Vísir - 09.10.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 09.10.1962, Blaðsíða 2
2 V I S I R . Þriðjudagur 9. október 1962. Þeir hafa verið með Héðni í öllum Smiðjukeppnunum frá 1947. Frá vinstri: Rafn Sigurðs- son, Gunnar Pétursson og Halldór Backmann. Héðínn vann smiðjukeppnina Hínir fótfráu starfsmenn hjá Vélsmiðjunni Héðni bættu enn við hið myndar Iega bikarasafn sitt nú fyr- ir helgina, er þeir sigruðu LISTON Sonny Liston, nýbakaður heims- meistari I þungavigt var um helgina nálægt því að komast aftur inn fyrir múra fangelsisins. Lög- reglueftirlitsmaður tók eftir Cad- illac-bifreið, sem var ekið grun- samlega hægt og óörugglega niður Philadelphia Park. Bifreiðin var stöðvuð og þegar lögreglumaður- inn opnaði gaus á móti honum sterk áfengislykt. Ökuskírteini? Það fann ökumaðurinn ekki í bíln- um né innan klæða, en maðurinn bak við stýrið var í þetta sinn enginn annar en heimsmeistarinn Landssmiðjuna í úrslita- leik í Smiðjukeppninni í knattspyrnu og þar með var áttundi silfurbikarinn kominn í glerskápinn í — fullur vii stýrið í hnefaleik, Sonny Liston. Lög- reglumaðurinn hjálpaði til við Ieitina að ökuskírteininu og loks fannst það á gólfi bifreiðarinnar. Sem betur fer var fulltrúi laganna skynsamur og náði í mann, sem ók Liston heim til sín og meistar- ina settist hljóður í baksætið, þæg- ur sem lamb. í sama garði, Philadephia Park í Fíladelfíu var Liston handtekinn fyrir ári síðan er hann reyndi að þvinga konu á bíl til að aka út af veginum. Héðinsnaustinu eins og þeir kalla samkomusal sinn á 4. hæð hússins. „Aldrei fyrr hefur lið okkar mætt annarri eins mótspyrnu og nú,“ sagði formaður Starfsmanna- félags Vélsmiðjunnar Héðins, Rafn Sigurðsson, er liðsmenn ásamt nokkrum gestum komu saman í Héðinsnausti s.l. laugardag. „Hver hefði trúað því fyrir nokkrum ár- um aö í hálfleik stæðu leikar 0:2, andstæðingum Héðins í vil eins og raun varð á gegn Stálsmiðjunni. Annað hvort hefur lið okkar farið svo aftur eða að öðrum hefur far- ið fram og held ég að síðari skýr- ingin sé sennilegri," sagði Rafn að lokum. Héðinn vann nú 5. smiðjubikar- inn til eignar, en auk þess hefur Héðinn unnið einn firmabikar í knattspymu og tvo bikara í bridge til eignar. „Við höfum unn- ið alla bikara, til eignar sem við höfum keppt um“, sagði einn starfsmannanna, „og það segi ég án þess að vera að gorta af því,“ bætti hann við. Héðinn vann Stálsmiðjuna í keppni þessari með íi:2, Hamar með 4:2, Sindra með 6:0 og úr- slitaleikinn við Landssmiðjuna með 3:0. Gesti keppninnar, Slipp- félagið, gerðu þeir jafntefli við en tefldu fram varaliði sínu. Héðins- liðið h?fur ekki tapað leik í sum- ar, en Flugfélag íslands gerði þó jafntefli við liðið 2 mörk gegn 2. Grand Prix-kapp- aksturskeppnin Fram—Keflavik Spennandi undanúrsllif bikarkeppninnar Á vikufundi KRR i gærkvöldi var dregið um leikina í undanúr- slitum bikarkeppninnar, sem frarn fara um helgina, en spenningur er mikill fyrir úrslitum keppninnar. Fulltrúi Vals í ráðinu, Einar Björnsson, dró fyrsta miðann úr kristalsvasanum, sem gegnir því virðulega hlutverki að geyma mið- ana með nafni þátttökuliðanna. Upp kom nafn KR. Það var svo fulltrúi Víkings, Ólafur Jónsson, sem dró síðari miðann: Akureyri. Leikirnir um helgina verða því KR—Akureyri og Fram — Kefla- vík. Líklega verður leikið á laug* ardag og sunnudag enda þótt ekki sé enn ákveðið að fullu með leik- daga né hvar leikið verður, en sennilega verður það á Melavelli. Verður fróðlegt að fylgjast með leikjum þessum. KR og Akureyri hafa verið orðuð við að hafa nú hvað beztu liðunum á að skipa, en Keflavík fær nú aftur 1. deildarlið sem verkefni, ríieira að segja sjálfa íslandsmeistarana og er hætt við að meistararnir verði riýliðunum í 1. deild ofraun að þessu sinni, þó aldrei sé að vita um úrslit fyrir- fram. Fyrir skemmstu var haldið heimsmeistaramót í kappróðri í Sviss, og voru Þjóðverjar þjóða sigursælastir þar, því að þeir unnu fimm af sjö heimsmeistarastigum, sem um var keppt. Þjóðverjar voru líka í þriðja sæti á tveggja manna bátum. Mót þetta fór fram á Rotsee (Rauðavatni) við Luzern. Þjóðverjar sigruðu meðal annars á 8 manna báti, og var þó keppni mjög hörð gegn Frökkum, ítölum og Rússum. Myndin er af sigurvegurunum í þessum róðri. Jimmy Clark frá Skotlandi vann j United States Grand Prix kapp- aksturinn í Watkins Glen í Banda- ríkjunum í gær, 70 sekúndum á undan Graham Hill frá Bretlandi. Er nú aðeins eftir ein keppni af þeim, sem skera úr um heims- meista.-titilinn og eru Clark og HiII þeir einu, sem möguleika eiga á að vinna heimsmeistaratitilinn. Jimmy Clark Clark ók bíl af gerðinni Lotus 25, en Hill bíl BRM. Er bíll Clarks hraðskreiðari, en hefur haft meiri tilhneigingu til að bila. Eina keppn- in sem nú er eftir, er Grand Prix keppnin í Suður-Afríku. Hefur Hill j enn fleiri stig, og nægir honum að | verða númer þrjú í þeirri keppni j til að vinna titilinn. Hins vegar j á Clark möguleika á að vinna, ef I Hill verður aftar, en hann vinnur. Bezti brautartími í gær var um ! 176 kílómetrar, en var um 168 í fyrra. Flestir þekktustu kappaksturs- menn heims tóku þátt í keppninni, svo sem John Surtees á Lola, Innes Ireland á Lotus 24, Jack Brabham. sem tvisvar hefur orðið heims- I meistari, á bíl sem hann hefur rjálfur byggt, Dan Gurney á þýzk- i um Porsche og Bruce McLaren á í ; Cooper. Phil Hill, sem vann heims- j meistaratitilinn í fyrra, tók ekki i þátt í keppninni, þar sem verkfall j er hjá Ferrari og bílarnir ekki til- | búnir. I Fremri röð frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Óskar Jónsson, Páll Guðmundsson, Sigur- bjöm Egilsson, Þór Jónsson, Joszef Czijlag. Aftari röð frá vinstri: Elías Hergeirsson, Guð- mundur Ingi Svavarsson, Þórður Jónsson, Kristján Þór Kristjánsson, Halldór Bachmann, Bragi Bjarnason, Rafn Sigurðsson, Gunnar Aðalsteinsson, Gunnar Pétursson. Á myndina vantar þá Eyjólf Magnússon, Einar Sigurðsson og Þorstein Ingólfsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.