BFÖ-blaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 4

BFÖ-blaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 4
Árni Einarsson: Þeim fjölgar sem ekki neyta áfengis Aðeins 2,6% fullorðinna hafa þó farið í áfengismeðferð Fylgst hefur verið allvel með áfengisneyslu íslendinga síðustu áratugi. Upplýsingar um innflutning og sölu áfengis eru til frá því fyr- ir aldamót og umfangsmikið rannsóknarstarf hefur verið stundað síðustu áratugi. Ymsir hafa gert kannanir á áfengisneyslu lands- manna. Fyrirliggjandi gögn gefa nokkuð áreiðanlega mynd af stöðunni. Fjórðungur íslendinga neytir ekki áfengis í janúar 1989 gerði Gallup á Islandi síma- könnun fyrir Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið og Nefnd um átak í áfengisvörn- um á neyslu áfengis meðal Islendinga. Könn- unin náði til alls landsins og valið var úrtak úr aldurshópnum 15-70 ára. Könnunin var endurtekin í október sama ár. í september 1991 gerði Hagvangur könn- un fyrir Bindindisfélag ökumanna í aldurs- hópnum 15-89 ára. Hliðstæðar kannanir voru aftur gerðar í ár, í janúar og maí. Meðal þess sem spurt var um í öllum of- angreindum könnunum var hvort fólk neytti áfengis. í töflu 1 er sýndur fjöldi þeirra sem ekki neyta áfengis. Af þessu má ráða tvennt: Annars vegar að u.þ.b. Qórðungur Islendinga eldri en 15 ára neytir ekki áfengis og að svo virðist sem íjöldinn hafi farið vaxandi síðustu árin. Síð- ari tilgátan fær stuðning ef litið er á sölu- tölur frá Afengis- og tóbaksverslun ríkisins þessi sömu ár (tafla 2). Samdráttur í sölu áfengis virðist halda áfram í ár ef litið er á sölutölur fyrri helm- ing ársins en samkvæmt þeim hefur áfengis- neysla dregist saman um 7% frá sama tíma í fyrra. Ef sá samdráttur helst út árið jafn- gildir það 4,4 lítra heildarneyslu á árinu. Með því er áfengisneysla aftur komin í svip- að horf og var fyrir bjórkomuna í mars 1989. Brugg eða breyttar lífsvenjur? Að því hefur verið látið liggja, m.a. af tals- mönnum Afengis- og tóbaksverslunarinnar að skýra megi þennan samdrátt að hluta með auknu bruggi í landinu. Nú liggja engar haldbærar upplýsingar fyrir sem gefa til kynna hvort brugg er að aukast eða ekki. Tölur um það magn sem lögregla kemst yfir geta allt eins gefið til kynna aukna virkni og árangur í starfi lögreglu eða að markaður- inn sé með einhverjum hætti opnari og að- gengilegri en áður, t.d. vegna sölu til barna og unglinga. Um það skal ekkert fullyrt en benda má á að samdráttur í sölu tóbaks fyrri helming ársins í ár var svipaður og samdrátt- urinn í sölu áfengis. Er ekki líklegt að ástæð- urnar séu að einhverju leyti tengdar t.d. minnkandi kaupgetu fólks eða breyttum lífs- venjum þar sem aukið tillit er tekið til áhættuþátta í heilbrigði? Einn af hverjum þremur Samkvæmt upplýsingum, sem SAA birti í nóvember 1991 og byggðar voru á sjúkra- skýrslum frá Vogi átta árin á undan, eru lík- ur á því að 27,8% allra karla og 11,5% kvenna á Islandi greinist einhvern tíma á ævinni með áfengissýki eða annan vímuefnavanda. Við þetta má reyndar bæta að flestir þeirra sem eiga við svokallaðan vímuefnavanda að stríða hafa áfengisvanda á sinni könnu. Ef þessar tölur eru skoðaðar í samhengi við meðaltal niðustaðna nýrrar könnunar Hagvangs er ljóst hve hrikaleg ályktun SAA Tafla 1: Hlutfall fullorðinna sem ekki neyta áfengis Jan. ‘89 Okt. ‘89 Sept. ‘91 Jan. ‘93 Maí ‘93 15-70 ára 15-70 ára 15-89 ára 15-89 ára 15-89 ára 18% 17% 24% 25% 27% Tafla 2: Sala áfengis hjá ÁTVR, mæld í vínanda- lítrum, miðað við íbúa 15 ára og eldri 1988 1989 1990 1991 1992 1993 4,60 5,51 5,24 5,13 4,73 4,4? 4

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.