Vísir - 14.05.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 14.05.1960, Blaðsíða 1
q l\ I V 50. árg. Laugardaginn 14. maí 1960 108. tbl. Voregur fós til brába- birgbalausnar - - - til aö létta úhrif laMttlhelfji- bretjtin tjarin n a r. Eins og getið var í forsíðu- fregn í Vísi í gær hafa Norð- menn nú tekið ákvörðun um útfærslu fiskveiðilögsögu úr 4 í 12 mílur og hafa í því efni farið að dæmi Islendinga. Halvard Lange, utanríkisráð- herra gerði grein fyrir ákvörð- uninni í gær, og sagði, að nú þegar yrði hafinn undirbún- ingur að útfærslunni. Hann kvað ákvöröunina hafa verið tekna vegna þess, að ekki hefði náðst neitt samkomulag á Genf arráðstefnunni — og það hefði orðið Norðmönnum mikil von- brigði — og íyrirsjáanlegt væri að ekkert samkomulag mundi nást á nálægri framtíð. Lange kvað norsku stjórn- ina gera sér Jjóst, að útfærslan bakaði erlendum fiskimönnum, sem fiskuðu við Noreg, erfið- leika, og vildi hún gera sitt til þess að draga úr þeim, með þvi að ræða sanngjarnt bráða- birgðasamkomulag, svo að erh fiskveiðiþjóðu’ gætu aðlagað sig breyttum kringumstæðum. Hér sjást hesthús Fáks við skeiðvöllinn við Elliðaár. Eins og menn sjá er hér vel vandað til aMra hluta. (Sjá fréttir á óðrum stað í blað- inu). Þeir létu ekki merkiil nibur falla í Sviss. Menn Krúsévs að verki, meðan hann hneykslaðist. Meðan Krúsév og hans memi hafa verið að kafna af hneyksl- an yfir njósna- flugi Bandaríkja- manna, hafa flugumenn hans ekki beinlínis verið aðgerðalaus ir annars staðar. Þann 10. maí voru nefnilega tveir sendiráðs- menn Rússa í Sviss teknir fast- ir, þar sem þeir voru að ná sam- bandi við spæj- ara sína í Zúr- ich. Lögreglan hafði fylgst méð þeim um skeið og lagði fyrir þá gildru, sem þeir gengu tafarlaust í. — En vafa- laust segja komm únistar, að slíkar njósnir gegni allt öðrumáli, því að Sviss sé hlutlaust land. Heitasti maídagur i manna minnum. 19.3 stig í R.vík, 21 á Þingvöllum. í gær var heitasti maí-dagur, sem komið hefur í manna minnum í Reykjavík. Hér komst hitinn i 19,3 stig, en héit- ast varð á Þingvöllum. Minnstur var hitinn á Hornbjargi, 5 stig. Á Sauðárkróki var 6 stiga hiti, enda var 'þar þoka, og einnig á Blönduósi. Allt geta Kínverjar. Einu sinni var viðkvæðið, að allt væri mest I Ameríku. Nú virðast Kína-kommúnist- ar ætla að koma því inn hjá mönnum, að allt sé mest hjá þeim. Til dæmis hafa þeir til- kynnt, að þeir liafi fyrir ári flutt sæði úr tarfi af Holstein Frisian-kyni í gyltu af Yorks hire- kyni og úr orðið fjögur afkvæmi, sem lifi við góða heilsu. Segja þeir, að úr hafi hirekyni og úr orðið fjögur iegri svín en áður hafi þekkzt. Sea Dragon fer undir norðurskaut. Fregn frá Washington herm- ir, að kjarnorkukafbáturinn Sea Dragon eigi að fara frá Atlants- hafi um norðurskaut til Kyrra- hafs í ágúst í sumar. Verður hann þá fyrsti kjarn- orkukafbáturinn, sem fer um norðurskaut þessa leið. Sea Dra- gon er nýr kjarnorkukafbátur, 2630 smálesetir að stærð. Hverfa Bretar frá Greenwicb-tíma? Hefir kontiS til or5a til að forðast glundroða í tímamælingum. Bretar kunna að leggja niður að öll V.-Evrópa hafi sama upp Mið-Evróputímann, þannig Greenwich meðaltímann og taka tíma. Mundi þá girt fyrir tals- verðan glundroða. Innanríkisráðuneytið lét fara fram skoðanakönnun um álit •pinberra stofnanna á brcyting- unni og voru flestar fylgjandi breytingunni. Meginástæðurnar fyrir breyt- ingunni eru þessar: Sameigin- legur tími um alla Evrópu mundu auðvelda verzlun og samgöngur. Heimili mundu spara rafmagns- og hitunar- kostnað. Breytingin gæti orðið til að draga úr slysurn og af- brotum. Fleiri ástæður eru upp taldar, en það sem á hinn bóginn er talið mæla á móti breytingunni er að erfitt mundi að hreinsa göturnar á vetrum áður en umferðin hefst. Formælandi innanríkisráðu- neytisins sagði, að stöðug væri rekinn áróður fyrir breyting- únni. Muni ráðuneytið taka .breytinguna til athugunar. Fákur ætlar að byggja yfir hundruð hesta. Við skeiðvöllinn „búa64 nú þegar 58 hestar. Það verður mikið um að vera á skeiðvellinum við EMiðaár á morgun, þá verður efnt til fyrstu firmakeppni Fáks, sem haldin verður til ágóða fyrir starfsemi félagsins, eins og get- Grímseyingar snúa heim. Akureyri í gær. Eins og áður hefur verið get- ið í fréttum héðan, eru ýmsar framkvæmdir á döfinni í Gríms ey, og hefur mjög lyfzt brúnin á Grímseyingum, eldri og yngri, við þau tíðindi. Vitað er um fólk, sem áður bjó í Grímsey og flutt var al- farið burt úr eynni, sem hefur nú ákveðið að snúa heim aftur. og fara hvergi. ið er annars staðar í blaðinu. Félagið hefur staðið í stór- ræðum að undanförnu, því að 11. nóvember var hafin á veg- um þess bygging mesta hest- húss á landinu og í febrúar fluttu íbúarnir inn (biðu ekki eftir 14. maí), en þarna eru alls á fóðrum 58 hestar. Er ætlunin, að í framtiðinni verði þarna hús yfir 400 hesta. Ljósmyndari Vísis skrapp inn eftir í fyrradag og tÞk nokkrar myndir af hestunum. Fer hið bezta um þá þarna, enda húsakynnin vönduð í alla staði, og sér um þá einn maður, ; Sigurður Sigurðsson, ættaður ofan úr sveit. Byrjar hann kl. 7 á morgnana að gefa þeim, brynna, kemba og þar eftir göt- unum. Um klukkan fjögur er * svo gefið öðru sinni. Hún Rauðhetta — hvít með rauða húfu og hvíta blesu — heíur fengið veður af því, að liann Sigúrður sé að nálgast mcð hafrana. Enginn vafi leikur á, að henni þykja hafrar góðir. — (Myndirnar tók P. Ó. Þ.)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.