Alþýðublaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 11
MIKILL mannfjöldi var saman kominn á Njarðvíkurvelli á sunnu- daginn var. Hundruð bifreiða, langferðabifreiða, leigubifreiða ©g einkabifreiða, lögðu leið sína írá Reykjavík „á völlinn” þar suð- ur frá, auk fjölda fólks frá Kefla- vík og öðrum nærliggjandi stöðum Suðurnesja. Alls er talið að nær 5 þúsundir manna hafi verið þarna. Tilefnið var úrslitaleikur íslandsmótsins, sem háður var milli KR og ÍBK. Hin mikla að- sókn sannaði enn einu sinni, hver ítök knattspyrnan á í hugum fólks ins, eða hvaða íþrótt.agrein önnur, myndi hafa samansafnað slíkum fjölda eða gæti það, nema knatt- spyrnan Hitt er svo annað mál að aðstaðan til að taka á móti slíkum fjölda áhorfenda, þarna suður frá, er fyrir neðan aUar hellur. En slæm aðstaða aftrar ekki fólki frá Staðan í 1. deild að ólokn- um einum leik, KR-Akranes, sem fram fer á sunnudaginn. .... -...{ ★ Fram-Þróttur 4:1 ★ Keflavík-KR 1:1 Keflavík KR Akranes Akranes Valur Fram Þróttur 10 6 3 1 25:13 15 9 4 3 2 15:11 11 9 4 3 215:11 10 9 5 0 4 23:20 10 10 3 2 5 19:24 8 10 2 3 5 10:20 7 10 2 3 5 14:24 7 að koma, ef það á von á fjörugum knattspyrnukappleik. Og vissulega hafði fólk ástæðu til að ætla, að þarna yrði einn af hinum stóru leikjum ársins. Að staða keppinautanna var þó með nokkuð misjöfnum hætti. Annars- vegar ÍBK með 14 stig og hins- vegar KR með 10 stig. ÍBK dugði jafntefli til að sigra og hljóta ís- landsmeistaratignina, en KR þurfti hinsvegar að sigra ÍBK nú og síðan ÍA og loks þá ÍBK á ný, tiL að halda sæmdarheitinu „Bezta knattspyrnufélag íslands”, sem það var handhafi að. Leikurinn var því allójafn þegar í upphafi, hvað þetta snerti. En þrátt fyrir þessa hagstæðu aðstöðu ÍBK, voru ýmsir, sem treystu á „KR-heppnina” og harð- fylgi KR-inga til að rétta hlut sinn þegar verst horfði, svo að þeir fengju enn einu sinni hrósað sigri, og við þetta var svo tengd vonin um nýjan úrslitaleik við ÍBK f Reykjavík við mannsæm- andi aðstæðúr, ef ÍA yrði þá ekki sá þröskuldur sem slikar vonir hrösuðu um. En það sýndi sig, að óþarfi var að gera slíku skóna. Leiknum lauk með jafntefli 1:1 og með sigri ÍBK, í mótinu, sem þar með er orðinn íslandsmeistari í knattspyrnu árið 1964 og „Bezta knattspyrnufélag íslands”. Er þetta í annað sinn, sem félag utan Reykjavíkur, sigrar í mótinu. En fyrstu sigurvegarar í íslandsmót- inu utan Reykjavíkur voru eins og kunnugt er, Akurnesingar, og oft eftir það. Ekki er hægt að segja, að úr- slitaleikur þessi hafi verið sérstak- lega spennandi í heild, en hins- vegar voru í honum góðir sprettir, svo við mátti búast og snörp um á báða bóga, á milli. Fyrri hálf leiknum lauk án mai-ka, voru þá ÍBK-menn mun meira í sókn og áttu möguleika til að skora, þó ekki nýttust. Hinsvegar má segja að mark þeirra, í þessum hálfleik, væri aldrei í neinni verulegri hættu. Enda virtust KR-ingar leggja meiri áherzlu á varnarleik en sókn ar í þessum hálfleik og allt þar til þeir fengu fyrsta markið, sem kom á 12. mín. seinni hálfleiks. Það var Rúnar Júlíusson, sem lék mið- herja í stað Jóns Jóhannssonar, sem ekki gat leikið með vegna meiðsla, en það var liðinu mikill skaði, sem skoraði með góðu ská- skoti frá vinstri. Þessi varnarleik- ur KR-inganna var misráðinn, þeir höfðu allt að vinna og hefðu þessvegna átt að sækja á af öllum þeim krafti, sem þeir höfðu yfir að ráða. Annað en sigur í leikn- um, kom þeim að engu haldi. Enda sýndi það sig; eftir að þeir tóku að sækja á, af auknum krafti gekk allt betur, og mark mótherjanna var hvað eftir annað í yfirvofandi hættu. Og ekki munaði hársbreidd að tækist að jafna, er Ellert skall- aði rétt utan við stöng úr sendingu Gunnars Felixssonar, er 15 mín voru eftir af leiknum. Úr hom- spyrnu á 34. mín. sem Rúnar tók, munaði og mjóu að Karli Her- mannssyni tækist að bæta öðru markinu vlð, en skot hans var of laust. En rétt á eftir átti Rúnar hörkuskot í hliðarnet og annað skömmu síðar úr svipaðri aðstöðu og hann skoraði úr, en yfir slá. Er um 5 mín. voru eftir af leiknum, jafnaði Ellert fyrir KR, með ágætu og viðstöðulausu skoti, sem Kjartan markvörður hafði ekki möguleika á að verja. Boltinn Hreiðar og Karl berjast um boltann. —- (Mynd: JV). var kominn inn áður en Kjartan hafði varpað sér niður í veg fyrir hann. Síðustu mínúturnar voru mest spennandi, er KR-ingarnir gerðu hverja hríðina af annarri að marki mótherjanna, til þess að ná sigrinum, en allt kom fyrir ekki, vörnin stóðst alla raun, og var þar drýgstur svo sem áður, miðfram- vörðurinn Högni Gunnlaugsson. Þó skall hurð nærri hælum, er Sveinn Jónsson tók aukaspyrnu á 42. mín. en boltinn féU niður á netið ofanvert. Lá þarna við, -að (Mynd: JV). Islandsmótinu. Hinn glæsilegi knattspyrnuflokkur Keflviklnga, sem sigraðí Sveini tækist öðru sinni í viðup- eigninni við ÍBK, að tryggja liðk sínu sigur, á síðustu stundu, svo sem var í hinum fyrri leik í sum- ar, er hann skoraði úr auka- spyrnu á síðustu stundu, er stað- an var 2:2. Rétt fyrir lokin fengu KR-ing- ar enn eina aukaspyrnu, við víta- teigslínu, er Kjartan markvörð- ur hafði stigíð út fyrir teiginn, > því augnabliki er hann spyrnti frá, En sú aukaspyrna reyndist ekki hættuleg og leiknum lauk eins og fyrr segir,, með jafntefli 1:1 00 þar með sigri ÍBK, er hlaut 19 stig í. mótinu. Grétar Norðfjörð dæmdi leikinn og gerði það veí. Leikurinn i heild var hinn prúðmannlegasti t hvívetna. íslandsmeistarar ÍBK eru þessír» Kjartan Sigtryggsson, Gísli Elle- rup, Ólafur Marteinsson, Magnúo Torfason, Högni Gunnlaugsson, fyrirliði, Sigurður Albertsson, Jón Ölafur Jónsson, Hólmbert Friffi- jónsson, Rúnar Júlíusson, Eiuar Magnússon og Karl Hermannsson. Enginn vafi leikur á því að þetta lið er það jafnbezta, sem leikur 4 I. deild nú, Jafnvígir leikmeho skipa yfirleitt flestar stöðurnar. Framlínan er þó hvað bezt, eink- um þegar Jón Jóhannsson skipar Stöðu sína, sem miðherji. Vissu- légá er þetta lið vel að sígrinum í mótinu komið, og því sæmdár- heiti, að teljast „Bezta knátt- spymulið íslands nú, því það ev rétt. Éngin tilviljun hefur hér um vélað. — EB. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. sept. 1964 1|,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.