Vísir - 11.10.1962, Blaðsíða 4
VÍSIR . Fimmtudagur 11. október 1962.
whiskyflösku
undir stól
„Við Gunnar Eyjólfsson
vorum að tala um að hafa
með okkur sína Whiský-
flöskuna hvor, á frumsýn
inguna, fara með þær und-
?r stól og koma ekki und-
an þeim fyrr en þær væru
búnar. Það er hræðileg til-
finning að þurfa að fara
að horfa á sjálfan sig við
Fitum ekkert, hvernig
myndin er heppnuð. Ég
reikna með að þetta sé líkt
og að heyra sig á grammó-
fónplötu eða seguibandi í
fyrsta sinn, nema kannske
heldur verra. Það ber ílest
um saman um að þeir hafi
hræðilegustu rödd, sem
þeir hafa heyrt, þegar þeir
heyra hana í fyrsta sinn“.
Þannig fórust Róbert Arnfinns-
syni orð, . er við spurðum hann
hvernig honum væri innanbrjósts
fyrir frumsýninguna á 79 af stöð-
inni.
Róbert er einn okkar reyndustu
leikara. Hefur hann leikið um 70
hlutverk á sviði og auk þess á
þriðja hundrað hlutverka í útvarp.
Hann hefúr ekki fyrr komið nálægt
kvikmyndaleik og segir sjálfur að
hann hafi ekki haft hugmynd um
hvað hann var að fara út í, frekar
en aðrir leikarar í kvikmyndinni.
Það er því fróðlegt að kynnast
hvað hann hefur að segja um kvik
myndaleik, sem starf.
Reynsla á óþekktu
sviði.
— Ekki gæti ég hugsað mér að
skipta frá leikhúsinu yfir í kvik-
myndaleik, sem aðalstarf. Aftur á
móti held ég að það gæti verið
gott að leika i kvikmynd annað
slagið. Ég hafði mikla ánægju af
þessu í sumar. Þetta gefur manni
reynslu á nýju, óþekktu sviði, sem
er svo ólíkt leikhússtarfsemi, sem
nokkuð getur verið.
— Það er út af fyrir sig léttara
að leika í kvikmynd. Þar eru ein-
göngu teknar mjög stuttar senur í
hvert skipti, allt niður í nokkrar
sekúndur. Það útheimtir að maður
verður að geta einbeitt sér að þess-
um senum, án þess að byggja nokk
uð upp að þeim. 1 leikhúsinu leiðir
hver sena af annarri í samhengi,
en í kvikmynd eru senurnar tekn-
ar án nokkurs tillits til samheng-
is.
Bannað að læra
tilutverkin.
því að læra sln hlutverk áður en
komið er að sýningu, aö minnsta
kosti er það talið æskilegra. Ball-
ing lagði hins vegar blátt bann við
því að við lærðum hlutverkin áður
en við mættum til upptöku. Ég
veit ekki hvers vegna það var, en
þó held ég að honum hafi fundizt
að þannig fengist fersklegri og
eðlilegri blær á samræðurnar.
Róberf
4 Arnfinnsson
4 ræðir um
4 muninn á
4 uð leiku á
4 sviði og í
4 kvikmynd
— í kvikmyndum er sama sen-
an tekin aftur og aftur, sem getur
verið erfitt, þegar um er að ræða
mjög tilfinningaríkar senur. Mað-
ur æfir þær á staðnum, á meðan
verið er að stilla upp tækjum og
ljósum og þá fyrst fá leikararnir
að vita hvað leikstjórinn vill fá
fram.
Talað fátt, en hugsað
því meira.
— Þá verður að reyna að halda
sér í þeirri stemmningu, þangað til
maður kemur fyrir vélina. Að
minnsta kosti reyndi ég það. Það
var þannig persóna sem ég lék að
mikið reyndi á þetta. Hann var
mjög lokaður, en ákaflega tilfinn-
ingaríkur, talaði ekki mikið en
hugsaði því meira.
— Þarna komum við að öðru
sem er mjög ólíkt leiksviðinu. í
stað þess að láta Guðmund, sem
ég leik, segja margt, eru notaðar
mikið nærmyndir og augu og svip
brigði verða að túlka tilfinningar
hans. Þarna kemur vel fram hvað
kvikmyndaleikur og Ieiksviðsleikur
er ólíkur. Á sviði verður að stækka
allt, sem sagt er og gert, frá því
hversdagslega, til að draga athygli
áhorfandans að þessari ákveðnu
persónu á sviðinu. í kvikmynd
verður aftur á móti að smækka
frá því sem venjulegt er.
í andstæða átt
i túlkuninni.
lit eða setning, sem maður notar á
sviði, yrði allt of yfirdrifin á tjaldi.
Vélin er notuð til að draga fram
einstaka hluti, sem á að veita at-
hygli í hvert skipti, svo að fara
verður niður fyrir hversdagsleg við
brögð. Það þarf með öðrum orðum
alltaf að undirleika.
— Yfirleitt gekk okkur öllum
mjög vel að tileinka okkur þetta.
Annars vitum við ekkert hvernig
útkoman verður. Danirnir voru að
vísu mjög ánægðir, en það er alls
ekki víst að við verðum það, þeg-
ar við erum búin að sjá myndina.
Mikið andlegt erfiði.
— Það var ákaflega ánægjulegt
að vinna með öllu því fólki, sem
vann að kvikmyndinni. Sérstaklega
var ánægjulegt að vinna með leik-
stjóranum. Um hæfni hans, sem
leikstjóra, get ég ekkert sagt, þar
sem ég hef engan samanburð, en
sem persóna var hann mjög góður
í samstarfi. Vinnudagarnir voru
oft langir, stundum frá átta að
morgni fram yfir miðnætti. Aldrei
brást það þó að hann sýndi okkur
mikla þolinmæði. Þetta var mikið
andlegt erfiði, eins og alltaf er,
þegar maður reynir að gera sitt
bezta, en það léttir mikið fyrir
hvern einstakan, þegar allir leggj
ast á eitt með að gera sitt bezta.
ó.s.
— Þá er það mjög ólíkt, að í — Það verður að fara í alveg
leikhúsunum hefur maður vanizt andstæða átt í túlkuninni. Augnat;;
Nýtt bygginga
fynrtæki
á Akureyri
Nýlega er tekið til starfa á Akur
eyri fyrirtæki sem nefnist Strengja
steypan hf., sem framleiðir bita,
súlur og 18 fermetra þakplötur úr
forspenntri steinsteypu. Fyrirtæki
þetta er uppi í Glerárgili, við hlið
systurfyrirtækis síns, Möl og sand-
ur, sem hefur framleitt þar bygg-
ingarefni undanfarin ár.
Framleiðslan hófst í byrjun sept.
og hefur gengið mjög vel og er
nóg af verkefnum fyrir hendi. Er
nú verið að byggja stórhýsi yfir
fyrirtækið, sem verður að gólf-
fleti um 650 fermetra. Hefur fram-
leiðslan að undanförnu farið frarn
utanhúss og verður reynt að halda
því áfram eins lengi og veður leyfir
en óvíst er að húsið verði komið
upp fyrir veturinn.
Verið er nú að framleiða veggi
í þrjár stórbyggingar, bifreiðaverk
stæðis við Norðurgötu, hlöðu, fjós
og fleira við búfjárræktunarstöðina
að Lundi og stóra birgðageymslu
fyrir verksmiðjuna Sjöfn.
Fyrirtækið er hlutafélag og er
Möl og sandur stærsti hluthafinn,
en auk þess eiga nokkrir einstakl-
ingar í því. Framkvæmdastjóri er
Hólmsteinn Egilsson og verkfræð-
ingur fyrirtækisins er Magnús
Ágústsson. Þriðja systurfyrirtækið
starfar á sama stað, byggingar-
félagið Dofri, og starfa hjá þess-
um þremur fyriríækjum um 30
menn.
Robert í hlutve.
jndar i „79 af stöðinni“ (Ljósm. Vísis, I. M.)J
1000 handfeknir
i A. - Þýzkalandi
Rannsóknarnefnd Frjálsra lög-
fræðinga í Vestur Berlín hefur
gefið út skýrslu þar sem greint
er frá því að rúmlega 1000 manns
hafi verið handteknir frá áramót-
um af pólitískum sökum í Austur
Þýzkalandi. Er þar þó aðeins greint
frá þeim handtökum sem glöggar
fréttir hafa fengizt af en sá hópur
sem ekki er vitað um vafalaust
miklu stærri. Sýnir þetta glöggt
það hörmulega ástand sem ríkir
enn í löndum kommúnismans og
að iögregluríkið hefur ekki enn
verið afnumið.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarnefndarinnar er vitað um
dóma yfir 288 manns á þessu ári
fyrir pólitisk afbrot. Þar í eru þrír
dauðadómar og níu dómar um ævi-
langt fangelsi. 16 dómar fjalla um
fangavist 10—15 ár. Aðrir dómar
eru um fangavist styttra en 10 ár.
Þá veit rannsóknarnefndin af
713 manns, sem hafa verið hand-
teknir í Austur Þýzkalandi á þessu
ári án þess að dómur hafi verið
kveðinn upp yfir þeim. Þar sem
upplýsingar skortir getur verið að
sumir þeirra hafi verið dæmdir, en
Vafalaust er það enn algengt í lög-
regluríki kommúnismans, að mönn
um sé haldið fangelsuðum án þess
að vera leiddir fyrir dómstól.
Reykjafoss
í árekstrí
M.s. Reykjafoss lenti í árekstri
við danskt skip í Kielar-skurði í
Þýzkalandi á sunnudagskvöld.
Danska skipið var frá Samein-
að'1 gufuskipafélaginu. Talsverðar
skemmdir urðu á bakborðsskjóli
og styttum. Skipstjórinn á Reykja-
fossi, Magnús Þorsteinsson, telur
danska skipið ábyrgt. Skipstjórinn
fékk leyfi Lloyds til að fresta við-
gerðinni vegna þess að skipinu ríð-
ur á að geta haldið áfram sigiingu
og skemmdir drógu ekki úr sjó-
hæfni.