Vísir - 07.05.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 07.05.1962, Blaðsíða 1
Vel heppnuð tilraunaveiðiför Hallveig fékk 900 tunnur í einu kusti Hraðfíutt tfí heila■ skarðar / Höfn Aðfaranótt sunnudags var fár- veik íslenzk stúlka flutt í ofboði með herflugvél frá Keflavíkur- flugvelli til Kaupmannahafnar, til skyndiaðgerðar hjá hinum heimsfræga heilaskurðiækni Busch prófessor. Stúlkan gekk með heilaæxli, sem hún hefir þjáðst af og var í dái, er komið var með hana suðureftir, rétt um óttu á sunnu- dag. Ekki hafði reynzt mögu- legt að fá aðra flugvél þessa stundina og því leitað til varnar- liðsins á Keflavíkurvelli, sem brást vel við og lánaði flugvél. Lagði hún af stað kl. 3,30 að morgni sunnudags og lenti á Kastrupflugvelli eftir 5 stunda flug. Tvær hjúkrunarkonur fylgdu hinni veiku stúlku út, Inga Borg frá Reykjavík og Joanne Williams frá sjúkrahúsi flotans á Keflavíkurflugvelli. Verzlunarfulltrúi til Afríku? Utanríkisráðuneytið hefur haft til athugunar undanfarið, hvort tímabært sé að senda íslenzkan ^ Fyrsti leikurinn Knattspyrnutíminn er haf-* 1 inn. Þetta er Ijósmynd Vísis' af fyrsta leiknum, sem fram I fór I gær á Melavellinum. Vai f ur og Þróttur kepptu. Leik-1 mönnum fannst völlurinn enn , vera all gljúpur. Á myndinni ( sést hvar Matthías Hjartar- son í Val skallar á markið en 1 hinn ágæti markvörður Þrótt I ar Þórður ver. Leikar fóru | svo að Valur sigraði með 4| mörkum gegn 0 og sýndi yfir, burði í Ieik. verzlunarfulltrúa til Afríku. Hefur ráðuneytið haft um þetta samráð við skreiðarútflytjendur, sem hafa mikinn áhuga fyrir þessu máli. Heildarverðmæti skreiðarút- flutningsins var á síðasta ári 20(1 milljónir króna og fór mestur hluti skreiðarinnar til Afríku. Nigería er það land sem mest kaupir af skreið og er því líklegt að slíkur fulltrúi yrði staðsettur þar. Nokkrum vandkvæðum er bundið að senda mann þangað, þar sem loftsiag er mjög óheilnæmt og ólíklegt að menn vilji flytja þangað með fjölskyldu sína. Samkvæmt upplýsingum sem Agnar Klemens Jónsson, ráðuneyt- isstjóri utanríkisráðuneytisins, gaf blaðinu í morgun hefur endanleg ákvörðun ekki enn verið tekin, en búast má við að það verði á þessu ári. Sagði hann að hér væri um að ræða svo mikinn þátt í útflutn- ingi okkar að ráðuneytið teldi eðli- legt að greiða fyrir honum á hvern hátt sem hægt væri. TOGARINN Hallveig Fróðadótt- ir ,sem lét úr höfn f gær til síld- veiða, fékk gott kast suður af Jökli, að því er Vísir frétti í morgun. Er blaðið hafði samband við Bæjarútgerðina um kl. 11 fékkst á þessu staðfesting, en ekki var vitað um hve mikið magn var að ræða. Þegar blaðið átti tal við BÚR var ekki búið að ákveða hvar aflanum yrði landað. Vísir frétti síðar, að Hallveig hefði fengið 900 tunnur og mundi hafa fengið þennan afla í einu kasti. Haft er eftir skiþ- verjum á Hallveigu, að þeir láti mjög vel yfir hversu þægilegt sé að vinna með tækjunum, þ.e. hringnótinni og kraftblökkinni, en það er í fyrsta skipti, sem þessi stórvirku tæki eru notuð hér á togara við síldveiðarnar. 1 gær fékk Jón Trausti 1300 tunnur og fór með aflann til Akraness, en Guðmundur Þórð- arson fékk 1600 tunnur og mun hafa farið til Patreksfjarðar, en ekki hafði blaðið þó fengið það staðfest. Fleiri bátar fengu sild í gær og aflahorfur góðar. Bílar springa Á Iaugardagskvöldið urðu tveir drengir valdir að veruleg- um brunaskemmdum á tveim bif reiðum, auk þess sem minnstu munaði að annar drengjanna yrði fyrir stórslysi. Þetta óhapp skeði um klukk- an 7 síðdegis á laugardaginn við bílasöluna, sem er til húsa á sviðinu við Hallveigarstíg og Ingólfsstræti. Tveir drengir, sennilega 5 ára gamlir, voru að leika sér með eldspýtur. Ann- ar drengjanna bar eldspýtu að vörubíl, sem stóð þar á svæð- inu og að benzíntánknum sem var utan á bílnum og hefur lík lega staðið opinn. Skipti það engum togum að í benzíninu kviknaði og varð af mikil sprenging. Rifnaði benzfntank- Framhald ð us 5. Greiða 40% annars reknir Fundur var haldinn í Sjó-og voru tvö mál til umræðu, mannaféiagi Reykjavíkur í gær, kaup félagsins á húsi og Karls- cfnismálið. í fyrrnefnda málinu var gerð samþykkt um það, að stjórn fé- lagsins skuli heimilt að festa kaup á húseign hf. Sanitas við Lindargötu — ásamt Dagsbrún — ef um semst við eigendur byggingarinnar. Miklar umræður urðu um mál efni Karlefnismanna, og voru ■ allir, sem til máls tóku, sammála I um, að ekki kæmi til mála að ! sleppa þeim með öllu við refs- | ingu vegna þess að þeir sam- þykktu að fara veiðiförina, sem mestur styrr stóð um í síðasta mánuði. Sumir vildu þó fara vægt í sakirnar gagnvart mönn- unum, en aðrir lögðu til, að geng ið yrði fram í máliríu af enn meiri hörku. Að endingu var samþykkt, að Halldóri Ingimarssyni skip- stjóra, sem verið hefir í Sjó- mannafélaginu frá fornu fari, skuli vikið úr því, en öðrum skipverjum, sem eru meðlimir félagsins, gefinn kostur á að greiða 40% af tekjum umræddr- ar veiðiferðar í sjóði félagsins að viðlögðum brottrekstri ella. Þá var og samþykkt, að félög, sem aðrir skipverjar eru félagar í, skuli látin vita um þessa á- kvörðun Sjómannafélagsins. Gylfi Þ. og Haralz komnir Viðskiptamálaráðherra Gylfi Þ Gislason kom heim frá Frakk landi og Ítalíu í gær. Hafði hann 1 átt viðræður við fulltrúa ríkis- stjómar þessara landa til að i skýre afstöðu Islands tii þátt- töku í Efnahagsbandalagi Evrópu. Með ráðherranum í förinni var Jónas Haralz ráðu- neytisstjóri. Þeir fóru fyrst til Parísar og Framhald á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.