Alþýðublaðið - 05.12.1965, Blaðsíða 4
Kltstjórar: Gylfi Gröndal (ób.) og Benedikt Gröndal. - Ritstjórnarfull-
trúl: Eiður Guðnason. — Símarx 14900 - 14903 — Auglí'singasíml: 14906.
ABsetur: Alþýöuhúsið vlð Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-
tdaðslns. — Askriftargjald kr. 80.00. — I lausasölu kr. S.00 elntakið.
Utgefandl: AlþýOuflokkurinn.
Heilbrigð skynsemi
FYRIR MÖRGUM ÁRUM þótti hugmyndin um
áætlunargerð vera ein af fráleitari grillum jafnaðar-
manna. En það er liðin tíð. Ekkert einkafyrirtæki
er mú svo illa rekið, að það gerði ekki áætlun um
framkvæmdir, ef þær taka nokkur ár. Ekkert ríki í
hinum siðaða heimi er svo óhyggið, að það geri ekki
fleiri eða færri framkvæmdaáætlanlir.
Hér á landi hefur mönnum orðið Ijósara með
ári hverju, að brýn nauðsyn er áætlana um fram-
kvæmdir. Ríkið hefur tekið upp áætlunargerð
undir stjórn núverandi ríkisstjómár, og ákveðið á-
ætlanir á einstökum isviðum, til dæmis í vega-
gerð, raforkuframkvæmdum og fleiru.
Þegar litið er á þessa þróun, kemur mönnum á
óvart, að Reykj avíkurborg skuli enn ekki hafa tekið
upp áætlunargerð um framkvæmdir isínar. Þar ráða
sjálfstæðismenn einir málum. Þeir hafa að vísu lát-
ið gera áætlanir um einstaka þætti borgarfram-
kvæmda, svo sem gatnagerð. En hei'ldaráætlun um
borgarframkvæmdir 'hafa þeir enn ekki gert.
Áætlunargerð ríkisins um framkvæmdir þess er
mikils virði. Hins vegar getur ekki staðizt til lengd-
ar, að ekki séu gerðar sams konar áætlanir imi
framkvæmdir sveitarfélaganna, svo að hægt sé að
fá heildarmynd af fjárþörf fyrir hið opinbera. Auð-
vitað ættu einkaframkvæmdir að fylgja með, en
það þykir sjálfsagt of róttækt hér á landi, þótt það
sé heilbrigð skynsemi, sem jafn íhaldssamir stjórn-
málamenn og de Gaulle eða Macmillan skildu fyrir
mörgum árum.
Óskar Hallgrímsson, borgarfulltrúi Alþýðu-
flokksins, hefur flutt tillögu í borgarstjórn þess efn-
is, að gerð verði heildaráætlun um framkvæmdir
Réykjavíkurborgar. Með slíkri áætLun mundi fást
yfirsýn um framkvæmdir næstu ára og fjármagns-
þþrf, og er raunar erfitt að skilja, hvernig unnt er
að stjóma 'borginni eða semja við lánadrottna án
þ|ss að slfk áætlun sé til.
i Reynsla annarra mælir með því, að borgarst jórn
iRýykjavíkur samþykki tillögu Óskars. Jafnskjótt og
iþáð gerist ætti ríkið að fá önnur sveitarfélög til að
ifýigja fordæmi höfuðborgarinnar, þannig að. skyn-
samleg áætlunragerð verði föst regla hjá bæði ríki
ícg sveitarfélögum. Þjóðin verður að hafa betri stjórn
á fjárfestingarmálum sínum en verið hefur, þannig
iað einhvers stáðar sé til sú miðstöð, sem veit, hvað
eþ að gerast og hvert stefnir. Slík stiórn á fjárfest-
;iþgu er ekki Lengur pólitískt deilumál heldur 'að-
eíhs heilbrigð skynsemi.
Gerið iólainnkaupin
tímaníega
Þið gerið hagstæð
kaup í KRON
Nýjar vörur daglega
KVENKJÓLAR frá Marks & Spencer
ENSKIR NÁTTKJÓLAR
UNDIRKJÓLAR OG UNDIRPILS
frá Artemis og Kóral
SÍSÍ NYLONSOKKAR
HUDSON SOKKAR
KVENPEYSUR
TELPNAPEYSUR
DRENGJASKÓR, óreiniaðir
SVARTIR LAKKSKÓR Á TELPUR
HVÍTIR SKÓR Á TELPUR
manna í þessari skemmtilegu list
grein.
Margar myndir hafa selst, eða allg
18 talsins enda er verði mjög stillt
í hóf og fólki gefst þarna kostur á
að eignast ódýr en falleg og góS
listaverk.
Mótmæla
kjaradómi
Stjórn framhaldsskólakennara
mótmælir harðlega dómi Kjara-
dóms um kjör framhaldsskóla-
kennara og telur hann algjörlega
ófullnægjandi varðandi flokka- og
launahækkun.
Slíkur dómur hlýtur að leiða
af sér, að starfsmenn hins opin-
bera krefjist fulls samningsrétt-
ar þegar í stað.
Þá vill stjórnin lýsa furðu sinnl
yfir því, að Kjaradómur skuli ekki
hafa tekið neitt tillit til þess við
flokkaskipun, að Háskóli íslands
liefur þyngt og lengt nám til B.A.
prófs að miklum mun, og einnig
því, að framhaldsskólakennarar
með B.A. próf án uppeldisfræði
skuli vera settir í lægsta Iauna-
flokk á stiginu.
Lesið Alþýðublaðið
Áskriltasíminn er 14900
Danska lithografiu-
sýningin í Bogasal
Listaverkasnlngln á jdöjiskum
frumlithógrafium í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins, sem opnuð var 2.
desember sl. hefur vakið verð
skuldaða athygli og oft verið mjög
fjölmennt á sýningunni.
Fólk hefur tekið sýningunni
mjög vei, þótt hún litrík og fall
eg enda sýna þarna 33 kunnir
danskir listamenn 70 myndir sín
ar, svo að hér er um að ræða góða
yfirlitssýningu danskra lista-
4 5. des. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
l