Vísir - 02.10.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 02.10.1962, Blaðsíða 16
VÍSIR Stjóm Loftleiða hélt utan á sunnu dag, með einni af flugvélum félagsins, á leið sinni til Spánar. Mun stjómin sitja þar fund með sölumönnum félagsins og fram- Þrlðjudagur 2. október 1962 kvæmdastjórum erlendis. Alltof lit lar skóla- stofur í Þrúðvangi Rektor Menntaskólans í Reykja- vík kallar það „öþrifabráðabirgða- ráð“ að skólinn tók á leigu Þrúð- vang, sem áður hýsti Tónlistarskól- ann. Stofurnar voru orðnar of litlar Indriði G. Þorsteinsson Hlýtur styrk úr sjóði Lindemunns í gær tilkynnti Kirstján Eldjárn, á fundi með fréttamönnum, að út- hlutað hefði verið styrkjum úr rit- höfundasjóði Kelvins Lindemanns. Hlutu styrkina fjórir norrænir rit- höfundar og meðal þeirra var Ind- riði G. Þorsteinsson. Hlaut hann styrk sem nemur 5 þús. dönskum krónum eða um 30 þúsúnd ísl. kr. Aðrir rithöfundar, sem fengu jafn háan styrk voru Ebba Haslund frá Noregi, Sven O. Bergkvist frá Svf- þjóð og Pertti Nieminen frá Finn- Iandi. Styrkir úr sjóði Lindemanns eru hugsaðir sem ferðastyrkir er veiti rithöfundunum tækifæri til að dveljast að minnsta kosti einn mánuð í hverju hinna norrænu landa utan heimalandsins. Indriði G. Þorsteinsson var við- staddur á blaðamannafundinum og skýrði hann frá því, að hann hygðist notfæra sér styrkinn næsta vor til dvalar í Danmörku. Hver vinnur reiðhjólið ? Fyrir nokkru efndi1 Vísir til happdrættis meðal sölubarna blaðsins. Vinningurinn í happdrættinu er forláta reiðhjól af nýjustu gerð. Á morgun verður dregið i happdrættinu og mun Vísir birta frásögn og mynd af þeim heppna söludreng eða stúlku, sem vinninginn hlýtur. fyrir Tónlistarskólann og eru allt- of litlar fyrir venjulegan mennta- skóiabekk. Enda hefur stjórn Menntaskól- ans orðið að fækka um 7—14 í ; þeim bekkjum, sem sitja eiga í ;j Þrúðvangi. Venjulegur bekkur t ur 25 til 27 nemendur, en minnsta j stofan í Þrúðvangi tekur aðeins ! 13. Hinar taka 18. Alls eru stof- urnara fimm talsins. Það verða fjórðu bekkir og ein fimmta bekkj- ar deild, sem sitja f Þrúðvangi. Bloðburður VÍSIS Fyrstu dagana í október eru miklir örðugleikar á blaðburð- inum til fastra áskrifenda. Staf- ar það af þvi að skólaböm og unglingar sem sjá um blaðburð- inn eiga eftir að fá stundatöflu sína og vita eigi með vissu, hvort þau geta tekið að sér blað burð í vetur. Afgreiðsla blaðsins mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma blöðunum til á- skrifenda, en biður þá að hafa nokkra þolinmæði þó eitthvað misfarist í þessum erfiðleikum. Á sama tíma biður afgreiðsl- an böm og unglinga sem vilja taka að sér blaðburð í vetur að hafa hið fyrsta samband við af- greiðslu blaðsins í Ingólfsstræti 3. — Hernaðarástand hefur ríkt í háskólabænum í Mississippi og vopnaðir hermenn verið á ferli á götunum. Bandaríkin sigra suð- urfylkið Mississippi Mikil ólga er í smábæn- um Oxford, háskólabæ Mississippi-fylkis í Banda- ríkjunum. Enn standa f jöl- mennir hópar vopnaðra hermanna með stálhjálma á höfði á götunum og í nágrenni háskólans. — Síð- ustu daga hefur herlið sambandsstjórnarinnar streymt til bæjarins með jeppum og flutningavögn- um og jafnvel með flugvél- um. Herlið hefur ásamt sambandslögreglunni tekið borgina á sitt vald og um leið hefir fylkið Mississippi tapað styrjöldinni móti Bandaríkjunum. Dómi hæstaréttar Bandaríkjanna Hluti nýja Verzlunarskól- ans tekinn í notkun / haust um jafnrétti svertingja á við hvfta menn 'f skólum landsins hefur ver- ið framfylgt með valdi. í gær fylgdu lögreglumenn svertingjan- um Meredith til skrifstofu háskól- ans og fékk hann innritun í hann. Á meðan stóðu hundruð hermanna og sambandslögreglumanna með hjálma, vopnaðir táragassprengj- um umhverfis háskólann. Stúd- entarnir í háskólanum voru margir æstir og mótmæltu inngöngu svertingja í skólann. Þá barst þeim liðsauki frá svertingjahöturum í ríkinu, sem flykktust að skólalóð- inni, sumir vopnaðir haglabyssum. Framhald á bls. 5. I gærdag var Verzlunarskólinn settur í Tjarnarbæ. Voru þar við- staddir ásamt kennaraliði skólans, nemendur og nokkrir gestlr. Skóla- hann þar m. a. að í skólanum í stjórinn dr. Jön Gíslason, setti j vetur yrðu nú yfir 400 nemendur skólann með stuttri ræðu, Framh. á 5. síðu. i Jón Gíslason, skólastjóri, setur Verzlunarskólann í Tjarnarbæ i gær. Anna Borg Endúrminningar frú Önnu Margir lesendur hafa komið að máli við Vísi og spurzt fyrir um það hvenær framhaid end- urminninga frú Önnu Borg muni verða birt í biaðinu, en fyrsti kaflinn birtist á laugar- daginn var. Afráðið hefir verið að grein- ar frú Önnu muni birtast á hverjum Iaugardegi og munu þéim fylgja myndir af því fólki og atburðum, seni hún ræðir um hverju sinni. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.