Alþýðublaðið - 30.12.1964, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 30.12.1964, Blaðsíða 1
liÍilIjMi m I 38 mmM . i \V«*.&ssa :_______W ALÞÝÐUBLAÐIÐ vill beina þeim tilmælum til foreldra og annarra forráðamanna barna og unglinga, að láta ekki börn hafa kínverja undir höndum nú um áramót in eða endranær. Auk þess að vera ákaflega hvimleið fyrirbrigði, eru þeir kínverjar, sem nú virðast ganga kaupum og sölum meðal unglinga, stórhættu- legir, og hafa valdið fjölda slysa eins og áþreifanleg dæmi sanna. Kínverjar þessir eru smygl varningur, sem lögreglan ger ir upptækan hvar sem hann finnst. Alþýðublaðið skorar á for- eldra að afhenda lögreglunni kínverja, sem finnast í fór- um barna og unglinga, og reyna eftir megni að aðstoða við að liafa uppi á þeim, sem hafa fé af börnum og ungl- ingum með því að annast dreifingu þessa ólöglega varn ings. 30 DRENGIR VORU TEKNIR MEÐ SMYGLAÐA KÍNVERJA 44. írg. ~ Nliðvikudagur 30. desember 1964. — 288. tbl- Reykjavík, 29. des. — ÓTJ. ÞRJÁTÍU DRENGIR voru tekn- ir á Þorláksmessu fyrir að hafa undir höndnm smyglaða kínverja, og valda með þeim ýmsum spjöll- um og truflunum. Þessir smygluðu kínverjar eru flestir af „Bandit” og „Camel” gerð, og eru seldir á 3-5 kr. stykkið. Ástæða er fyrir foreldra, og aðra, að gæta þess, að þessar teg- undir séu ekki notaðar, því að oft hafa þær valdið slæmum slysum. Fjölbreytni í vörum þeim, sem ætlaðar eru til að „lýsa” upp gamlárskvöld er og svo mikil, að óþarfi er að kaupa neitt óleyfi- legt dýru verði. í mörgum verzlun um hérna eru nú seldir kínverjar sem leyfðir hafa verið, og þeir gera ansi góðan hvell. Á FUNDI bæjarstjórnar Kópa- vogs 18. des. sl. voru lagðar fram tillögur að merki fyrir kaupstað- inn. Samtals höfðu borizt 92 til- lögur. Bæjarfulltrúum þótti engin til- laga henta sem merki bæjarins. En ákveðið var að veita þremur tillögum nokkra viðurkenningu. Höfundur tveggja þeirra er Sigurlaug Sæmundsdóttir 60 YFIRGEFNIR Reykjavík, 29. des. — ÓTJ. UM 60 ÖKUMENN urðu að yfirgefa bíla sína á leiðinni milli Hafnarfjarðar og Reykja- víkur í gær, þeir, sem komust á leiðarenda, höfðu verið frá 7—10 klnkkustundir á leiðinni. Þeir bílar, sem yfirgefnir voru, voru færðir út í vcgkantjnn eins og unnt var, og svo héldu ökumenn leiöar sinnar gang- andi, eða í farartækjum, sem komust áfram, þrátt fyrir slæma færð. Lögreglan í Reykjavík, Hafn- arfirði og Kópavogi vann ósleit- lega að því að aðstoða fólkið ei-ns og unnt var, og einnig voru kallaðar út hjálparsveitir skáta í Reykjavík og Hafnar- firði og Flugbjörgunarsveitin. Þrátt fyrir það, varð fjöldi fólks að bíða þess í fleiri klukku- stundir að komast heim til sín, m. a. vegna þess að áætlunar- bílum gefek sízt betur en öOr- um. Jafnvel elztu og reyndustu í hópi Landleiðabílstjóranna ■mundu vart verra ástand. — Fréttamenn Alþýðublaðsins fóru víða um til að fylgjast með, og það var sama hvar að var Framhald á síðu 4 150 hvítum í Kongó bjargað Leopoldville, 29. des. (ntb-afp). Kongóskir hermenn undir stjórn hvítra málaliða björguöu í dag 150 Evrópumönnum, sem uppreisnar- menn höfðu íiaft í gíslingu á ffa- mba-svæðinu suðaustur af Paulis. Gíslarnir segja, að uppreisnar- menn hafi drepiö tíu hvíta menn á annan í jólum. Uppreisnarmaður, sein her- mennirnir tóku til fanga, segir, að nokkrir þeirra, sem drepnir voru, hafi verið étnir. Wamba er um 400 km. frá Paulis. Hvítir trúboð- ar, sem kæmu frá Paulis-svæðinu í lok síðasta mánaðar, segja, að uppreisnarmenn hafi drepið nær alla hvíta menn á Wambasvæðinu. Ekkert reynt við Súsönnu 1 gær Reykjavík, 29. des. — GO. SAMKVÆMT upplýsingum hafn sögumannsins á Raufarhöfn, Björgvins Björgvinssonar, hefur lítið sem ekkert verið aðhafzt við björgun flutningaskipsins Súsönnu Reith í dag. ÞESSA dagana stendur yfir í Gallery 16 sýning á verknm eftir listakonuna Sigrúnu Jónsdóttur. Sýnir hún þar batik og nokkur rya-teppi. Stúlkan á myndinni heitir Sigurborg og er dóttir Sigrún- ar. Baíik-kjóllinn, sem hún er í, er gerður af móður hennar, sömuleiðis teppið, sem hún situr á og myndin á veggnum. — Nánar á 4. síðu. Mega hafa verzlanir opnar laugardaginn 2. janúar VEGNA tilmæla frá fjölda fé-1 Buga fyrir sitt leyti að verzlanir lagsmanna vorra tilkynnist hér- félagsmanna verði opnar laugar- með að Kaupmannasamtök ís- daginn 2. janúar næstk. en vöru- lands hafa ekkert við það að at- | Framhald á 13. síðu | í fyrradag tókst að færa skipið um 4 til 5 metra og svo um einn meter í gærkvöldi. í dag hefur svo ekkert verið aðhafst vegna veðurs, en skipið hefur verið skorð . að af með vírum, til þess að koma Framhald á 4. slðu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.