Vísir - 01.10.1962, Blaðsíða 1
VISIR
Mánudagur 1. október 1962. — 224. tbl.
Afmælishátíð
Norræna
félagsins
Myndin til hægri sýnir heiðurs-
gestina, frú Önnu Borg og Poul
Reumert lesa upp lokaatriðið úr
Fjalla-Eyvindi. Flutningur þeirra
á þessu átakanlega atriði vakti
mikla hrifningu.
HYLLT
AfmælishátíS Norræna
félagsins var haldin í
Þjóðleikhúsinu á laugar-
dagskvöld og var mjög
hátíðleg í alla staði. Var
Þjóðleikhúsið fullsetið
og voru heiðursgestirnir
frú Anna Borg og Poul atriðinu úr Fjalla-Ey-
Reumert sérstaklega vindi.
hyllt, er þau komu fram Formaður Norræna félagsins
með hrífandi upplesturí;
Formaður
„Gunnar Thoroddsen fjármálaráð-
herra flutti ávarp, sem birtist í
sinn. — Sérstaka athygliheild á öðrum stað í blaðinu. Að
hátíðarsamkomunni lokinni efndi
stjórn Norræna félagsins til sam-
Framh. á 5. síðu.
vakti hinn frábæri flutn-
ingur þeirra í hungurs-
atnar um
króna
Skólarnir
byrjaðir
Barna- og unglingaskólarnir
og Menntaskólinn í Reykjavík
hefja starfsemi sína í dag. Nem-
endur þriggja efstu bekkja
barnaskólanna mættu í skólun-
um 1 morgun, en ýngri deildirn-
ar hafa þegar verið í skólunum
í nokkurn tíma. Eftir hádegið
eru svo skólasetningar gagn-
fræðaskólanna að undanteknum
Vogaskóla, sem Verður settur á
miðvikudaginn 3. okt. Þá eru
einnig kennarafundir í flestum
skólanna í dag, þar sem rætt
verður um upphaf nýs skólaárs.
Búast má Við, að nemendum
verði svo flestum sett fyrir á
morgun og kennsla hefjist síð-
an á flestum stöðum af fullum
krafti á miðvikudag.
Á myndinni sjást nemendur í
Laugarnesskóla komnir í stof-
una sína.
Seint í febrúar 1960 var samið
við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um
yfirdráttarheimild að upphæð 8,4
millj. dollara og við Evrópusjóðinn
var samið um 12 millj. dollara
lánsheimild. Voru þessar lánsheim-
ildir fengnar til þess að styrkja
gjaldevrisstöðu bankanna og auka
viðskiptafrelsi í sambandi við jier \
efnahagsráðstafanir, sem gerðar j
voru á árinu 1960. Af yfirdráttar- I
heimildinni hjá Alþjóðagjaldeyris- j
sjóðnum voru 6,8 millj. dollara not- '
aðar á árinu 1960 og af lánsheim-
ild við Evrópusjóðinn voru 7 millj.
dollara notaðar einnig 1960. Síðan
hefur ekki verið þörf á frekari
notkun þessara yfirdráttarheimilda,
þar sem gjaldeyrisstaðan fór batn-
andi á síðara hluta árs 1960 og
hefur haldið áfram að batna síðan.
Skuldin við Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn og Evrópusjóðinn hefur frá
upphafi verið talin með í gjald-
eyrisstöðu bankanna, þ.e.a.s. skuld-
Framh. á 5. síðu.
aður hrapar í klettum og bíður bana
Um klukkan 14 á laug-
ardag varð banaslys í
Vesímannaeyjum, þegar
fimmtíu og þriggja ára
gamall verkamaður, Jón
lónsson, hrapaði j svo-
nefndu Klifi, 220 metra
tiáu, grasivöxnu kletta-
fjalli.
Jón heitinn var ásamt tveimur
öðrum mönnum að smala nokkr-
um kindum í Klifinu, þegar slysið
vildi til. Þremenningarnir voru þá
að fara niður svonefnda Mánaðar-
skoru, ofan til í Klifi. Þar er stór-
grýtt skriða og snarbrött. Jón
gekk fyrstur.
Féll meira en
mannhæð.
Skyndilega, og án þess að
nokkuð væri unnt að hafast að,
hrasaði Jón og valt niður .5—6
metra langa skriðu. Þar fyrir neð-
an tók við meira en mannhæðar-
hár klettastallur og féll Jón fram
af honum á snarbratta grasbrekku.
Ekki er vitað nákvæmlega hvað
fallið var hátt, en Jón stöðvaðist
á misjöfnum í brekkunni.
: Komst ekki til
j meðviíundar.
| Félagar Jóns komust fljótt niður
: til hans og sáu þegar, að hann var
meðvitundarlaus og að það blæddi
úr eyrum hans. Annar þeirra fór
þegar upp aftur og síðan niður
í bæ til að sækja lækni og hjálp-
armenn. Komu þeir innan stutts
tíma með sjúkrabörur.
Jón var lagður á sjúkrahúsið í
Vestmannaeyjum. Hann fékk
aldrei meðvitund og andaðist um
lágnættið. Jón lét eftir sig konu
og tvnr dætur.
Ummæli
sjónarvotts.
Fálagar Jóns voru Bogi Matthí-
asson vélstjóri og Birgir Sigur-
jónsson, bifreiðastjóri, Bogi sat
yfir Jóni meðan Birgir fór til að
sækja hjájp. Sagði Bogi við Vísi
í morgun, að Jón hefði verið al-
gjörlega meðvitundarlaus meðan
hann sat yfir honum.
— Hver var ástæðan fyrir því
að Jón hrapaði?
— Það er ekki svo gott að
segja. Þegar farið er niður svona
bratta eykst ferðin á manni. Hann
hljóp samt ekki. En hann hefði
Framh. á 5. síðu.
iA- hvass-
¥iiri í gær
Það mátti heita illstætt á
götum Reykjavíkur í gærkvöld.
Ncrðaustan hvassviðri gekk
yfir landið, byrjaði að hvessa
austan lands fyrir hádegið í gær
og þar lægði veðrið fyrst. f
Reykjavík tók að hvessa fyrir
alvöru um kaffileytíð og var
hvassast frá kl. 6 til 9 í gær-
kvöld. Vindhraðinn komst upp
í 9 vindstig í bænurn og mun
hvergi hafa verið hvassara,
nema í Vestmannaeyjum. Veð-
urhæðin varð þó aldrei eins
mikil og t ofviðrinu um fyrri
helgi, og ekki er vitað til að
teljandi tjón hafi hlotizt af
storminum að þessu sinni.