Vísir - 08.10.1962, Blaðsíða 1
Hvalfjörður tepptist
í gær tepptist aðal þjóðveg- vegurinn væri ruddur. Miklar
ur landsins, Norðurlandsvegur. rigningar voru í Hvalfirði í
Orsökin var skriðufall úr Múla fyrrinótt og um kl. 11 í gær-
fjalli innst í Hvalfirði. Tepptist morgun hljóp skriðan í fjallinu,
vegurinn í um fjórar stundir. undan stuðlabergi sem er efst
15 >-20 bílar biðu sinn hvoru f því. Er fjallið mjög bratt í sjó
megin við skriðuna eftir því að Framh. á bls 5
Kosningin í Dngsbrún:
Kommúnistar tapa fimm
tungi fylgis á einu ári
í gær var lokið alls-
herjaratkvæðagreiðslu í
verkamannafélaginu
Dagsbrún um fulltrúa á
þing ASÍ og sýndi hún,
að kommúnistar hafa
tapað fimmtungi fylgis
síns á aðeins einu ári.
Að sjálfsögðu beittu komm-
únistar öllum þeim brögðum,
sem þeir gátu, til að gera að-
stöðu lýðræðissinnaðra verka-
manna sem erfiðasta við at-
kvæðagreiðsluna, en þau gátu
þó ekki borið þann árangur, sem
til var ætlazt, þvi að þau gátu
ekki leynt því, að kommúnistar
eru smám saman að glata trún-
aði verkamanna.
Á aðeins um það bil ári
hefir fimmti hver verkamað-
ur, sem studdi kommúnista f
Dagsbrún snúið við þeim bak
inu, og er það mikill ósigur,
þar sem þeir telja sig vera f
svo góðri vígstöðu vegna
„viðreisnarbölsins“.
Atkvæðagreiðslan um helgina
fór svo, að listi lýðræðissinna
hlaut 649 atkvæði, en komm-
únista 1251, en 21 seðill var
Framh. á 5. síðu.
Slys um
helgina
Nokkur slys urðu f Reykjavfk
um helgina, en yfirleltt ekki stór-
vægileg.
Hið mesta þeirra varð að Goð-
heimum 9 um sjöleytið í gærkveldi.
Þar var maður, Tryggvi Gíslason,
að setja gler í glugga hjá sér, en
féll aftur fyrir sig og slasaðist.
Einkum kvartaði hann undan sárs-
auka f mjöðm.
I gærkveldi féll kona í heimahúsi
og slasaðist á höfði.
Um hádegið á Iaugardaginn var
þriggja ára drengur að leika sér á
þríhjóii á Kleppsveginum, en datt
illa af hjólinu og skarst við það
á augabrún. Allir þessir aðilar
voru fluttir til læknisaðgerðar.
A.S.I. HINDRAR LAUSN
S/lD VCIÐIDlllUNNAR
Dregur að skipa samninganefndina
Vísir hefir það eftir góð-
um heimildum að þjóðar-
búið tapi yfir 5 millj. krón-
um á dag, meðan ósamið
er í síldveiðideilunni.
Sjómenn og útgerðarmenn eru
mjög ánægðir með þann drátt sem
orðið hefir á þvf að Alþýðusam-
bandið skipaði af sinni hálfu nefnd
til samningaviðræðna um kjör sjó-
manna á komandi vetrarsíldveið-
um. Það þýðir að síldveiðar við
suðvesturland geta ekki hafizt á
eðlilegum tíma og veldur það stór-
felldu tjóni fyrir sjómenn og landið
í heild.
Hinn 25. september skrifaði LÍÚ
Alþýðusambandinu og óskaði eftir
að það beitti sér fyrir skipan samn
inganefndar af hálfu sjómanna inn
an samtakanna. Hinn 27. septem- j
ber skipaði LlÚ síðan nefnd af j
sinni hálfu til að semja um sfld-
arkjörin við sjómenn, og tveimur
dögum síðar barst LlÚ svarbréf
frá ASÍ þar sem komizt er svo að
orði að Alþýðusambandið muni
beita sér fyrir því að viðræður
geti hafizt. Síðan eru liðnir 10 dag-
ar og ekkert hefir heyrzt frá Al-
þýðusambandinu.
Það þykir engum mikið þótt sjó-
menn séu ekki ánægðir með „for-
ustu“ Alþýðusambandsins í þessu
mikla hagsmunamáli þeirra og
þjóðarinnar alirar.
Veikir í gær,
vinno í dog
Það þótti tíðindum sæta í
gær að flugmenn á flugvélum
Flugfélags Islands, sem áttu að
fljúga til Akureyrar og Vest-
mannaeyja samkvæmt áætlun,
voru allir veikir, tveir flugmenn
á hvorri vél. Ekki tókst heldur
að fá aðra í þeirra stað og féllu
ferðirnar niður sökum þessara
veikinda.
Þess er rétt að geta að allt
flug hjá Flugfélagi Islands er
með eðlilegum hætti í dag og
a. m. k. einhverjir flugmann-
anna, sem voru veikir í gær,
komu til starfa í dag.
Verzlunarskólinn tekur
nýtt húsnæði í notkun
l morgun var merkur áfangi f
sýgu Verzlunarskóla íslands, en þá
var í fyrsta sinn hafin kennsla í
hinu nýja húsnæði skólans við
Þingholtsstræti. Það er ein hæð
hins nýja húss, sem tekin var í
notkun í morgun, fjórar kennslu-
stofur, sem rúma um eitt hundrað
nemendur. Dr. Jón Gíslason skóla-
stjórl skýrði frá þvf í morgun í
samtali við Vísi, að með þessu
nýja húsnæði hæfist jiýtt tímabil í J
sögu skólans, því þetta er í -fyrsta I
sinn sem skólinn hefur starfsemi |
sina í h .i, sem raunverulega er j
byggt sem skólahúsnæði. Það er
þó ekki nema nokkur hluti nem-1
enda Verzlunarskólans, sem. nýtur
hins nýja húsnæðis, því enn er |
kennt í gamla húsinu, jafnhliða því
nýja, og verðui' svo urn' óákveðinn
Frh. á 5. síðu
>* ucKKur i uiiuii nyju Kcnnsiusiuiu sinni.
t
I