Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 29. maí 1962. Otgefandi Blaðaútgáfan VISIH Ritstjórar: Hersteinr Pálsson Gunnar Q Schram. Aðstoðarritstjóri AxeJ rhorsteinsson. Fréttastjóri Þorsteinn Ö. Thorarensen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 45 krórrur á mánuði. I lausasölu 3 kr eint - Sími 1166C (5 Ifnur) Prentsmiðja Vísis - Edda h.f. ^— -------------— . _______________________________i Jákvæður dómur Vísir átti í gær tal við þrjá af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins og sögðu þeir hér í blaðinu álit sitt á úrslitum kosninganna. Ólafur Thors forsætisráðherra undirstrikaði í um- mælum sínum það höfuðatriði að úrslitin eru traust- yfirlýsing til ríkisstjórnarinnar. Um sama atriði sagði Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra: „Eftir fall vinstri stjórnarinnar gerbreyttust viðhorfin. Að svo miklu leyti sem nú er ekki kosið um sveitarstjórnar- mál á hverjum stað er kosið um núverandi stjórnar- stefnu. Mega Sjálfstæðismenn vel una við þann dóm, sem felst í úrslitum kosninganna.“ Andstæðingum Sjálfstæðisflokksins mun óljúft að viðurkenna sannleiksgildi þessara ummæla. Að all- miklu leyti snerust kosningarnar um málefni hvers einstaks bæjar- og sveitarfélags. En hitt er lýðum Ijóst, að hér var líka felldur dómur yfir verkum ríkis- stjórnarinnar. Þetta eru fyrstu kosningarnar, sem haldnar eru eftir að Ólafur Thors myndaði ríkisstjórn sína 1959. Nú hefir kjósendum gefizt kostur á að segja álit sitt á þeirri stjórnarstefnu, sem fylgt hefir verið. Sá dómur hefir verið jákvæður. Megin stjórnarflokk- urinn, Sjálfstæðisflokkurinn, hefir haldið fylgi sínu víðast hvar og sums staðar unnið allverulega á frá því í alþingiskosningunum 1959. Framsókn og kommúnistar hafa misserum sam- an haldið uppi þrálátri rógsiðju um öll verk ríkis- stjórnarinnar. Kosningaúrslitin sýna að af því sæði hefir ekki orðið blómleg uppskera. Hinn góði efna- hagur þjóðarinnar er gleggsta vitnið um það að styrk- ar hendur hafa haldið um stjórnvölinn og mestu erf- iðleikarnir eru að baki. Utan gufuhvolfsins Enn á ný hafa Bandaríkjamenn sent mann í geim- fari umhverfis jörðu. Ferð Carpenters virðist hafa tek- izt hið bezta eftir blaðafregnum að dæma, og ýktar hinar fyrstu frásagnir af erfiðleikum hans og þreytu á ferðinni. Bandaríkin hafa enn einu sinni sýnt að þau standa Rússum á sporði í tæknikapphlaupinu. Hugvitið er þar engu síðra en hjá hinu austræna stór- veldi, sem allt kapp hefir lagt á geimferðavísindi á síðustu árum. Sú spurning sem smáþjóðir, eins og við íslend- ingar, spyrjum hins vegar, er við stöndum andspæn- is þessum miklu tækniafrekum er: Verður mannvit- ið notað á þessu sviði til þess að bæta líf þjóða eða verður það notað í þágu manndrápa og yfirgangs? Á miklu ríður að samkomulag náist með stórveldun- um um friðsamlega sambúð utan gufuhvolfsins sem innan. Fulltrúar íslands á alþjóðavettvangi eiga að leggja lóð sitt á vogarskálina ásamt fulltrúum ann- arra smærri ríkja í því efni. VÍSIR Salan hrósar sigri Dómurinn yfir Raoul Salan hershöfðingja kom eins og reiðarslag yfir frönsku þjóð- ina. Varla hafði nokkrum manni komið annað til hugar en að hann yrði dæmdur til dauða. Hann hafði verið æðsti yf- irmaður OAS-samtakanna, nafði sjálfur skipulagt her ferð morða og sprengjutil- ræða í Alsír og Frakklandi. Nokkru áður hafði undir- maður hans Edmond Jou- haud hershöfðingi verið dæmdur til dauða og bíður nú aftöku í Santé fangelsi. Þó er á engan hátt hægt að segja að sök hans hafi verið meiri en Salans. Þrátt fyrir þetta komst dómstóllinn að þeirri niður- stöðu að Salan skyldi ekki dæmdur til dauða heldur í ævilangt fangelsi. ★ Þegar þessi frétt barst út safnaðist fólk saman í hópum kringum blaðasala á götum Parísar, las fréttina, gapti af undrun, trúði ekki sínum eig- in augum. í Frakklandi er til, eins og í mörgum öðrum löndum, fél- agsskapur, sem berst fyrir af- námi dauðarefsinga. Ekki hafði sá félagsskapur neitt haft- sig í frammi til að mótmæla því að Salan yrði dæmdur til dauða, því að hann ber ábyrgð á svo ægilegum hryðjuverkum, að mönnum reyndist erfitt að bera í bætifláka fyrir hann. En nú eftir að þessi dómur var kveðinn upp segja menn, að hann jafngildi nær því af- námi dauðarefsingar, því að fyrst Salan var ekki dæmdur til dauða, þá verður héðan f frá ekki hægt að dæma neinn franskan afbrotamann til dauða því að ólíklegt er að nokkur franskur borgari geti haft al- varlegri glæpi á samvizkunni. ★ Auðvitað fögnuðu hinir rót- tæku hægri menn í Frakklandi þessum dómi og í fylkingum OAS manna sjálfra ríkti sigur- gleði. En de Gaulle forseta og rík- isstjórn hans varð svarafátt. Dómurinn kom þeim algerlega á óvart. Kallaði de Gaulle í skyndi saman ráðherrafund, þar sem rætt var um hlið al- varlega ástand sem dómur þessi hefði skapað. Skömmu síðar gaf ríkisstjórnin út tilkynningu um málið. Hún gat að vlsu ekki véfengt dóminn, en hún lét í ljósi ótta við þær afleið- ingar sem dómurinn hefði í för með sér. ★ Réttarhöldin yfir Salan voru ekki aðeins yfir honum sjálf- um persónulega, heldur yfir OAS hreyfingunni í heild. Spurningin var um það hvort nokkur afsökun væri til fyrir morðæði þeirra. Þessi spurn- ' ing kafaði niður f dýpstu fylgsni frarfskrar þjóðarsálar. Hún var alvarleg samvizku- spurning allra Frakka. Þorri frönsku þjóðarinnar getur ekki viðurkennt neina réttlætingu á glæpaverkunum, en þó leynist með mönnum sú hugmynd að barátta OAS-samtakanna sé sprottin af þjóðernislegum hvöt um, hún sé aðeins liður í styr- öld tveggja þjóða, sem berjist fyrir tilveru sinni og í felast glæður af frönsku þjóðarstolti. Þó Salan sjálfur hafi ekki verið sýknaður heldur dæmd- ur í ævilangt fangelsi er vfða litið á dóminn sem einskonar sýknudóm yfir OAS-samtökun- um. Dómurinn hefur í reynd- inni ekki staðfest það að OAS séu glæpasamtök, heldur kenn- ir þess að hin pólitíska og þjóð lega hlið samtakanna sé viður- kennd. Menn velta því mjög fyrir sér, hvernig hafi staðið á því að dómararnir, fjórir hershöfð- ingjar og fimm borgarar brugð- ust svo. Það getur verið að þeir hafi verið hræddir vegna þess að OAS-samtökin hótuðu því að útrýma þeim ef þeir dæmdu Salan til dauða. Það er enginn vafi á því að menn eru hræddir við OAS. Hinn opinberi saksóknari í mál inu nefndi t.d. aldrei berum orðum dauðadóm heldur fór hann krókaleiðir í ræðum sín- um, krafðist þeirrar refsingar, sem ekki yrði hægt að taka aftur. Svo virðist sem de Gaulle for seti geti engum treyst, alls- staðar í öllum stöðum og em- bættum, innan lögreglu og hers eru fyrir menn sem hafa óljósa samúð eða ótta fyrir OAS- •samtökunum. Það hefur t. d. komið í ljós við réttarhöldin, að Salan hershöfðingi hefur ætíð fengið nákvæmar fréttir af öllu því sem gerzt hefur á fundum sjálfrar ríkisstjórnar- innar. Og það er ennfremur upplýst, að hann hélt áfram að skipuleggja glæpastarfsemi OAS eftir að hann var settur inn í fangelsi í París. Jafnvel þar í fangelsinu átti hann sína fylgismenn í liði fangavarð- anna. Vegna þessa má vera að mál hans verði tekið upp aft- ur og hann þá dæmdur til dauða fyrir að skipuleggja morð í sjálfri fangavistinni. Þá hefur það haft áhrif á dómarana að verjendur Salans héldu mjög vel og varlega á málinu. Þeir forðuðust að stofna til æsinga, en lögðu á- herzlu á það, að OAS hefur tek ið við hlutverki þeirra sem gerðu byltingu 13. maí 1958 og komu de Gaulle þá til valda. Það var þessi bylting sem var upphaf fimmta lýðveldisins og OAS-samtökin eru arftaki henn ar og stefnir áfram að sama markmiði. Það markmið, sem er grundvöllur núverandi lýð- veldis getur ekki talizt glæp- samlegt, þótt de Gaulle hafi farið inn á allt aðrar brautir. Það hefur ennfremur haft sín áhrif, að allir fjórir hers- höfðingjarnir í dómstólnum höfðú starfað lengri eða Framh. á 10. síðu. Réttlætisgyðjan með brotið sverð eftir Salan-dóminn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.