Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 19

Tölvumál - 01.01.1990, Blaðsíða 19
Tölvumál janúar 1990 Jón Freyr Jóhannsson tölvunarfræðingurhjá SKÝRR AUTO-MATE PLUS: Verkfæri fyrir LSDM aðferðina Hjáfyrirtceki eins og SKÝRR er auðvitað mikil hagrœðing íþví að nota eina kerfisfrœðiaðferð í stað þess að þurfa að viðhalda þekkingu starfsmanna á fleirum. Ég ætla að kynna stuttlega CASE- verkfærið AUTO-MATE PLUS (AM+) fráLBMS (LBMS er skammstöfun á Learmonth & Burchett Management Systems, sem er breskt ráðgjafafyrirtæki). Undirritaður hefur kynnst AM+ í starfi sínu við hugbúnaðargerð hjá SKÝRR. Ekki er ætlunin að kynna AM+ ítarlega, en þau atriði sem ég ætla að nefna eru: - Grunnur AUTO-MATE PLUS í LSDM-aðferðinni - Hvaða hluta hugbúnaðarferilsins spannar AUTO-MATE PLUS og hvað tekur við í framhaldi af AUTO-MATE PLUS í hugbúnaðarferlinum ? - Hvers vegna notum við AUTO- MATE PLUS hjá SKÝRR? - Hvað vinnst með notkun AUTO- MATE PLUS og hver er reynsla SKÝRR? - Hönnun, frágangur og annmarkar AUTO-MATE PLUS og vænlanlegar úrbætur. HVAÐ ER LSDM? AUTO-MATE PLUS byggir á LSDM-aðferðinni. LSDM stendur fyrir LBMS Structured Development Method, sem kalla má LBMS kerfisfræðiaðferðina. LSDM er viðurkennd kerfisbundin aðferð við greiningu og hönnun, hvort sem um er að ræða greiningu á handvirkum eða vélvæddum ferlum. Einn styrkur LSDM liggur í því að aðferðin byggir ekki á einni fræðilegri aðferð heldur á samtíningi af aðferðum og samþættingu þeirra í eina heild. Aðferðin skiptist í áfanga, sem síðan er skipt í þætti og hverjum þætti fylgir verkefnalisti. í LSDM- aðferðinni eru gögn og gagnaflæði útgangsatriði og LSDM notar myndmál og texta til að lýsa gögnum og kerfum. Myndmálið er mjög sterkt 'tæki' til yfirsýnar meðan textinn fjallar um smáatriðin. Svið AUTO-MATE PLUS í hugbúnaðarferlinum. Skoðum nú hvaða hluta (eða svið) hugbúnaðarferilsins AM+ spannar. Með einföldun má líta á hugbúnaðarferilinn sem hér segir: - Stefnumótun fyrirtækis eða stofnunar í upplýsingatækni. - Greining eldri kerfa (handvirkra eða vélvæddra). - Greining þarfa nýs kerfis. - Hönnun kerfis. - Kerfissetning, þ.e. forritun, prófun, uppsetning og fleira því líkt. - Viðhald sem tengist síðan aftur ferlinum í gegnum endurhönnun. (Viðhald er því í eðli sínu greiningarþáttur.) AUTO-MATE PLUS tekur yfir þann hluta ferilsins sem markast af greiningu og hönnun. Segja má að lítið brot kerfissetningar falli inn í AM+ því uppsetningu skráa er hægt að vinna með AM+ eins og síðar verður vikið að. Ég lít svo á að viðhaldið falli einnig alveg innan ramma AM+, því viðhald er í eðli sínu greiningarþáttur sem síðan fylgir endurhönnun. Forritunina sem slíka er ekki rétt að kalla viðhald, heldur er hún (oftast) afleiðing af endurhönnun í framhaldi af endurgreiningu, sem við köllum viðhald. Hvað tekur við þar sem AM+ skilur við okkur á hugbúnaðarferlinum, þ.e.a.s. hvað gerist þegar 'ýtt er á takkann'? Auk sjálfsagðra hluta eins og kerfislýsinga, atriðaorðasafns, einindalýsinga, lýsinga á færslum, aðgerðum, flæði skjámynda o.fl., þá skilgreinir LSDM kerfísbundnar aðferðir til að vinna skráarlýsingar fyrir eftirtalin gagnasafnskerfi úr gögnum LSDM-ferilsins. -ADABAS-ORACLE - IMS - INGRES - IDMS - SEED - IMAGE - dBASE III - VSAM - DB2 og fleiri 19

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.