Vísir - 30.05.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 30.05.1960, Blaðsíða 1
12 síður 12 síður 80. árg. Fregn um það frá Israel. Sá kvittur hefir gosið upp, að Martin Bormann, stað- gengill Hitlers, sé enn á lífi. Almennt var talið, að Bor- mann hefði beðið bana eða svift sig lífi í Berlín fyrir 15 | árum, þegar ríki Hitlers var | lirunið í rúst og barizt var í borginni. Eftir að upplýst varð um handtöku Gyðinga- morðingjans Adolf Eich- manns í Israel, barst það ein- mitt út um lönd frá Israel, að Bormann væri á lífi og sömu fregnir herma, að hann muni hafa verið búsettur í Bahia í Brazilíu fyrir nokkr- lun árum. Mun nú verða reynt að ganga úr skugga um, hvað hæft sé í þessu. „Duflar vii) Breta. Brezkt herskip var í gær beðið að aðstoða íslenzkan togara, sem hafði fengið tund- urdufl í vörpuna, og urðu sjó- liðar þegar við beiðninni og gerðu duflið óvirkt. Varðskipið Þór sendi í morg- un skeyti til Landahelgisgæzl- unnar, þar sem skýrt er frá því að togarinn Steingrímur Trölli sem staddur var út af Húnaflóa 1 gær, hafi fengið tundurdufl í vörpuna. — Brezka herskipið Dainty, sem statt var þar skammt frá, var beðið um að- stoð til að gera duflið óvirkt. Varð skipherra þegar við þeirri beiðni, og fóru sjáliðar um borð í toearann og gerðu duflið ó- virkt. Að því loknu var Bret- um þökkuð aðstoðin, og her- skipið hélt á brott. . Rhee til Hawaii og Bandaríkjanna. Syngman Rhee Kóreuforseti og kona hans lögðu af stað frá Seoul í gær áleiðis til Banda- ríkjanna. Þau komu til Honolulu í gær- kvöldi og hafa.þar viðdvöl sér til hvíldar og hressingar. Mánudaginn 30. maí 1960 120. tbh Máðstehia A.. S. I.: ■ H m aKvoroun in um aðgerðir. Þó á ah hefja „undirbúning baráttu/#. Þetta er meirihluti hinnar ungu skipshafnar á „Auði“. Hinir voru niðri í káetu svo önnum kafnir við að búa um rúmin sín, þar sem þeir eiga að sofa næstu 20 nætur, að þeir máttu ekki vera að því að stilla sér upp fyrir myndavélina. (Sjá frétt á 12. síðu) Breyting á upphæð ferða- gjaldeyris væntanleg. Innflutningsskrifstofan hættir á miðvikudag. f framhaldi af fregnum um mikla aðsókn í farseðla með flugvélum og skipum til ann- arra landa í sumar, sneri fréttamaður Vísis sér til Inn- flutningsskrifstofunnar og Landsbankans í morgun, og spurðist fyrir um úthlutun og aðsókn ferðamannagjaldeyri. Það virðist ekki hafa verið áberandi, að fleiri sæki urrt slíkan gjaldeyri í ár en endra- nær, þótt mikið sé að gera við þessa afgreiðslu, enda hefur mikið verið um ýmiskonar mót erlendis, og má m.a. nefna bridge-mót, sýninguna í Hann- over, Olympíuleikana o. fl. Annars eru þessi mál frekar í lausu lofti þessa dagana, því að nú mun Innflutningsskrif- stofan verða lögð niður núna um mánaðamótin, og bankarn- ir sjálfir hafa afgreiðslu þess- ara mála. Hingað til hefur það verið regla hjá Innflutnings nefnd, að hver maður fái sem svarar 40 sterlingspundum í farareyri, en heyrzt hefur — í ræðu viðskiptamálaráðherra fyrir skemmstu — að úthlutað muni1 verða 70 sterlingspund- um á hvern farseðil í framtíð- inni. Engin reglugerð eða fyrir- mæli hafa enn borizt bönkum um þetta, og er beðið eftir því að slík fyrirmæli berist nú síð- ar í vikunni. Eins og getið var í Vísi fyrir helgi, boðaði stjórn Alþýðusam- bands Islands til ráðstefnu að- ildarfélaga sinna um launamál um þessa helgi. | Hófst ráðstefnn á laugardag og lauk s'íðdegis í gær. Voru skoðanir manna nokkuð skipt- ar um það, hvernig Alþýðusam- bandið og félög þess ættu að bregðast við þeim ráðstöfunum, sem ríkisstjórnin gerir 1 efna- hagsmálunum, en úrslit ráð- stefnunnar urðu sú, að engin ákvörðun var tekin um að láta til skarar skríða gegn stjrón-j inni. Fundurinn samþykkti að end- ingu eftirfarandi ályktun: „Frá því að verkalýðsfélögin hækkuðu almennt kauptaxta sína á árinu 1958 hafa kaup- gjaldsákvæði í samningum þeirra tvívegis verið skert með lagaboði, og nú síðast með því að afnema með öllu rétt laun- þega til að fá kauphækkanir eftir vísitölu í vaxandi dýrtíð. Ráðstefnan telur, að með þessum ráðstöfunum hafi samn- ingsbundinn réttur verkalýðs- félaganna verið freklega skert- ur og mótmælir því harðlega. Afleiðing gengisfellingar og annarra ráðstafana eru þær, að nýju dýrtíðarflóði hefur verið hleypt af stað. Verðhækkanir á flestum sviðum eru nú meiri Meðvitundarláus í tvö ár. f Oxford liggur stúlka í sjúkrahúsi. Hefur hún legið þar meðvitundarlaus í 2 ár. Hún heitir Veronica Wise og er 22 ára. Meðvitundina. missti hún í bifreiðarslysi. en dæmi eru til, að komið hafi í einu, og þegar sjáanlegt, að þær verða meiri en gert vr ráð fyrir í byrjun. Allt launafólk hefur því orðið fyrir mikilli kjaraskerðingu og augljóst, að sú skerðing muni enn aukast mikið. Hætta er á, að ríkjandi stefna muni, ásamt minnkandi kaupmætti, leiða til samdrattar í framleiðslu og framkvæmdum og þar af leið- andi minnkandi atvinnu og' jafn vel atvinnuleysis, verði ekki að gert í tíma. Launakjör verkafólks hafa um langt skeið verið með þeim hætti, að ókleift hefur verið að lifa af 8 stunda vinnudegi og er kaupgjald íslenzkra verka- Framh. á 11. síðu. Tuttugu gulir káiómetrar í bænum. Þar sem slikur litur er á gangstéttarhrún, má ekki skilja bifreið eftir. Það eru orð að sönnu, að það er verið að úthýsa bifreiða- eigendum úr miðbænum með bifreiðir sínar. Hvar sem þeir koma og ætla að leggja bifreið sinni, blasa við þeim bann- skilti eða gular gangstéttar- brúnir. Verkfræðingur umferðar- nefndar, Ásgeir Þór Ásgeirss., upplýsti nýlega við fréttamann Vísis, að um 20 kílómetrar af ■ gangstéttarbrúnum væru gul málaðar hér í bænum, með 15 sm. breiðum borða á gang- stéttarbrún, og að allar líkur bendi til þess að þessi litur muni aukast á næstu árum. Yfirleitt mun stefnt að því, að banna bifreiðarstöður við gangstéttarbrúnir, en í þess stað reynt að auka fjölbifreiða- stæði að sama skapi. Við málun á gangstéttum er notuð amerísk málning, og hef- ur einn maður nóg að gera við þetta starf allt árið um kring, en þess utan sér liann einnig um uppsetningu og viðhald’um ferðamerkja. Gangstéttir erti yfirleitt málaðar einu sinni á ári hverju, nema þær sem mest mæðir á. Ásgeir benti á, að sumsstaðar væru gangstéttarbrúnir málað- ! ar með brotnum gulum strik- ' um, en það 'þýðir að þar mega . strætisvagnar hafa viðdvöl — i aðeins. Það er ástæða til að spyrja: Er þetta verðandi skipstjóri? — Hann er líklegur til, blessaður karlinn. Hann er nú reyndar ekki enn nema 12 ára og fór í fyrstu sjóferðina á laugardag. Dagbjartur Þór Sigurbrandsson heitir hann og er yngsti skip- verjinn á, skólaskipinu „Auði“. (S.íá frétt á 12. síðu)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.