Alþýðublaðið - 04.06.1965, Blaðsíða 15
Bæjarbúar reyna að liengja negrann án dóms og laga, en Gregory tekst að
koma I veg fyrir það.
Að drepa söngfuglinn
Hvítasunnumynd Hafn
arbíós verður „To Kiill a
Mockingbird'* sem skírð
hefur verið f,Að drepa
söngfugl“. Aðalleikarnir
eru Gregory Peck, Mary
Badham og Phillip A1
ford, en tvö þau síðast
nefndu leika dóttur og
son Gregorys. Myndin
er gerð eftir samnefndri
>ögu skáldkonunnar Harp
er Lee, sem hlaut Pulitz
er verðlaunin fyrir hana,
Peck leikur miðaldra
lögfræðing í litlu þorpi
í Alabama- Hann býr
þar ásamt tveimur börn
um sínum, og ráðskonu
Hann er alvörugefinn og
hæglátur maður sem
metur réttlæti og jafn
srétti öðru fremur, og
reynir að ala börn sín
þannig upp að þau geri
sér ljóst að allir menn
séu jafnir fyrir guði.
Hið landlæga negra
hatur gerir honum erfltt
fyrir, en börnin eru á
kaflega hænd að föður
sínum og hlýða orðum
hans í blindni. Nýr dreng
ur kemur tii bæjarins og
börn Gregorys taka að
sér að sýna honum ujn
hverfið. Og áhorfendur
sjá hlutina eins og þeir
koma fyrir augu barn
anna. Þau sýna nýja
drengnum hina skapillu
og ljótu frú Dubose, og
draugahúsið sem Boo
Badley býr í. JÞangað
er þeim bannað að fara
því að Radley er geðveik
ur. Húsið er dularfullt
og hefur aðdráttarafl
fyrir börnin og þau hafa
líka grun um að Boo sé
vinur þeirra, þvi að þau
finna oft i garðinum hjá
sér ýmsa smáhlutj sem
þau telja að hann hafi
skiiið eftir- Erfiðleikarn
ir byrja þegar Greg/.-y
tekur að sér að verja
ungan negra Tom Rob-
inson að nafni, en drykk
felldur bóndj að nafni
Bob Ewell hafði ákært
hann fyrir að nauðga
dóttur sinni. Heldur er
Ewell illa þokkaður en
bæjarbúar standa samt
raeð honum vegna þeÆ
að Tom er' negri. Mála
ferlin ieiða margt í ljós
og vegna þeirra gerast
ýmsir óhugnanlegir at
burðir- ,,Að drepa söng
fugl“ er af gagnrýnend
um talin frábær mynd,
enda fékk hún þrenn
Oscar verðlaun: Bezta
leik í aðalhlutverki,
(Gregory Pecck), bezta
sviðsetning, og bezta
kvikmyndahandrit.
MOLAR
■k Sidney Poitier er nú
Skilinn við konu sína
Junitu eftir 14 ára hjóna
band. Þau eiga fjögur
börn. Ástæðan fyrir skiln
aðinum er sú að Sidney
iiefur leynt og ljóst í
langan tíma haldið við
Díönnu Carrol, sem sjálf
er skilin. í Hollywood
er mikið um þetta ævin
týri rætt, og menn velta
því fyrir sér hvort Sydn
ey og Dianna muni gift
ast.
*■ Eddie Fisher er í
ndkkrum erfiðleikum
um þessar mundir. Hans
fyrrverandi kona Debbie
Reynolds kemur að vísu
alitaf vel fram við hann,
líkiega vegna þess að
hann kemur f heimsókn
til barnanna, og hún vlll
ekki eyðileggja samband
hans við þau- En Liz
Taylor er ekki alltaf
mjúkmál í hans garð, né
hann í hennar. Nýlega
sagði hún í viðtali að
þegar hann yfirgaf
Róm fyrir skömmu,
hefðu börnin ekkert
spurt um hann. Eddie
sárnaði þetta mjög, en
margir segja hann eiga
það skilið: Á nætur
klúbbnum þeim sem
hann skemmtir á, segir
hann enn ýmsar miður
failegar sögur af Liz, Sú
nýjas*a: Liz er eins og
sjúkdómur sem þú getur
ekki varist. Ég læknað
ist sem betur fer, og nú
er það Burton. Innan
skamms verður það svo
annar, og annar og ann
ar.
k Cary Grant hefur ver
ið að hugsa um að ganga
skemmteanir
dceguriög ofh
í hjónaband á nýjan
leik, og konuefnið er
Dyann Cannon, sem er
35 árum yngri. Eitt vanda
mál hefur þó risiö upp
i sambandi við gifting
una — faðir hennar er
S móti henni. Hann seg
lr: — Ég hef ekkert á
móti Gary, hefi satt að
segja dáð hann í mörg
ár, en ég álít samt að
B5 ár sé of mikill aldur
munur. Þess má geta að
pabbinn er nokkuð yngri
en hinn tilvonandi
tengdasonur-
* Raf Vallone, ítalski
sjarmörinn er nú sem
stendur í Bandarikjun
um þar sem hann leikur
í myndinni um Jean
Harlow, ásamt Carroll
Baker. Vallone tehir að
myndin muni vérða á
gæt, og að ekki hefði
verið hægt að fá betri
leikkonu í aðalhlutverk
ið en Carroll.
föt i
★ Rory Calhoun; er
einn þeirra fáu Hdlly
wood leikara sem virð
ist lifa í hamingjusömu
hjónabandi. Kona bana
heitir Lita, og þau .vjrð
ast alltaf vera jafn ást
fangin.
Gaidra-Loftur , . .
Framh. af 16. síðu.
minni hlutverk Hann gerist á
Grímsstaðaholti og þar er galdrað
afskaplega mikið. í minni útgáfu
tekst Lofti það, sem honum tókst
ekki áðiu-, en það er að vekja
þann Gamla upp.
Enn erum við ekki búnir að
selja sýningarrétt á söngleikn-
um, enda er hann ekki fullgerður
ennþá; — og í sumar ætla ég á
síld til að græða peninga.
Bronsmunir ■ . .
Framhald 'af 6. síðu
ar og brætt þær upp og notað til
smíða.
Þarna er líka að finna sverð,
sem talin eru minna á vinnubrögð
á eyjum í Eyjahafi og Anatokkíu,
en hins vegar þykja skartgripirn
ir fremur benda til hluta, sem
fundizt hafa í austanverðu Frakk
landi og Mið-Evrópu og eru frá
lokum bronsaldar og byrjun járn
aldar.
Forsetasinilnn . . .
Framhald af 6. siðu
um sömu upphafstölur fyr-
ir langlfnusamtöl — nefni
lega 212 í New York og 202
í Washington. í bréfi sínu
þakkar forsetinn frú Brown
kærlega fyrir kurteisina og
lofar að reynast eins kurteis,
ef spurt sé eftir frú Brwn
eða einhverjum úr fjöl-
skyldu hennar í Hvíta hús-.
inu.
Næturljóð . . .
Framh. úr opnu.
„Allt til efstu hnjúka
er kyrrð;
nemur nótt mjúka
nánd og firrð;
vart brá er bærð;
öll söngvabörn sofa í náðum
bíð í ró, bráðum,
yeitist þér værð“.
Þó samanburður sem þessi sé
skemmtilegur — ekki sizt núna,
þegar allir eru að ganga undir
einhverskonar próf, — ber þess
að geta, að auðvitað má ekki taka
hann of hátíðlega. Og enginn má
í alvöru dæma skáldgáfu fimm
menningana eftir þýðingum þess
um, — sem eru í senn erfiðar
viðureignar og kannski fremur
gerðar til s*undargamans en lang
lífis. Þýðendurnir munu heldur
alls ekki hafa ætlað verkum sín
um stóran Mut, — allir liöfðu
þeir meimi og merkara að miðla.
' En hvað um það: Hér sjáið þið
fimm mismunandi útleggingar á
sama kvæði. Bregðið ykkur svo í
dómarakuflinn — eða reynið að
gera betur sjálf- Lýkur svo þessu
rabbi um Næturljóð vegfaranda.
G. Á.
Þróttur sigraði. . .
Framhald af 11. síðu.
eftir var hálfleiksins sóttu liðin
á víxl og sköpuðu sér góð tæki-
fteri> en markverðir vörðu vel og
afbrennslur votu oft herfilegar.
★ Seinni hálfleikur, 3 gegn 0.
Á 5. mín. ver Stefán gott
skot frá Axel, en skömmu síðar
er Magnús Jónsson í hörkufæri
en brennir illilega af. Þróttarar
sækja fast og Sigurður Jóakims-
son bjargar tvisvar á marklínu og
gerir það ekki endasleppt, því
hann veður upp kantinn og gefur
laglega fyrir, en þar var þá eng-
inn Haukamaður fyrir og boltinn
rennur fram hjá.
Á 20. mín. slasast Eysteinn bak-
vörður Þróttar og verður að yf-
irgefa völlinn, og léku Þróttarar
10 það, sem eftir var leiksins, —
en það kom ekki að sök, því þeir
virtust tvíeflast og sóttu nu mjög
fast.
Á 28. mín. skorar Edvarð 2-1
úr skalla. Stefán i Haukamarkinu
hélt ekki knettinum og missti
hann inn fyrir. Svo að segja á
sömu mínútu skorar Axel 3-1 eftir
að hafa einleikið upp kantinn.
Ólafur Brynjólfsson skorar svo
síðasta markið á 38. mín. mjög
fallegt mark algerlega óverjandi
fyrir markvörð Hauka. Síðuatu
minúturnar börðust Haukarnir i
.•örvæntingu, en allt kom fyrir ekki.
Sigur Þróttar var innsiglaður, —
sanngjarn en allt of stór.
★ Liðin.
Lið Þróttar var ekki gott i
þessum leik, samleikur sást varla
svo heitið geti, en þeir eru ó-
feimnir við að skjóta. Beztu
menn liðsins voru markvörður-'
inn, sem oft varði mjög vel og er
þar vissulega mikið efni á ferð-
inni. Halldór Bragason átti ágæt-
an leik og beztur í framlínunni
var Haukur.
Lið Hauka er ekkt gott og skort
ir þar helzt á yfirvegun f leikinn
og samheldni. Einstaklingshyggj-
an ræður of miklu i liði þeiira.
Beztu menn voru Stefán í mark-
inu og Sigurður Jóakimsson, sem
er mjög traustur leikmaður og
gefur sig ekki fyrr en 1 fulla
hnefana. í framlínunni sýndi
Magnús beztan leik, og Baldur er
á uppleið.
Dómarihn, Valur Benediktsson,
var ekki í essinu sínu.
_____________ t. V. ■
Kvennaskólinn • . .
Framhald af 1. sfðu.
Þá fór fram verðlaunaafhend
ing. Verðiaim úr Mínningarsjóði
frá Thoru Melsted hlaut Sigur
björg Bjömsdóttir, 4. bekk Z.
Verðlaun Þessi eru veitt fyrir
ágæta ástundun og glæsilegan á
rangur við bóklegt nám. Einnig
hlutu Erna Jóna Arnþórsdóttir
og Ásthildur Sigurðardóttir bóka
verðlaun fyrir ágæ*an námsárang
ur. Verðlaun fyrir beztu frammi
stöðu í fatasaumi voru veitt úr
Verðlaunasjóði frú Guðrúnar J.
Briem. Þau verðlaun hlaut «inn
ig Sigurbjörg Björnsdó*tlr. Verð
laun úr Thomsenssjóði fyrir bezt
an árangur í útsaumj hlaut Berg
ljót Kristjánsdót*ir, 2. bekk c. Þá
voru veitt verðlaun fyrir beztu
ritgerðina á burtfararprófi. (Þau
verðlaun hla-ut Þóra Jóhannes-
dóttir, 4. bekk Z.
Námsstyrkjum hafði verið út
hlutað í lok skólaársins til efna
lítilla námsmeyja, úr Systrasjóði
26-000 kr. og úr Styrktarsjó8i*Páls
og Thoru MeÞted 2.600 kr. og úr
Kristjönugjöf 8.000 kr.
Að lokum þakkaði forstöðuona
skólanefnd og kennurum gott sam
starf á liðnum ve*ri og ávarpaði
stúlkurnar, sem brautskráðust, og
óskaðj þeim gæfu og gengis 4, kom
andi árum. ,;s
NAUÐUNGARUPPBOÐl
. ;, :-t
annað og síðasta, á húseigninni á Árbæjarbletti 56, héf
í borg, þingl. eign Jens Pálssonar, fer fram á éignintíi
sjálfri föstudaginn 11. júní 1965, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavíkj
.',i 'j\ ■ •: ’
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 4. júní 1965 |,5