Vísir - 31.08.1962, Blaðsíða 1
VISIR
52. árg. — Föstudagur 31. ágúst 1962. — 204. tbl.
Dómnefnd skipuð
am forstöðumann
Umsóknarfrestur um stöðu for-
stöðumanns Handritastofnunarinn-
ar er runninn út og hafa fjórir
menn sótt um starfið. Eru það þeir
dr. Einar Ólafur Sveinsson prófes-
sor, dr. Jakob Benediktsson, Jónas
Kristjánsson skjalavörður og Ólaf-
ur Halidórsson magister.
Dómnefnd mun verða skipuð, til
að dæma um hæfni þessara manna
til starfsins og munu verða í
henni þeir Guðni Jónsson prófessor,
Halldór Halldórsson prófessor og
dr. Sigurður Nordal.
Ekki' er að fullu ákveðið enn
hvenær stofnunin tekur til starfa.
Ekki er enn endanlega ákveðið
hvenær handritin koma til landsins,
en búizt er við að þetta skýrist
fljótlega eftir að forstöðumaður er
skipaður.
Dómnefndin mun vinna úr þeim
gögnum, sem umsækjendur leggja
fram, með umsóknum sínum og ei
ekki vitað hvenær hún leggur fram
álit sitt.
Tvö slys
j gær
í gær urðu tvö umferðarslys hér
f Reykjavík og annað næsta alvar-
legt.
Um kl. hálf fjögur í gær var ek-
ið á lítinn dreng á Sogavegi og slas-
aðist hann mikið. Drengurinn heitir
Þór Ragnarsson til heimilis að
! Tunguveg 64. Hann var í fylgd með
nokkuð eldri telpu, fóru þau út á
götuna fyrir aftan strætisvagn, en
þar sleit drengurinn sig lausan,
hljóp áfram og þvert i veg fyrir
bifreið sem kom aðvífandi.
Þór litli mun hafa rifbrotnað og
fótbrotnað og óvíst var um höfuð-
kúpubrot. Hann var fluttur í sjúkra-
| hús og óttuðust læknar um líf hans
j í gærkveldi, því mjög virtist þá
■ tekið að draga af honum, en hann
• iiresstist aftur við í nótt og í
morgun voru læknar miklu von-
j betri um hann.
Þess má geta að bifreiðin, sem
ekið var á drenginn, reyndist í
Óskar Guðnason formaður Hiðs I m5nasta ólagi. Það var ungur
íslenzka prentarafélags við
vinnu sína í Leiftri í morgun.
piltur sem ók henni.
Framhald á bls. 5.
.... ' ... Sí
„Get ég fengiö oð sjá útsvarib mitt?"
SVARA
Reykvíkingar greiða 230 millj.
Útsvarsskrá Reykja-
víkurborgar lá frammi í
gamla Iðnskólanum í
morgun. Strax kl. 9 tóku
borgaramir að streyma
þangað inn, og fékk þar
nefndin góða misjafnar
kveðjurnar. — Margur
bölvaði en aðrir brostu,
allt eftir því hvað töl-
urnar í skránni sögðu.
Þetta verður síðasta árið sem
niðurjöfnunarnefnd leggur á út-
svör, því skv. lögum nr. 69/
1962 verður það verk nýskipaðs
skattstjóra. í stað niðurjöfnun
arnefndar kemur svokölluð
framtalsnefnd, sem ákveður
tekju- og eignastofninn.
Samkvæmt fjárhagsáætlun
borgarstjórnar skyldu útsvörin
í ár vera minnst 281.191.900 kr.
Frh. á 5. síðu.
Fjöldi fólks lagði leið sína í gamla Iðnskólann þrátt fyrir beljandi rigningu. Ástæðan var
sú, að þar Iá frammi útsvarsskrá Reykjavíkurfyrir árið 1961. Spurðu menn spenntir um út
svör sín og sést hér á myndinni hvar fjölmargir borgarar bíða eftir svarinu. Útsvarsskrá-
in liggur eihnig frammi á Skattsofunni.
LÍTLAR VONIRUM SAMKOMULA G
Allar líkur benda til að
prentaraverkfall skelli á
um miðnætti í nótt. Engir
fundir hafa verið haldnir
með samninganefndum síð
an í fyrrakvöld og fundur
hafði ekki verið boðaður
þégar blaðið fór í prentun
skömmu fyrir hádegi. Hins
vegar halda prentarar al-
mennan félagsfund í dag
klukkan 5 og ræða þeir
þar tillögur og þá afstöðu
sem komið hefur fram í
samningaumleitunum und-
anfarið.
Við náðum í Óskar Guðnason
formann prentarafélagsins þar sem
hann var á vinnustað sínum, Leiftri
í morgun. Vildi hann sem minnst
segja á þessu stigi málsins, kvaðst
ekkert geta sagt um á hverju samn-
ingar helzt strönduðu og hélt að
litlar líkur væru til þess að saman
gengi eins og málum væri háttað
nú.
Eins og sagt er frá annars stað-
ar í blaðinu eru bókbindarar búnir
að semja. Sömdu þeir um 14%
kauphækkun en féllu frá öðrum
kröfum sínum. Kröfur bókbindara
voru þær sömu og prentara, en
Óskar kvað það samkomulag engin
áhrif hafa á þeirra kröfur né samn
ingaumieitanir þeirra við prent-
smiðjueigendur.
Ef til verkfalls kemur stöðvast
j vitaskuld öll prentun í landinu, en
! þó munu dagblöð koma út í fyrra-
málið. Ekkert er hægt að segja um
hve lengi þetta verkfall muni vara.
Spennir
bilaður
Spennir sá, sem bilaði í Áburð-
arverksmiðjunni í sumar, hefur nú
bilað aftur. Ekki hlutust af þvi
verulegar tafir, þvi að annar spenn
ir var kominn einum og hálfum
sólarhring eftir að hann bilaði.
Framleiðsla verksmiðjunnar heldur
því áfram, þó að eitthvað skorti
á að fullum afköstum sé náð.
Spennirinn sem bilaði er 5000
Framh. á bls. 5.