Alþýðublaðið - 18.12.1965, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 18.12.1965, Blaðsíða 1
Laugardagur 18. desember 1965 - 45. árg. - 288. tbl. - VERÐ 5 KR, ;:'-Xv: : 25.000 FÓRUSI IFELLIBYLNUM KARACHI, 17. des. (ntb-reuter). Hrísgrjónum og lyfjum var í dag dreift meðal þeirra mörgu þús- unda manna, sem lifðu af felli- METGRÓÐI HJÁ SAS Kaupmannaliöfn, 17. des. (ntb). SAS skýrði í dag frá met- gróða á rekstri félagsins. Nettó- gróðinn nemur 103.4 milljónum 'norskra króna á þessu ári, en það er nær 7 milljón króna meiri gróði en í fyrra. Tekjuaukningin nemur 12% rniðað við síðasta ár. Farþegum fjölgaði um 10%, farmur jókst um 20% og flugpóstur um 14%. Nilsson forstjóri sagði á blaða- mannafundi eftir að stjórn félags ins hafði fjallað um reikninga þess, að þakka mætti hina hag- stæðu útkomu góðri samvinnu allra starfsmanna SAS. Hann kvaðst sannfærður um, að SAS gæti sigrast á mörgum erfiðleik- um í framtíðinni. oooooooooooooooc Opið til klukkðn 10 EINS og venjulega fyrir jól, er lokunartími verzlana nokkuð á annan veg en venjulega. Þannig eru búðir opnar til klukkau 10 í kvöld, laugardag og til miðnættis 'á fimmtudag, á föstudag, sem er aðfangadagur, eru þær hins vegar ekki opnar nema til hádegis. Eftir jól opna aimennar ver/Ianir þann 27. des. Én þá er starfs fólk ekki skyldugt að mæta til vinnu fyrr en klukkan 10 um morguninn. Svo eiga all ar verzlanir að vera búnar að loka klukkan 12 á hádegi á gamlársdag. xxxxxxxxx>oooo<x> bylinn, sem geisaði i Austur-Pa- kistan á þriðjudag og miðvikudag. Fyrstu opinberu skýrslur herma, að 25 þús. manns hafi farizt. í maí síðastliðnum týndu 17 þús. manns lífi í svipuðum fellibyl í Austur-Pákistan og blaðafréttir í dag herma, að talsvert fleira fólk hafi týnt lifi í síðasta felli- bylnum. Fulltrúi stjórnarinnar í Chitta- gong hefur ferðazt um svæði þau, þar sem fárviðrið geisaði, — og segir, að eyðileggingarnar séu mjög víðtækar. Einkum eru eyði- leggingarnar miklar á 30 km. breiðu strandsvæði frá hafnar- bænum Chittagong til baðstrand- arinnar Cox’s Basar, 100 km. í suöurátt. Sennilega voru flestir þeir, sem fórust, fiskimenn og íbúar margra eyja undan strönd- inni. Enn er sambandslaust við þessar eyjar og blöð herma, að þar hafi 10—15 þús. manns týnt lífi. í Chittagong hefur 71 týnt lífi. Eignatjón er tilfinnanlegt, en ekki eins mikið og í fellibyljun- um 1910 og 1963, þegar 10 þús. og 14 þúsund manns týndu lífi. Bandáríkjamenn hafa þegar gefið þeim sem um sárt eiga að binda vegna fellibylsins um 11 milljónir (íslenzkra) króna. Vest- ur-Þjóðverjar hétu í dag Ayub Khan forseta tafarlausri aðstoð. Forsetinn er í heimsókn í Bonn. DREGIÐ Á ÞORLÁKSMESSU □ Nú fer hver að verða síðastur að fá sér miða í Happdrætti Alþýðu- ‘blaðsins. □ Dregið á firruntudag, Þorláksmessu. □ 3 bílar í boði. □ Skrifstofan er á Hverfisgötu 4. □ Opið til klukkan 22 í kvöld. Happdrætti Alþýðublaðsins samn Washington, 17. des. (ntb-reút). Bandaríska utanríkisráðuneytið tilkynnti í dag, að bandarísku stjórninni hefði borizt orðsending, sem menn teldu nýja friðarum- leitun af hálfu Norður-Vietnam. Johnson forseta hefur borizt bréf frá forseta Allsherjarþings SÞ, Amintore Fanfani utanríkis- ráðherra Ítalíu, þar sem segir, að Ho Chi Minh, forseti Norður- Vietnam, segist vera fús til að fara hverl sem er og hitta hvern sem er. Ho Chi Minh segir, að stjórn- in í Hanoi sé fús að hefja samn- ingaviðræður án þess að krefjast þess fyrst, að Bandaríkjamenn flytji burtu herlið sitt frá Viet- nam. Bandariska utanríkisráðu- neytið segir, að það reyni nú að kanna skilyrðin ingaviðræðum. Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur birt texta bréfs frá Fan- fani til Johnsons, dagsett 20. nóv. i sem stjórnin í Hanoi séu reið«- og svar frá Dean Rusk utanríkis i búin að fiefja samningaviðræður ráðherra, dagsett 4. desember. í svarinu segir, að svo virðist Framhald á 15. sííiu. JÓLABLAÐ ALÞÝÐUBLAÐSINS SUNNIJDAGSBLAÐH) verður borið út með laugardags blaðinu að þessu sinni. Er það jólablað, nokkru stærra en venju leg blöð. Af efni þess má ncfna greinar um jólahald fyrri tima, um sólina og um kirkjulist í Eþíópíu. Þá eru í blaðinu tvö ljóð eftir Gest Guðfiámsson, kvæði eftir Hjört Pálsson og helgi- kvæðið Maríu blóm eftir Hall Ögmundsson. Smásögur eru nokkr ar í blaðinu, þeirra mest sagan Pípa mannætuhöfðingjans eftir Hja Ehrenburg. Einnig er í blaðinu barnaþátturinn Sitthvað fyrir börnln.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.