Alþýðublaðið - 26.06.1965, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 26. júní 1965 - 45. árg. - 140. tbl. - VERÐ 5 KR.
23. JÚBl
tm t evn^iEY
ÖTGÁFODAGUR * FffiST DAY OF ISSUE
SrSMPEC !H SUITSET
84 farasí í
flugslysi
E1 Toro, Kaliforníu, 2ö. júní
(NTB-Reuter).
84 BANDARÍKJAMENN týndu lífi
þegrar flutningaþota af gerffinni
C-135 hrapaffi til jarffar í grennd
viff E1 Toro í Kaliforníu i dag.
AUir, sem í vélinni voru, fórust,
en þaff voru 72 landgönguliðar auk
12 manna áhafnar.
Þotan var á leið til Okinawa
um Honolulu. Formælandi nokkur
kvaðst telja, að hermennirnir
hefðu átt að fara til Vietnam.
Þotan tilheyrði flutningadeild
heraflans (MATS). Flugstöðin í
Travis í Kaliforníu tilkynnti, að
þotunnar væri saknað, og flakið
fannst sjö kílómetrum frá Ei Toro.
Þotan lagði af stað frá EI Toro
kl. 9,45 að íslenzkum tíma, og
skömmu síðar misstu menn sam-
band við hana. Rigning var og skýj
að, þegar slysið var. C-135 er sams
konar þota og Boeing 707.
Stimpillinn hefur ekkert söfnunargildi
Reykjavík. — OO.
FYRSTA DAGS umslögin, sem
stimpluff voru í Surtsey sl. mið
vikudag, hafa ekkert gildi fyrir
frímerkjasafnara og eiga ekk-
ert erindi í frímerkjasöfn,
sagffi Guido Bernhöft, einn
mesti ítímerkjasafnai'i lands-
ins í vifftali viff hlaffið í gær.
Þaff eru aðeins pósthús, sem
leyfi hafa til að stimpla frí.
merkt umslög og þótt einhver
setji síðan á þau gúmmístimpil
getur þaff aldrei aukið verðgildi
þeirra fyrir safnara.
Það var framtakssamur Vest-
mannaeyingur, Páll Helgason,
sem fór með 4500 umslög út í
Surtsey á útgáfudegi nýju
Surtseyjarmerkjanna og setti
þar á þau gúmmístimpil, og þar
með voru þau stimpluð í Surts-
ey! Á þetta að auka verðgildi
þeirra að mun. Á hverju um-
slagi eru þrjú frímerki að sam
anlögðu verðgildi kr. 7.00, en
síðan voru þau seld á kr. 50,00,
og runnu út eins og heitar
lummur og seldust upp á fyrsta
degi og hafa kaupendur sjálf-
sagt haldið að þarna væru þeir
Framhald á 15. síðu
Flutninga- og veröjöfn-
unarsjóður fyrir síld
Reykjavík.
GEFIN voru út í gær ^ráðabirgðalög, sem fjalla um verffjöfnun milll
■síldar í bræðslu cg síldar í salt. Lögin heimila rikisstjórninni að
ákveffa gjald af hverja máli bræffslusíldar og að greiffa uppbót á
hverja uppsaltaða síldartunnu til aff hækka fersksíldarverff til sölt-
unar. Ennfremur heimila lögin að greiddur verði flutningastyrkur
þeim skipum, sem flytja síldarafla að austan norffur, og aff 4 milljón-
um króna skuli varið til að gera út sérstakt fluiningaskip, er flytji
kælda síld til söltunar effa frystingar til hafna vestan Tjörness og við
Steingrímsfjörff.
Bráffabirgðalögin fara hér á eftir:
FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:
Sjávarútvegsmálaráðherra hefur
tjáð mér, að verðþróun á síld til
söltunar og bræðslu, hafi orðið sú
undanfarið að hætt sé við að örð-
ugt r-eynist að fá síld til söltunar
á komandi sumri að óbreyttum að-
stæðum. Geti þetta ástand dregið
verulega úr síldarsöltun og þann-
ig haft alvarleg áhrif á aðstöðu
jslands á erlendum mörkuðum
íyrir saltsild og stórspillt afkomu
möguleikum þeirra, sem atvinnu |
hafa af síldarsöltun. Því beri
brýna nauðsyn til að komið verði
á verðjöfnun milli síldar í bræðslu
og síldar í salt.
Þá sé enn fremur nauðsynlegt
að draga úr bið flskiskipa í Aust-
fjarðahöfnum og greiða jafnframt
fyrir siglingum síldveiðiskipa með
eigin afla til hafna norðanlands.
Loks hafi atvinnurekendur á
undanförnum árum átt örðugt upp
dráttar í ýmsum kaupstöðum og
kauptúnum norðanlands, vegna
aflaleysis og af öðrum ástæðum.
Til þess að bæta úr þessu ástandi
,er ráðgert- að hefja s£rstakar að
■gerðir, sem hafi í för með sér
nokkum kostnað.
Fyrir því eru hér með sett
bráðabirgðalög samkvæmt 28. gr.
stjórnarskrárinnar á þessa leið:
1. gr.
Rikisstjórninni er heimilt að á-
kveða að af allri bræðslusíld, sem
veiðist frá og með 15. júní til 31.
desember 1965 á svæðinu frá Rit
norður og austur að Stokksnesi við
Hornafjörð, greiðist sérstakt gjald,
kr. 15.00 á hvert landað mál
bræðslusíldar, hvar sem henni er
landað. Af hausum og slógi frá
síldarsöltunarstöðvum greiðist
hálft gjald. Sildarverksmiðjur
þær, sem veita sildinni móttöku,
inna gjaldið af hendi til sjóðs-
stjórnar samkvæmt 4. gr.
2. gr.
Fé því, sem innheimtist sam-
Framhald á 14. síffn.
Kvöldsalan hefst á mánudag
Reykjavík — GO
Á MÁNDDAG hefst hin fyrir-
hugaffa kvöldþjónusta verzlana
í Reykjavík, á því aff 20 mat-
vörubúðir í liinum ýmsu hverf-
um borgarinnar verffa opnar til
klukkan 9 þaff kvöld og fram
eftir vikunni til föstudags
kvölds. Eitt hundrað og tuttugu
verzlunum hefur verið skipt I
sex hópa ,sem munu skiptast á
um aff veita þessa þjónustu,
cina viku í senn.
Tegund verzlunar og stærð
liafa ráðið mestu um niðurröð-
un búðanna, en í öllum borgar
hverfum verða opnar búðir
með helztu nauðsynjavörur. —
Nöfn þeirra búða sem opnar
eru hverju sinni, verða tilkynnt
í dagbókum dagblaðanna og
auglýst er í öllum kvöldþjón-
ustubúðum hvar opið er hverju
sinni.
Samkvæmt upplýsingum
Magnúsar L. Sveinssonar skrif
stofustjóra Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur, var samið við
VR í marz sl. um kvöldvinnu
starfsfólksins. Þeir sem verða
á vakt hverju sinni, koma ekki
Framhald á 15. siðu
Frá HAB
Ðregiff hefur veriff í liapp
drætti Alþýffublaffsins. Fyrri
drátíur 1965.
Vinningar komu á eftirtal
in númer.
1662 Flugferff fyrir 2
Reykjavík— New
York — Reyhja
vík.
18742 Hálfsmánaffarferð
fyrir tvo meff
skipi til megin
lands Evrópu.
Vinnjnganna skal vitjaff á
skrifs'ofu Hapodrættisins
Hverfisgötu 4, sími 22710.
Skrifstofan er opin aV.’a
virka daga kl. 9—5, nema
laugardaga kl- 9—12.
HAPPDRÆTTI
ALÞÝÐUBLAÐSINS