Tölvumál - 01.12.1985, Blaðsíða 12
12
VARÐVEISLA OG EFLING íSLENSKRAR TUNGU
1. desember s.l. boðaði menntamálaráðherra Sverrir
Hermannsson til ráðstefnu 1 Þjððleikhúsinu um
varðveislu og eflingu Islenskrar tungu. Þrjár
ályktanir voru samþykktar á ráðstefnunni. Sú fyrsta er
svohljððandi:
'Vegna þeirrar áhættu fyrir tunguna sem fylgir þvl að
taka ný tæki I notkun á vinnustöðum og vegna þeirrar
málblöndunar, sem þegar hefur átt sér stað, beinir
ráðstefnan þeim tilmælum til forystumanna
vinnumarkaðarins, einstakra vinnusvæða og almennt til
starfandi fðlks, að það beiti sér fyrir kosningu
málnefnda hvert á slnu sviði, sem freisti þess að finna
Islensk orð yfir tæki og verkheiti, sem eru ný af
nálinni eða koma til sögu I framtíðinni og sjái til
þess að hin nýju orð verði öllum kunn. Jafnframt
þakkar ráðstefnan þeim, sem þegar hafa komið upp
málnefndum á slnum vettvangi eða hafa þær I
undirbúningi."
Hvert sæti var skipað I húsinu. Fjölmörg erindi voru
flutt af aðilum ýmissa stofnana og félaga, sem láta sér
þessi mál skipta. Af undirtektum ráðstefnugesta mátti
ráða, að víðtækur áhugi er fyrir þvl að standa vörð um
íslenska tungu. Skýrslutæknifélagið fagnar þeim áhuga
og vonar aó hann verði til þess að enn meiri skilningur
og áhugi verði fyrir starfi Orðanefndar Skýrslutækni-
félagsins, en eins og lesendum TÖLVUMÁLA er kunnugt,
hefur orðanefnd starfað á vegum félagsins I allmörg ár.
Formaður hennar er Sigrún Helgadðttir og var hún
fulltrúi félagsins á ofangreindri ráðstefnu. TÖLVUMÁL
birtir hér erindi hennar, sem gefur góða innsýn I störf
nefndarinnar fyrr og nú. -kþ.
Sigrún Helgadðttir:
Ég tala hér sem fulltrúi Skýrslutæknifélags Islands og
Orðanefndar þess. Skýrslutæknifélag íslands var
stofnað árið 1968. Það er félag áhugamanna um
tölvutækni og gangavinnslu. Tilgangur þess er að
stuðla að góðum vinnubrögðum við gagnavinnslu 1 hvers
konar rekstri og við tækni- og vísindastörf. Skömmu
eftir stofnun Skýrslutæknifélagsins var hafist handa
um að þýða erlend orð um tölvur og gangavinnslu og var