Vísir - 26.05.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 26.05.1962, Blaðsíða 1
VISIR 52. árg. i— Laugardagur 26. maí 1962. — 118. tbl. Veljum borginni einhuga stjórn Bjarni Benediktsson. Geir Hallgrímsson. Ólafur Thors. J umræðunum nú fyrir borgarstjórnarkosn- ingamar hefur komið í ljós, að gagnrýni andstöðuflokkanna á stjóm borgarinnar er kraftlaus. Borgarmálefnum hefur verið stjórn- að með ötulleik, og víðsýni. Sjálfstæðismenn einir eru þess umkomnir að veita þá styrku stjórn, sem á þarf að halda, og hafa lagt fram ítarlegar áætlanir um nytsamar framkvæmdir á næstu árum. Geir Hallgrímsson nýtur trausts allra, sem hann þekkja, og árásimar á hann eru þess eðlis, að þær eru til skammar þeim, er þær bera fram. Árangur viðreisnarstefnu ríkisstjómarinnar lýsir sér í stórbættum hag þjóðarinnar inn á við og út á við. Þar með er lagður grundvöll- ur að batnandi kjörum alls almennings. Eitt af því, sem áunnizt hefur og ekki hið lítils- verðasta, er, að nú gætir miklu meira hófs í kröfugerð um kauphækkanir en áður. Með því eru skapaðar meiri Iíkur fyrir því, að hækk- anir renni ekki allar út í sandinn heldur geti orðið til þess að bæta lífskjörin raunverulega. Framh. á 5. síðu. jþað skiptir öllu máli, að kjósendur geti skap- að stjómendum aðhald, — að til sé hreinn meirihluti innan borgarstjómar, sem ber ó- skipta ábyrgð gagnvart borgarbúum. Við Sjálfstæðismenn höfum gert Reykvík- ingum grein fyrir gerðum okkar á síðasta kjör- tímabili og förum fram á endurkosningu í borgarstjóm á grundvelli þeirra gerða og þeirrar stefnu, er við höfum markað til úr- lausnar framtíðarverkefnum. Okkur er ljóst, að framtíðaráætlanir okkar eru byggðar á bjartsýni og vinwa þarf af alúð og ábyrgðartilfinningu að framkvæmd þeirra, — en sú ábyrgðartilfinning verður ekki til staðar í borgarstjóm, — nema einn flokkur nái þar meirihluta, Þessa síðustu daga hafa margir spurt mig þeirrar spurningar, hvort ég álíti að Sjálfstæð- isflokkurinn fái enn meirihluta í höfuðborg- inni. Ég hef þá bent á þá staðreynd, að í síð- ustu almennu kosningunum, þingkosningunum 1959, vantaði Sjálfstæðisflokkinn nær því 2400 Framh. á 5. síðu. J£osningabaráttan er að enda. Þeir, sem fylgzt hafa með ræðuhöldum og blaðaskrifum vita að boðskapurinn er þessi: Við Sjálfstæðismenn emm ef til vill dálít- ið hreyknir af afrekum fortíðarinnar og jafn- framt ráðnir í að láta ekki hlut framtíðarinnar eftir liggja. Hinir væntanlegu nýju valdhafar með Geir borgarstjóra í fararbroddi ætla sér ekki að lifa á fomri frægð heldur vilja þeir verða sælir af sjálfs sín gerðum. Boðskapur andstæðinganna er dálítið sund- urleitur og raunar spaugilegur. Þeir segja allir í kór: Sjálfstæðisflokkurinn er a. m. k. ekki verri en svo að hann á vísan meirihlutann í borgar- stjóm. En, bæta þeir við, hann þarf „aðhald“, þess vegna gildir að meirihluti Sjálfstæðis- manna verði sem minnstur. Þetta er auðvitað hugsunarvllla eins og líka hlaut að vera, úr því þessir 6 sjálfum sér sund- urþykku andstæðingar okkar gátu sameinazt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið til þess að Framh. á 5. síðu. 1i-_ | Hluti hins mikla mannfjölda á kosningafundi Sjálfstæðisflokksins í gærkvöldi. Ólafur Thors forsætisráðherra í ræðustóli.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.