Alþýðublaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 8
Pétur Hoffmann Salomonsson. — (Teikning: Ragnar Lár.). Rvík, 18 sept. . RL VIÐ fengum einn ágætan gest til okkar í dag, en það var enginn annar en hinn þjóðkunni Pétur Hoffmann og fræddi hann okkur á ýmsu varðandi álaveiðar, en sagði sínar farir ekki sléttar hvað snertir friðhelgun veiðarfæra sinna og annarra. Pétur Hoffmann hefur orðið: — Ég kem hingað á Alþýðublað- ið, þar sem ég hef ætið verið í tölu hins vinnandi lýðs og er reyndar ekki annað en uppgjafa skútukarl og hef aldrei verið meira. Ég hef verið síðan síðast í apríl !■; vor, við rannsókn á álaveiðum, vfestur á Mýrum. Ég hef haft bæki- s^öð mína í skúr við Urriðaá, á Ityýrum, sem er í landareign Lang- árfoss, í Álftanesshreppi. Þaðan hef ég farið út um Mýrarnar og verið að rannsaka og leita að sjáv- arál. Ég reyndi lika í haust sem ieið, á 14 daga tímabili frá 27. ágúst, til 12. september í fyrra, í. Urriðaá og varð ekki var við nftinn sjávarál, því það er ein- gfengu sjávaráll sem ég hef verið ajS leita að, því að 1962 var ég í Sjeijum í Hraunhreppi á Mýrum o^ veiddi þar tæp tvö tonn af ál, í fimm gildrur á mánuði, sem ein- göngu voru veidd í sjó, eða á mörkum hins ferska og hins salta Vatns. Ég hef komizt að þeirri nið- urstöðu, að állinn leiti á göngutím anum upp í árósa og lækjarósa, á því vatnasvæði sem þeir hafa fóstr- ast upp. Ég hef líka komizt að þeirri niðurstöðu, að hann elst lika upp á mörkum hins ferska og salta vatns, og mun vera fær til þess, að laga sig eftir öllum þess- um kringumstæðum. Nú var það svo í sumar, að það fór á sömu leið, ég fékk ekki sjávarál í Urriðaá. Svo er það hinn 4. september að kveldi, að ég sé sel í árósnum, skammt frá staðnum sem ég er á, en fyrir rúmri viku höfðu verið rjfnar í tætlur tvær álagildrur sem ég hafði í ánni. Ég vissi að það voru tveir fiskar í annarri, en einn fjskur í hinni. Þær voru gjör samlega rifnar í hengla, Ég komst líka fljótlega að þeirri niðurstöðu, að hér var útilokað að um manna- verk væri að ræða, því það var há- flæði um nóttina og ég kom í birt- ingu úteftir, þegar fallið var að og það voru ekki menn sem það höfðu gjört, enda $áust hvergi för eftir óviðkomandi menn í leirbotni þeim sem ég lagði gildrurnar á , .því það er eingöngu á leir og eftir leir, sem áll skríður, ef hann hefur ekki um annað að ræða til þess staðar sem hann ætlar. Nú þótti mér nóg um. Ég lagði að vísu aft- ur fjórar gildrur og þær lágu þannig, að þær gátu tekið á móti álagöngum, því þær lágu á leir. Svo var það að morgni hins fimmta sept. að ég fór að vitja um gildrurnar, eftir að fallið var út af þeim. Þá voru tvær þær gildrur sém í miðju voru, og lágu þvert fyrir göngu áls ef á ferð hefði ver- ið, rifnar í hengla. í þeim tveim- ur, sem lágu út frá þeim, var einn sjávaráll, nýrunninn, sitt í hvorri gildru. Þeir álar, sem hafa legið í ám og vötnum, eru auð- þékktir frá þeim sem eru nýrunn- ir. Þeir, sem koma úr göngu eru bjartir, en hinir eru móbrúnir, á kvið, en hinir eru bláleitir og glansa sem nýrunnir silungar. Nú sá ég það, að mér var ekki lengur fært að eiga við þetta, á þessum stað og hætti tilraunum, þar sem ég só mér ekki fært að ráða Við þetta rándýr, en ég hafði enga byssuna. Þetta sama kvöld og gildrurnar voru rifnar um morg- uninn, sá ég sel og þótti mér hann vera merkilegur útlits, og gat ekki vel greint hans höfuðlag, en þó var það selur. Ekki er því um að kenna að ég ekki þekki sel á sundi, því ég stundaði ungur selaskytterí á Breiðafirði og líka við ísafjarðar djúp, svo ég þekki vel seli. En hér getur líka hafa verið um annað að ræða heldur en að þetta hafi verið vanskapaður selur, það gat lika hafa Verið ungur grænselur, eða hvað annað, en selur var það, það er öruggt. Ég var í félagi með manni ein- um, en bíll hans bilaði svo ég var nú orðinn einn þarna, gangandi og heldur erfitt fyrir mig að hlaupa um allar Mýrarnar, nú orð- ið. Við áttum gildrur niðri í vötn- um Lambastaða á Álftanesi! Við höfðum með okkur félag og áttum jafna veiði hvort sem var í mína gildru eða hans. En svo fór hann algerlega út úr þessu, og ég fór vestur til að sækja gildrurnar, nú fyrir rúmri viku. Þá komst ég að þeirri niðurstöðu að gildrur þær sem hann átti í þessu vatni, sem ég ekki kann að nafngreina hvað heitir, en vatníð sem ég hafði mínar gildrur í; heitir Selvatn, —- En það sem sjceður þegar ég kem að vatni þessu, eru þar engar gildrur, þær eru allar farnar, en skýring á því er engin önnur en sú, að ég bezt veit, að þeim hefur ver- ið stolið. Eins og ég sagði, átti ég ekki allar gildrurnar, en ég átti allar stengurnar, sem héldu þeim uppi í vatninu, svo ég hef orðið fyrir því, að stöngum mínum hef- ur verið stolið og þann rétt vildi ég reyna að sækja, til að byrja með en félagi minn verður að sækja hinn réttinn. Ef þetta er nú svona komið hjá okkur, að við höfum ekki, hvorki ég eða aðrir, frið með þessi veiðarfæri á hinum afskekt- ustu stöðum, svo sem eins og á Álftanesi á Mýrum, þá fer mér nú ekki að litast á blikuna, með ein og önnur veiðarfæri, sem hægt ér að ganga greiðlega að í þjóðbraut. Hitt er eitt víst, að hér er ekki um að ræða, að nágrannar mínir þarna hafi gert neitt af þessum verkum, því mér er það allvel kunnugt að þar býf dáttufólk, þó þáð sé mér þar ekkert skylt, en annars á ég 8 22. sept. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ yfirleitt frændfólk um allar Mýr- ar, á öðrum hverjum bæ. Hér mun vera .um eitthvað annað að; ræða sem ég kann ekki að skýra meira. Því bið ég alla þá, þar umi slóð- ir, sem hafa orðið varir.við slíka menn á ferð, sem grunsamlegir mega teljast, að gefa mér, eða hlutaðeigandi yfirvöldum, sýslu-. manninum í Mýra- og Borgarf jarð- . arsýslu, upplýsingar úm þetta. Hvað annað er um álaveiðar, og það sem þarf til þess að kunna með það allt að fara, skýri ég ekki bér frá, því ég er þegar á leiðinnl að gefa út. vasabók, sem tilheyr- andi myndum, til þess að uþplýsa fólkið um það, hvernig veiða skal þennan fisk. Það er alveg rétt sem ég segi, á þessari stundu í dag. Það er eig- inlega enginn íslendingur, sem hefur séð ál, enginn sem kann að veiða hann ennþá, og í þriðja lagi eru aliir hræddir við hann. Þetta verður að breytast. Álíinn er einhver sá ágætasti fiskur til matar, sem vitað er og að mínum dómi er hver sá áll sem orðinn er fullorðinn, frá áttatíu til hundrað sentímetrar, hann er að minum dómi tíu króna gullpeningur hjá þeim sem veiðir hann og tíu króna gullpeningar þeim sem kaupir hann og hentar hann á innlend- an eða erlendan markað. Frekar, er þessi bæklingur minn kemur út, mun ég skýra þar ná* kvæmlega frá þessu öllu. Bókasafnið í Kópavogi í nýtf húsnæði Reýkjavík, 16. sept. — ÞB. BÆJARBÓKASAFNH) í Kópa- vogi, sem starfrækt hefur verið i 10 ár, er nú formlega flutt í ný húsakynni og aðstaða öll hefur verið bætt og fegruð. Safnið er nú til húsa í nýinnréttuðu húsnæðí uppi yfir Kópavogsbíói í félags- heimili kaupstaðarins. Fram til þessa hefur safnið ver ið til húsa í barnaskólum í Kópa- vogi. Eftir miklar umræður var ákveðið að það skyldi hýst í fél- agsheimilinu. Var flutningur þess þangað hafinn í fyrrahaust og út- lán þaðan í vetiu-. Nú er húsnæð- ið fullfrágen/gið oR þar verður framvegis opin lesstofa þá daga, sem útlán eru. Á lesstofunni verða fáanleg blöð og tímarit frá flestiun byggðaHögum landsins. Húsnæði safn ins er 150 fer- metrar að stærð. Á lesstofu eru sæti fyrir 18 manns og auk þess eru tvö bo”ð í barnabókadeild. Einnig er rúmgóð skrifstofa bóka varðar, bókageymsla og viðgerða- stofa, en bókaverðir munu- sjálfir annast minni háttar viðgerðir á bókum. Bókaverðir eru Jón úr Vör og Þorsteinn frá' Hamri. Jón hefur ver:ð bókavö'ður safnsins frá upphafi. Takmarkið er, að safnið verði gott almennt lessafn. Til þess vantar enn talsvert af gömlum ti'maritum og ejnnig góð- ar handbækur. sé>--taklega á er- lendum málúm. Halldnr TTaUiiórcson, árkitekt réði fyrirkomuiagi safnsins og gerði teikningar. mh. á bls. 13 ;

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.