Vísir - 06.03.1959, Blaðsíða 4

Vísir - 06.03.1959, Blaðsíða 4
KOKJ&i VlSIB Föstudaginn 6. marz 1959, II Símon Jóh. Águstsson: SJmm œiileiðingu barwtu. y Ættleiðingum hefur íarið ört fjclgandi hér á landi — einkum eftir 1940. Frá lokum fyrri heimsstyrialdar (1918) fram um 1930 vom fjau um 10 á ári að meðal- tali, en seinustu árin (1952—1958) hafa verið veitt rúmlega 77 ættleiðmgarleyfi árlega til jafnaðar. Mikilvægt atriði. Sérfræðingar eru allir þeirr-i ar skoðunar, að kjörforeldrar! eigi að segja barninu að það sé' ekki þeirra barn, og það en mjög mikilvægt, að það sé gert snemma. Barnið þarf að vaxa’ upp með þessari vitneskju, þá| tekur það þessu sem eðlilegum! hlut. En ef dregið er að segja; barninu hið sanna, þangað til' það er orðið stálpað, getur það' haft skaðsamleg áhrif á sálar-: líf þess. Um þetta verða þeir,| sem hafa milligöngu um ætt-; leiðinguna, að fræða kjörfor-; eldrana. Barnið kemst oftast; fyrr eða síðar að hinu sanna, og j hjá fámennri þjóð einsogokkurj íslendingum er óhugsandi ann-j að en svo verði. Oft segja félag-' ar eða kunningjar barninu frá þessu á ónærfærinn hátt ogj getur því orðið mikið um. Er- lendir sérfræðingar telja, að bezt sé, að kjörforeldrarnir viti! ekki um, hverjir eru foreldrar barnsins, og hirini réttu móður: þess sé ókunnugt um kjörfor- eldra þess nema þegar um ætt- ' íngja, vini og nábúa er að ræða.; Er þessarar reglu gætt í flest- j um tilvikum erlendis, en hér á ’ | landi er það oft ókleift sakir; fámennis. Ef kjörforeldrar j þekkja foreldra barnsins og sett, getur komið fyrir, að þeir skelli skuldinni á ætternið, þeg- ar þeir verða varir við óæski- lega eiginleika í. fari barnsins og breytir þetta horfi þeirra við því til hins verra. Og ef móðir- in þekkir kijöríoreldra barns- ins, getur hún ónáðað þá og valdið þeim margs konar örð- ugleikum. Hve margar heppnast? Hve margar. ættleiðingar heppnast vel? Það fer efalaust . mjög éftir því, hvernig sú stofn un eða menn, sem annast ætt- leiðinguna, og dæma um hæfi kjörforeldranna og leiðbeina þeim, rækja hlutverk sitt. Töl- fræðilegar skýrslur munu varla vera til um þetta, sem nokkurr mark er takandi á, og mér er að eins kunnugt um eina rann- sókn, sem hefur verið gerð um þetta og nær hún raunar til fárra heimila: A follow-up study of adoptive Families, eft- jr Michaels og Brenner. Þessir sálfræðingar athuguðu heimili 50 kjörforeldra. Afstaða 26 þeirra til kjörbarnsins var góð, hjá 18 fremur góð og hjá 6 óheppileg. Um þessi sex óheppi- legu tilfelli segja höfundarnir: Ekkert þessara barna býr við Jélegt húsnæði, öll hafa þau nóg til fata og matar, ekkert þeirra koma kjörforeldrarnir hrotta- J«ga fram við eða meðhöndla það á óforsvaranlegan hátt. Það er ekki í þessum efnum, sem heimilin bregðast. — Á- gallar þessara heimila voru í því fólgnir, að kjörforeldrarnir sinntu barninu of lítið, þótti ónæði að því, voru hirðulausir um það eða spilltu því með hóf- lausu dekri og eftirlæti. Það er erfitt að vita, hvað tölur þessar þýða, því að sambærileg hjón, sem eiga sjálf börn, eru ekki I telcin til samanburðar. En samt j sem áður er ástæða til þess að, ætla, að árangurinn sé fremur góður. Ef allrar varúðar er gætt, þá eru sennilega ekki meiri lík- indi á því að kjörbörn fái ó- heppilegt uppeldi en börn, sem alast upp með foreldrum sín- um, enda sé stétt, efnahagur og merining kjörforeldra og for- eldra sambærileg. Hlutskipti kjörbarna er líklega engu lak- ara en hlutskipti barna, sem vex upp með foreldrum sínum í miðstéttum og efnaðri stétt- um þjóðfélagsins. Kjörforeldr- arnir eru yfirleitt í góðum efn- um, góðir borgarar, vel kynnt- ir menn, og m. k. engir ann- rriarká- eða vandræðamenn í neinum skilningi — en slíkt verður ekki sagt urn alla for- eldra—- og ekki er sýnt að þeir láti sér síður annt um kjörbörn sín en þótt þeir ættu þau sjálf- ir. Hitt er svo annað mál, að þeir hafa, þrátt fyrir góðan vilja, misjafnlega gott lag á uppeldi barna. tíðari t. d. í Danmörku en hér, þar sem um 30. hvert barn er ættleitt. Höfuðtilgangur ættleiðingar er að fá kjörbarninu betra upp- eldi og öruggari lifskjör en það myndi að öðrum kosti hljóta, enda segir svo í upphafi 8. greinar laganna: „Leyfi til ætt- leiðingar vérður því aðeins veitt, að ætla megi ættleiðing- una kjörbárninu heppilega, og ætlun kjörforeldra er að ala það upp, það hefur verið alið upp hjá þeim eða aðrar sérstakar ástæður eru fyrir hendi.“ Uggur urn framvindu ættleiðingarmála. Ýmsir þeir, sem hafa haft mikil skipti af ættleingarmál- um eru þó talsvert uggandi um þá framvindu, sem þau hafa tekið hér og þykir ekki nógu tryggilega um hnútana búið. Vil ég benda hér á áðurnefnda grein eftir hrl. Guðmund Vigni Jós- efsson, sem um langt skeið hef- ur verið formaður barnavernd- arnefndar Reykjavíkur og mjög er kunnugur málum þessum. Gagnrýnir Guðmundur 1 þess- ari grein ýmis ákvæði ættleið- ingaiiaganna og framkvæmd spumingu, hvort ættleiðing í spurninu, hvort ættleiðing í því formi, sem hún tíökast nú, eigi rétt á sér í okkar þjóðfé- íagi, og hvort kostir þessa forms séu það miklir, að þeir vegi upp á móti ágöllum þess og þeim hættum, sem því kunna að vera samfara. Varðar gagnrýni Guðmundar aðallega þrjú eftirtalin atriði: Viss hætta. Því fylgir viss hætta, einkum í fámennu þjóðfélagi, þegar af- máð eru öll fjölskyldutengsl milli barns og hins rétta for- eldris þess. Bæði eru þess dæmi hér á landi, að kjörforeldrar vilja komast l\já að vita um hið rétta foreldri kjörbarns, og eins hins, að foreldri vill ekk- ert um ættleiðenaur vita. Þá kosta sumir kjörforeldrar bein- línis kapps um að koma í veg fyrir, að kjörbarn, sem ættleitt er í bernsku, fái síðar vitneskju um rétta foreldra sína. Og þeg- ar haft er í huga, að kjörbarn mun að jafnaði kenna sig til kjörforéldris, ,,er ekki unnt að loka augunum fyrir vaxandi líkum á þeim samskiptum manna, sem ólögmæt eru og bönnuð í íslenzkum rétti vegna of náins skýldleika.“ Vandamál. Ég held, að hér sé vandamál á ferðinni, sem skotið getur upp þá og þegar og mun færa yfir þá, sem hlut eiga að máli, mikla óhamingju. Systkini, piltur og Ættleiðingiun fjölgar. Ættleiðingum hefur farið ört fjölgandi hér á landi, einkum eftir 1940. Fyrstu 5 árin eftir að stjórnvaldið var flutt inn í landið, 1604—1908, voru veitt 6 ættleiðingarleyfi alls eða rúm- lega eitt á ári, en næstu 5 árin, 1909—1913, voru leyfin 15, eða 3 á ári. Frá því í lok fyrri heimsstyrjaldar og fram um 1930 voru um 10 leyfi veitt á ári að meðaltali. Árin 1933— 1941 voru veitt samtals 147 leyfi eða 14.7 á ári til jafnaðar, og árin 1942—1951 voru veitt alls 439 leyfi eða nær 44 leyfi árlega að meðaltali.1) Síðastlið- Framangreindar tölur eru teknar úr grein Guðmundar Vignis Jósefssonar: Nokkrar at- hugasemdir um ættleiðingu. Tímarit lögfi’æðinga, 3. h, 1955, bls. 148—153. in 7 ár, 1952—1958, hafa, eftir því sem ég hef komizt næst, verið veitt um 540 ættleiðing- arleyfi, eða rúmlega 77 á ári til jafnaðar. Hefur því tala ætt- leiðingarleyfa aukist síðan lög um ættleiðingu viru sett árið 1953. Ættleiðing er þó miklu Litla teipan á myndinni er staðráðin í að verða cellóísti, þótt ung sé og nánrið henni enn erfitt vegna þess, að hljóðfærið er siórt og hún enn svo lítil. Mikið er nú gert að því að glæða áhuga nemenda í barnaskólum fyrir hljómlist víða um lönd, með tilsögn í skólunum í að leika á ýms hljóðfæri. stúlka, sem eiga kjörforeldra sitt á hvoru landshorni og kenna sig til þeirra, geta hæglega í góðri trú stofnað til náinna kynna og jafnvel tii hjúskapai', eins og nú er í pottinn búið, eix hins vegar má víst telja, að þan komizt síðar að skyldleika sín- um. Er þetta ’ vissulega alvar* legt íhugunarefni. Annað atriðið, sem greinar- höfundur gagnrýnir, er, að samkv. ættleiöingariögununx þurfi einungis að Jeita sam- þykkis þess foreldris, sem for- ræði barnsins hefur, til þess að ættleiðingin fari fram. Sam- þykki móður nægir til þess að óskilgetið barn verði ættleitt. Ef hjón, sem eiga barn, slíta samvistir, verður forræði barns- ins að vera óskipt hjá öðru. hvoru þeirra, og þarf þá aðeins samþykki þess, sem forræðiðí hefur. Nú getur hitt hjónanna. látið sér ekki síður annt unx. jvelferð barnsins og verið engu. i síður til þess hæft að veita þv£ : gott uppeldi. Faðir óskilgetins; barns, sem búið hefur með' barnsmóður sinni, getur og lát- ið sér mjög annt um barnið, eri hann getur ekki spornað við/ því, að móðirin samþykki ætt- leiðingu þess upp á sitt ein-: dæmi. Guðmundur kemst svo; að orði um þetta: „Þegar svona stendur á,- sýnist engin sann- girni vera í því að leyfa öðru foreldri einungis að ákveða svgJ þýðingarmikla ráðstöfun sem|. ættleiðing er, og rétt er að ha'fa'. í huga, að í reyndinni munu þau tilvik vera miklu fleiri, að einungis þurfi að leita sam- þykkis annars foreldris, því að oftast mun barn, sem ættleitíi er, annaðhvort vera óskilget- ið eða afkvæmi foreldra, senX. slitið hafa samvistir. Að vísu gerir 2. mgr. 6. gr< ! laganna ráð fyrir, að leita skull I umsagnar þess foreldris, sení, eigi þarf að samþykkja ættleið*- inguna, áður en ákvörðun eq tekin, en stjórnvald það, sent ættleiðingarleyfið veitir, sýnisij geta metið það að vild sinni, hvort meira eða minna tillit eri tekið til þeii'rar umsagnar.“ j íliugxmarverð gagnrýni. Þriðja atriðið, sem gagnrýni Guðmundar beinist að, er fyr- irkomulag það, sem nú er ál. greiðslu fjölskyldubóta samkv* lögum um almannatryggingar^ Hyggur hann, að það eigi noklc urn þátt 1 hinum ört vaxandl fjölda ættleiðinga. Hann kemsll m. a. svó að orði um þetta: i „Samkv. 31. gr. 1. nr. 50/194S um almannatryggingar er mecí- fjölskyldu átt við foreldra og| börn þeirra yngri en 16 ára, þar með talin stjúpbörn. og kjörbörn. í þessu sambandi erit stjúpbörn talin þau ein, sernl ekki eiga meðlagsskyldan föð- ur á lííi. Setjum svo, að kona, sem' átt'. hefur óskilgetið barn. giftisfá öðrum en barnsföður sínum og eignist í hjónabandi fleiri börnj Barn hennar, óskilgetið, er þá'. ekki talið til fjölskyldunnar,. þegar fjölskyldubætur ertf greiddar. í Það getur því verið að því nokkur fjárhagslegur ávinning ur fyrir fjölskylduna, að heim-j ilisfaðirinn taki óskilgetið barni konu sinnar að sér sem kjörx barn.“ Guðmundi virðist, % senaj Framh. ó 9. síéu. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.