Vísir - 03.10.1962, Blaðsíða 6

Vísir - 03.10.1962, Blaðsíða 6
6 VÍSIR . Miðvikudagur 3. október 1962. Ný róttæk stefna Frjáls- lynda flokksins Fyrir nokkrum dögum birtist fróðleg grein í Politiken um frjálslynda flokkinn í Englandi, sem nú er í miklum upp- gangi. Er þar fjallað um hina nýju stefnu hans og foringja. Ritstjórn Vísis telur rétt að greinin komi fyr- ir augu íslenzkra les- enda og birtist því meg- ininntak hennar hér f ís- lenzkri þýðingu. Frjálslyndi flokkurinn i Eng- landi berst nú á tveimur víg- stöðvum. Á flokksráðstefnu i Llandudno í Wales úthúðuðu fulltrúar frjálslyndra stjórnintji, dæmdu hana „óhæfa, jafnvel á mælikvarða íhaldsmanna“ og ræddu um „11 ára vanhirðu á landinu“ undir stjóm íhalds- manna. í lokaraeðu sinni á ráðstefn- unni kallaði Joseph Grimond foringi frjálslyndra, Hugh Gaitskell foringja Verkamanna- flokksins „afturhaldssegg." Hagstæður skoðanamunur Ástæðan fyrir stóryrðum frjálslyndra er sú, að skoðana- kannanir og úrslit aukakosn- inga s.l. vor eru beim mjög í hag. Frjálslyndir, sem nú hafa 7 menn f Neðri deild, fengu um 1,6 milljón atkvæða f þingkosn- ingunum 1959, eða um 6 af hundraði greiddra atkvæða, en við aukakosningar s.l. vor fengu þeir að jafnaði 30 af hundraði greiddra atkvæða. Nokkrar síð- ustu skoðanakannanirnar benda til þess, að fjórði hluti kjósenda f landinu myndi f dag kjósa frjálslynda. Við skoðanakönnun um miðj- an september reyndust 46 af hundraði þeirra, sem spurðir voru óánægðir með stjórnina og 50 af hundraði óánægðir með Macmillan sjálfan. Gefur þetta að sjálfsögðu stjórnarandstæð- ingum byr undir báða vængi. Þegar Grimond kallaði Gait- skell „afturhaldssegg", var það vegna þess hve stefna hans í Efnahagsbandalagsmálinu hefur verið hikandi og ruglingsleg. „Gaitskell gerir eina merkustu ákvörðun sögunnar að rökræð- um um 5% lækkun á tolll af niðursoðnum ferskjum", segir Grimond. Á ráðstefnu frjálslynda flokks ins voru menn mjög áhugasam- ir um þátttöku Breta f Efna- hagsbandalaginu, „svo að Stóra- Bretland geti lagt sitt af mörk- um til friðar í heiminum og sameiningar Vestur-Evrópu,“ eins og stóð í fundarsamþykkt Hver hefði trúað, að maður ætti eftir að heyra þúsund Breta lýsa sig samþykka afsölun sjálf- stæðis Bretlands og sameiningu föðurlands þeirra og Evrópu? En þetta gerðist, þegar ráð- stefnan hafði samþykkt viðbót við stefnuskrá flokksstjórnar- innar um að hraða efnahags- umræðunum. Elna Dangerfield, ein af efna- hagssérfræðingum flokksstjórn- arinnar, varaði fundarmenn við að ganga svo langt, en rök- semdum hennar var algerlega hafnað. „Óska fundarmenn í raun og veru eftir, að þetta land gangi í evrópskt ríkjasamband?" spurði hún. — „Já,“ hrópuðu fundarmenn. „Samþykkir fundurinn þá, að evrópskt þing setji okkur lög?“ hélt hún áfram. Aftur hrópuðu fundarmenn já, og svarið var hið sama, þeg- ar hún reyndi síðustu röksemd- irnar: „Halda fundarmenn I raun og veru, að þetta land geti verið hluti Evrópuríkja- hún einnig ein af varaforsetun- um, en í raun og veru má telja hana æðstaprest frjálslyndra: dóttir Asquiths forsætisráð- herra, tengdamóðir Josephs Grimond og móðir Mark Bon- ham Carter, sem var áður þing- maður en er nú einn af ráðu- nautum flokksins. Lady Violet man þá tíð, er Gladstone var síðast forsætis- ráðherra. Hún er tengiliður milli hins litla hóps frjálslyndra, sem nú situr f Neðri deildinni, og stóra gamla flokksins, sem kyn- slóð eftir kynslóð hafði forystu í brezkum endurbótalöggjöfum. Á ráðstefnunni var nú til um- ræðu endurbótastefnuskrá, sem stendur hinum eldri ekki að baki. Rauði þráðurinn var: „Gerið Stóra-Bretland að nú- tímaríki". Hvað eftir annað var mælt með skipulagningu, en íhaldsstjórnin hefur ekki lagt svo mikið upp úr þvi, m.a. vegna þess að eyrum íhalds- Jo Grimond. landi og Skotlandi verða æ strjálbýlli. íbúarnir flykkjast til suðausturhluta landsins, ná- grennis Lundúna. Hin mikla stjarna frjálslynda Horfa bfartsýnir fram á leið sambands jafnframt því að vera miðpunktur brezka heimsveld- isins?“ Dóttir Asquith Á ráðstefnuna vantaði einn stærsta persónuleika frjálslynda flokksins, hinn 83 ára þjóð- félagsumbótamann William Be- veridge lávarð. Hann er einn af varaforsetum flokksins, en gat ekki mætt vegna veikinda. Aft- ur á móti komu Lady Violet Carter til þingsins. Formlega er manna hættir við að skilja orð- ið „skipulagning" sem „sósíal- ismi“. „Stóra-Bretland verður að gera sér ljóst, að meginland Ev- rópu er að færast nær, m.a. vegna fyrirhugaðra jarðgangna undir Ermarsund", segja frjáls- lyndir. -— Jarðgöngin krefjast nýrra vega í Suður-Englandi, enda er vegakerfið löngu ófull- nægjandi. Fátækrahverfin. Mörg héruð I Norður-Eng- Meðan þing frjálslynda flokksins stóð yfir í bænum Llandudno í Wales i síðustu viku fór formaður flokksins Jo Grimond til kunnrar spákonu þar í bænum og lét hana spá um framtíð sína. Hún sagði m. a.: — Vegna viljastyrks yðar munuð þér ná mark- inu. Flokkurinn sem þér stjómið mun ná marki sínu eftir þrjú til fimm ár. Eftirá spurðu blaðamenn spákonuna hvaða flokki hún fylgdi. Hún svaraði: — Ég hef alltaf fylgt Verkamannafiokknum. flokksins, Eric Lubbock, sem s.l. vor náði einu kjördæmi frá íhaldsflokknum, réðst á hæga- ganginn í útrýmingu fátækra- hverfa. Með þeim hraða, sem nú er, lýkur Liverpool áætlun sinni eftir 90 ár. 1 landinu eru nú um það bil 4 milljónir Ibúða, sem voru byggðar fyrir 1880, og eru þær nú nær ónothæfar. Á stórum svæðum í iðnaðarhér- uðum Norður-Englands er þriðja hvert hús án vatnsleiðslu. Vanræksla ríkisstjómarinnar hvað viðvíkur íbúðabygging- um hefur haft I för með sér, að nú er að rísa upp ný tegund hverfa, „fátækrahverfi á hjól- um“, þar sem fólk býr árið um kring í íbúðarvögnum. Ein hinna áhrifamiklu áætl- ana frjálslyndra er að koma á „iðnaðarlýðræði". Áætlunin var gerð af formanni framkvæmda- stjórnar aðalstjórnarinnar, Des- mond Banks, en hann boðaði „aðra brezku iðnbyltinguna" þ.e. í hlutfalli milli fjármagns og vinnuafls. Hann sagði, að með lækkun skatta ætti ríkið að stuðla að því, að verkamenn og aðrir launþegar gæti eignazt hlutabréf f fyrirtækjum, sem þeir ynnu hjá. Auk þess ætti að breyta hlutafélagalöggjöfinni svo að þair, sem lengi hafa starfað hjá fyrirtækinu, fái sömu aðstöðu og hluthafar, þ.e a.s. að framkvæmdastjórnin hafi sams konar lagalegan rétt gagnvart báðum aðilum. Bank-*’ lagði mikla áherzlu á, að réttur verkamanna og annarra laun- þega til að eiga þátt í eftirliti og arði fyrirtækisins færi aðeins eftir stöðu hans sem starfs- manns, en væri óháð þvf, hvort hann væri auk þess hluthafi. Róttæk stefna Hópur fundarmanna bar fram tillögu um viðbót við fundar- samþykktina. þess efnis, að verkamenn og aðrir starfsmenn hefðu rétt til beinna kosninga í stjórn félagsir>3. Um tillögu þessa urðu mjög heitar umræð- ur, og vöruðu formælendur hægri arms flokksins mjög við henni — utan úr fundarsal heyrðist m.a. hrópað „rauð bylting“ — en hún var samt samþykkt með yfirgnæfandi meiri hluta. Þar með er frjálslyndi flokk- urinn orðinn formælandi stefnu, sem er róttækari hvað viðvíkur hlutfalli milli vinnuafls og fjár- magns en nokkuð, sem verka- mannaflokkurinn hefur boðað — burtséð frá hinum venjulegu kröfum hans um þjóðnýtingu. Þessi stefna getur átt eftir að kosta frjálslynda flokkinn at- kvæði margra gamalla fylgis- manna, en heimspekin að baki henni hlýtur að vera sú, að hún fái miklu fleiri fylgismenn úr hinum sívaxandi hópi skrif- stofu- óg verzlunarfólks og meðal fagmanna. Þetta er draumurinn um mið- stéttarflokk, með aðgang að þeim hlutum stóru flokkanna tveggja, sem næstir eru miðju. Margir af fulltrúunum á flokksfundinum f Llandudno var u.igt fólk, sem oft hafði smá- börn með sér. Skiptust þá for- eldrarnir á að gæta barnanna á ströndinni, svo að annar hvor aðilinn gæti tekið þátt í ráð- stefnunni. Hver hefði trúað, að Englendingar gætu jíka verið svona? Einn af meðlimum flokks- stjórnarinnar, Barbara Joyce, sem sjálf er ung móðir, álftur þessa verkaskiptingu alveg ó- hæfa. Hún hefur beitt sér fyrir, að f framtíðinni sjái ráðstefnan um barnagæzlu. Hún fær áreiðanlega vilja sín- um framgengt, úr því að Bretar hafa á svo margan hátt reynzt öðru vfsi en þeir hafa fengið orð fyrir að vera. Ánægjulegt er að sá flokkur sem trúir á sjálfan sig og fram- tíð sína skuli ekki aðeins vilja endurbæta þjóðfélagið, heldur einnig vernda hina litils meg- andi í þjóðfélaginu. Jöklar styttast víðar en hér á landi Það er á allra vitorði, að jöklar hafa stytzt verulega hér á landi sfðustu árin, sumir mjög mikið. En þetta gerist víðar en hér á landi, þvf að fregnir frá Nýja Sjá- landi herma, að frægasti jökull landsins, Franz Jósefs-jökullinn, sem er í Alpafjöllum Ný-Sjálend- inga, hafi minnkað svo á árinu 1960—61, að hann sé nú hvorki meira né minna en 100 metrum styttri en áður. Jökull þessi hefur raunar verið að styttast árum sam- an,,þvf að síðan 1951 hefur hann „hopað“ hvorki meira né minna en 1150 metra eða meira en kílómetra. Franz Jósef og næsti jökull, sem heitir Fox-jökull, og er einnig mjög frægur og eftirsóttur af fjallagörp- um, eiga engan sinn líka, að þeir ganga niður að hálfgerðum hita- beltisskógum, sem eru við rætur þeirra. Jöklafræðingar segja, að minni úrkoma á undanförnum ár- um hafi orsakað þessa rýrnun jökl- anna, og þurfi mikla úrkorou um nokkurt árabil, til þess að þeir nái sér á strik aftqr. (UNESCO).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.