í júlí, sem gætti á öllu Suður- og Vesturlandi, a. m. k. vestur í Snæfellssýslu og Dali, seinkaði slætti, en grasvöxturinn varð að sama skapi meiri og þar með hey- fengurinn, þó að næringargildi heyjanna á þessu svæði sé svo lít- ið, að talsvert verði að gefa með af fóðurbæti þar i vetur, einkum þar sem kúabúin eru stærst. — Vegna þess, hve seint var slegið. víða á þessu svæði og háarspretta þvf léleg, hefur nijög l'ítið ve'rið slegið upp, pg þar sem fyrst var slegið, hafa túnin verið notuð til Iðnþing hafið Reykjavík, 9. sept. — HP. 26. I9NÞING íslendinga hófst á Akureyri í dagr, en það er haldið þar að þessu sinni í tilefni af 60 ára afmæli Iðnaðarmannafélags Akureyrar. Forseti Landssam- bands iðnaðarmanna, Guðmundur Halldórsson, húsasmíðameistari, setti þingið kl. 2 síðdegis og bauð fulltrúa og gesti velkomna og minntist látinna forvígismanna. Bæjarstjórinn á Akureyri, Magn- ús E. Guðjónsson, flutti ávarp og bauð þingfulltrúa velkomna til Akureyrar, en ljóðakveðja barst frá Jökli Péturssyni, málarameist- ara. í dag flutti forseti Landssam- bands iðnaðarmanna, Guðmundur Halldórsson, skýrslu stjórnarinn- ar fyrir starfstímabilið frá nóv- ember 1963 til ágústmánaðar 1964 Framh. á bls. 4 oringjar / __ I í GÆR birtu blöðin Pravda í Moskvu og Þjóðviljinn í Reykjavík samhljóða tilkynningu þess efnis, að lun síðustu mánaðamót hefði farið fram í Moskvu fundur æðstu manna rússneska kommúnistaflokksins og Sam- einingarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins. Af hálfu Rússa tók þátt í fundinum L. I. Bresnev, sem nýlega iét af emhætti sem forseti Sovétríkjanna og er af mörgum talinn líklegur eftirmaður Krustjovs. Einnig var á fundinum A. S. Beljakov, varaformaður alþjóðadeildar rússneska kommúnistaflokksins. Af íslands hálfu tóku þátt í fundinum þessir: Einar Olgeirsson, formaður Sósíalistaflokksins. Lúð- vík Jósefsson, varaformaður flokksins, Guðmundur Hjartarson, formaður framkvæmdanefndar flokksins, Brynjólfur Bjamason og Sigurður T^oroddsen. Samkvæmt tilkynningunni var rætt um „ýmis á- hugamál flokkanna“, og hófu íslendingarnir máls á auknum viðskiptum Sovétríkjanna og íslands, en Rússar tóku vel í það mál. Slíkir fundir sem þessi hafa án efa á t sér stað fyrr, því að ís- Ienzkir kommúnistar hafa haft náið samband við rússneska kommúnistafiokkinn í rúmlega 40 ár. Hitt er algert einsdæmi, að skýrt skuli vera opinberlega frá slíkum fundi. Kunnugir menn telja eftirfar- andi atriði merkileg í sambandi við mál þetta: 'l) Það nýmæli að skýra opin- berlega frá fundinum. SKk forms atriði hafa jafnan mikla þýðingu í augum kommúnista. 2) Óhjákvæmilegt er, að deila Rússa og Kínverja hafi verið aðai umræðuefni fundarins. 3) Vafalaust hafa Rússar krafizt RETTIN L. I. BRESNEV þess, að tilkynning væri gefin út, til að geta talið íslenzka kommún. ista í sínn liði gegn Kínverjum. 4) Það er merkilegt, að Bryn- ijólfur Bjarnason, sem á að heita seztur í helgan stein, skuli hafa verið kallaður til Moskvu. Hana hefur verið taiinn í hópi þeirra gömlu kommúnista, sem höfðia samúð með Kínverjum. 5) Einar Olgeirsson hefur dval izt iangdvöltun í Rússlandi í sum, ar og fyrra sumar. Hann hefur án efa undirbúið fundina með Rússum til að beygja félaga sína og hrista flokkinn saman. Frsmhald á 13. síðu- xæss iMism REYKJAVÍK, 10. september. — EG. ic DANSKA BLABID Berlingske Aftenavis birti í gærkvöldi fjögurra dálka forsíðufréít um samkeppni SAS og LoftleiSa. í lok fréttarinnar segir, að flugmálayfirvöíd Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar standi nú einhuga saman gegn Loftieiðum. Sé þess að vænta að tala þeirra farþega, sem Loftleiðir mega ffytja til og frá Norðurlöndum, verði takmörkuð við það, sem gengið var út frá í upphafi, þegar Loftleiðir notuðu flugvélar af Skymaster-gerð. ★ Segir ennfremur í fréttinni að flugmálayfirvöld fyrrgreindra Norðurlanda séu einhuga um þá kröfu, að nijókltað verði það bil, sem nú er milli fargjalda Loft- leiða og Iata-fargjalda. i Fyrirsagnir fréttari-nnar í blað- inu eru þrjár. í efstu línu segir: j Útþensla Loftleiða og SAS, síðan i segir í tveim línum, að stjórnvöld muni að lokum gera út um sam- keppniskjör Loftleiða og SAS. Að lokum er svo aðalfyrirsögnin: Rciðubúnir að segja stopp. (Parat til at sige stop). Fer frétt blaðsins hér á eftir í 1-uslegri þýðingu. Stjórnarvöld munu að lokum á- kveða samkeppniskjör SAS og T oftleiða. Spurningin er sú, hvort SAS eigi að halda áfram að missa I sf milljónatekjum vegna sam- keppninnar frá íslenzka flugfélag- inu Loftleiðir. En samkeppni af þess hálfu hef'ir fnrið vaxandi. íslenzka flugfélagið hefur smám I saman aukið umsvif sín, þannig að viðhorfin eru nú allt önnur en þegar loftferðasamningar voru upphaflega gerðir milli Norður- landanna. 160 FARÞEGA FLUGVÉLAR. Þessi spurning verður meira knýjandi en áður eftir 1. nóvem- ber n.k. Loftleiðir notuðu upphaf- lega flugvélar af gerðinni Douglas DC-4 á Atlantshafsflugleiðinni, hin Framhald á síðu 4 MMUttUmtWVHUMtMiHW látinn Ojð Helsingfors, 9. sept. (NTB-NNB) Sáttasemjari SÞ í Kýpur- deiiuuni, Sakari Tuomioja, fv. forsætisráðherra og sendi herra í Stokkhólmi, lézt í kvöld í Helsingfors, 52 ára að aldri. Hann var meSvit- undarlaus síðustu klukku- Framliald á síðu 13.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.