Vísir - 11.10.1962, Blaðsíða 10

Vísir - 11.10.1962, Blaðsíða 10
A VÍSIR . Fimmtudagur 11. október 1962. Laus kennarastaða — Frh. af bls. 7. þeim hæfileikamönnum, sem ís- lenzka kenr.arastéttin hefur mcsta þörf fyrir, kemur til hugar að fórna ævi sinni i látiaust strit fyrir lélegra kaupi en lipur af- greiðslumaður í verzlun fær, SICU^ SELUR 8/MX Volkswagen ’55 keyrður 60 þús. svartur kr. 55 þús. Volkswagen ’62, keyrður 18 þús., Ijósgrænn, samkomul. Fiat 1100, station, mánaðargr. Opel Kapitan ’56, einkab. samkl Volkswagen ’55, Ijósgrár, nýend urnýjaður, mótor og kassi. 55 þ Ford station ’59, fallegur bíll, samkomul. Velkswagen 60, skipti á VW 63 Volkswagen ’59, með öllu til- heyrandi. Otb. kr. 90 þús. Volkswagen ’63, keyrður 3 þús. kr. 120 þús. Ford Sodiac ’55 kr. 65 þús. fal legur bíll. Opel Caravan ’60, skipti æski- leg á 4-5 manna bíl, helzt VW '55-’56. Opel Caravan ’59 kr. 115 þús. I útborgun. ; Opel Caravan ’54 kr. 35 þús., samkoi..ul. Þarf lagteringu. ; Ford Cheffir ’58 kr. 95 þús. samkomul. Ford Consul ’57 kr. 80 þús. samkomulag. Mercedes Benz 180-220 gerð. Verð samkomulag. Hefi kaupanda að Mercedes Benz ’62-63 220. ^IRIEIÐASALAN Borgart. 1. Símar 18085, 19615 Laugavegi 146 — Sími 1-1025 Seljum í dag og næstu daga: Standard-Vanguard ’49 — ’50, 30—35 þús. kr. Samkomulag um útborgun. Chevrolet, fólksbifreið. 1955, 6 cyl, beinskiptur, kostakjör. Chevrolet 1959, 6 cyl, beinskipt ur, 115 þús.. 60 þús. útborgun, góður bíll. Chevrolet 1955, station, 6 cyl, beinskiptur, mjög góður blll. Dodge, pick-up ’46 mjög góður, 35 þús. kr. Samktfílulag um greiðslur. Ford Prefect ’55, sérlega góður 65 þús. kr. Staðgreiðsla. Volkswagen ’62 með hagstæð- um greiðsluskilmálum. Fiat ’60, ekinn 30 þús. km. á mjög góðu verði og skilmálum Allar árgerðir af Volkswagen, Moskwith, Skoda fólks- og Station-blfreiðum. | Opel, Ford Taunus og Mercedes Benz, flestar gerðir og árgerðir. FORD SODIAC ’55 góður bíli hagkvæmt verð. RÚSSNESKUR JEPPl 1959 70—75 þús. kr. Höfum kaupendur að vöru- og sendibifreiðum. RÖST hefur áreiðanlega rétta bílinn fyrir yður, og býður yður upp á lipra og örugga þjónustu. SÍMI OKKAR EF 1-1025 og við erum á Laugarve<?i 146 Röst s.f. þegar annað og betra býðst. Verði haldið lengra i þetta horf mun í ísienzka kennarastétt fást aðeins oottnfall Islenzkra háskólamanna, sem vegna hæfileikaskorts og andlegra vankanta hafa hrökklazt frá störfum, 1 itina reka svo hálf menntaðir skussar og gjarnan uppgjafa klerkar, sem nú sem stendur virðast geta fengizt við alls konar kennslu, líklega af því að til þeirra hluta hafa þeir lært ekki neitt. Það hefur verið reiknað út og sýnt með rökum, að fullmenntað- ur læknir, sem hygðist ekki gera líknarstarfsemi þekkingar sinnar að business, heldur vinna fyrir rlki og þjóð, samkvæmt þeim kjör um sem íslenzka ríkið býður upp á, kæmi út að lokinni starfsævi með heildartekjur, sem nema jafnt núverandi launum manns, sem vegna andlegra vanþroska telst aðeins 3/4 normal að viti og má varla minna vera. (Sbr. um- ræður á fundi Bandalags Háskóla- menntaðra manna í apríl s. 1. Sjá annars nánar um kjör lækna, yfirl. í Læknabl. 3. tbl. 1958. Rannsóknir Guðjóns Hansen hagfr.) Hér verður ekki nema að litlu komið við samanburði á kennur- um ,sem taka laun sín klippt og skorin samkvæmt launalögum, við aðra starfsmenn hins opin- bera„ enda alþjóð kunnug sú stað reynd, að bæði ríki og bæjarfélög hafa margfalsaða launaskala fyr- ir fjölda af starfsfólki. En sú stað reynd blífur, að háskólamenntað- ur kennari við framhaldsskóla hef ur í byrjendalaun kr. 5.303,00 og kemst hæst í kr. 6.276,00 pr. mán- uð brúttó fyrir 30 kenndar stund- ir, og ætlazt er til að að baki hverrar kennslustundar liggi y2 stund og hefur hann þannig fyrir 45 st. vinnuviku um 1.600 kr. Er þá ekki meðtalinn tími í ferðir til og frá vinnustað né tími, sem fer til ónýtis vegna skipulags eða skipulagsskorts, en það vill víða við brenna, einkum í tvísettnum skólum, að allmikill biðtfmi vegna stundaskrár fari til ónýtis.Til þess að höndla þetta hnoss, hefur há- skólamenntaður kennari eytt einu ári í miðskóla, 4 árum í mennta- skóla og 5-7 beztu árum ævi sinn- ar í háskóla. Samtals 10-12 árum. Við mat á því sem hann hefur á sig lagt, kemur fyrst til greina 10 ára tekjutap á þeim árum, sem lífsþróttur flestra er hvað mestur, í viðbót kemur svo beinn kostnað ur af námi, sem er eigi alllftill, hvort sem nemandi sjálfur, for- eldrar eða vandamenn standa þar af, og auk þess fyrirhöfn við erfitt nám .skortur og óþægindi, sem fjölmargir háskólaborgarar leggja á sig þroskaár sín, svo enn fremur námsskuldir og vextir af þeim, sem margir þurfa að drag- ast með Iengi ævinnar. Sé þetta haft í huga og það með, að fjöl- ..largir unglingar um 16 ára að aldri vinna í daglaunavinnu fyrir tæpum 2000 kr. á viku yfir sum- artímann, að vikulaun háskóla- menntaðra kennara eru rúmt 1 y2 dagkaup iðnsveina á uppmælinga taxta, vélstjórakaup á fiskibát er lágmark 10 þús. kr. á mánuði, og að tæplega ræður nokkur ung- ur maður sig hjá fyrirtæki sem einhver veigur er f, fyrir minna en 7 — 8 þús. kr. byrjendalaun, fara jafnvel tregustu stjórnmála- menn að skilja orsök fyrir vax- andi skorti á kennurum. Frekari samanburðar við einstakar stétt- ir verður ekki gerður hér. Hver lesandi, sem hefur einhverja inn- sýn í atvinnu- og launamál getur gert hann sjálfur. Hér skal hins vegar geta þess, að gangverð fyr- ir 3ja herb. leiguíbúð i Reykjavik er 2500 — 3000 kr. pr. mánuð, al- gert lágmark fyrir heimilisútgjöld venjulegrar 4ra manna fjölskyldu er um 3000 kr. Eru þá eftir um 700 kr. í önnur útgjöld: sjúkra- samlag, síma, strætisvagna, skatta. Fer þá að verða vandséð fyrir afgangi í fatnað, afborganir og vexti af námsskuldum og lík- lega loku fyrir það skotið, að hægt sé af safna miklu fé til að eignast skýli yfir höfuðið!! Skylt er að geta þess, að þessi sultarkjör koma ekki jafnhart niður á öllum. Háskólamenntaðir kennarar með 10—12 ára náms- feril eru auðvitað miklu verr sett ir með þessi laun en t. d. íþrótta- kennari, sem getur byrjað starf eftir 9 mánaða námsskeið, eða hússtjórnarkennslukona eftir um tvo vetur á hússtjórnarnámskeiði, en þessir aðilar fá allir sömu laun. Ekki „launajöfnuður“ heldur mismunur — s e kt! Þessi „launajöfnuður" er í eðli sínu ekkert annað en sekt til handa þeim, sem eyða rúmum tug beztu ára ævi sinnar í að öðlast tilskilda þekkingu til starfa síns, sekt sem nemur tekjuupphæð þeirra ára er hann dvelst lengur við nám að viðbættum námskostn aði og vöxtum og getur þýtt l/5— 14 beinlínis minni ævitekjur. Ekki þar fyrir — einhleypt ungt fólk er ekki ofsælt af byrjendalaunum framhaldsskólakennara, þó það geti byrjað starf strax 18 ára að aldri. Geta má þess, að í helztu menn ingarlöndum Evrópu er kaup kennara ríflega tvöfalt við það sem hér er að krónutali og miklu meira miðað við kaupmátt. Kostir þeir, sem hinn langskóla gengni kennari verður að gera upp við sig hvefjSThánn kýs, eru þá þessir: 0 í fyrs'ta iagi: Að vinna tvö- faldan vinnudag til þess að ná þeim tekjum, sem lágmark má telja að dugi fjölskyldu til lífs- viðurværis, og láta slag standa hvort þrek hans endist við svo erfitt starf og hvort vinna hans verður þannig nokkurs virði, þeim sem hennar eiga að njóta, —- og nota enn fremur sumar- Ieyfisdaga hvern og einn til vinnu, í stað þess að hvílast, halda þekkingu sinni við og auka hana. Þennan kost taka flestir þeir, sem enn þá er að finna í kennarastétt. • í öðru Iagi: Þar sem laun eru ekki miðuð við að hægt sé að framfleyta fjölskyldu og stunda starf sitt á sómasam- legan hátt, þá að neita sér um þann þjóðfélagslega munað að stofna heimili, eignast fjöl- skyldu, til þess að geta fórnað sér fyrir starfið. Einhleypur maður getur nokkurn veginn lifað á núverandi föstum kenn- aralaunum, ef hann leigir lítið herbergi, borðar ódýrt og kaup- ir ekki meira en ein föt á ári á útsölu. Enda algengt, að hús- mæður, sem Iausar eru við barnastúss og einhverja mennt- un hafa hlotið, fáist við kennslu til þess að fá hæfilega vasa- peninga. 0 Þriðji kosturinn er svo ein- faldlega sá að gefa viðeigandi yfirvöldum menntamála langt nef og leita sér starfa þar sem hvorki er krafizt að menn búi við sultarkjör eða meinlæti. Síendurteknar auglýsingar um' lausar kennarastöður og síhrak andi álit íslenzkrar kennara- stéttar bera því Ijósast vitni í hvaða átt stefnir. Friðrik II. og sr. Magnús Helgason. Þegar Friðirk II. Prússakeisari var að efla! skólakerfi lands síns, fann hann það þjóðráð að fá af- lóga atvinnuhermönnum sínum það starf að uppfræða smábörn. Þetta voru lífsreyndir menn — frá öllum vígvöllum, öldur- og vændishúsum álfunnar um ára- raðir. Hvort afleiðing þessa snjall ræðis var sá andi meðal hluta þýzku þjóðarinnar hálfri annarri öld síðar, sem leitaði forms í þessari setningu: „Þegar ég heyri orðið menning, spenni ég bóg skammbyssu minnar“, skal ósagt látið. Hinn mikli húmanisti sr. Magnús Helgason, skólastjóri, lagði út af öðru sjónarmiði ann- ars Þjóðverja í einni Kveldræðna sinna, er sagði á árunum 1914 til 1918 að sú þjóð sem á beztu skólana, hlýtur að sigra, geri hún það ekki í dag, þá áreiðanlega á morgun. Vestur-Þýzkaland er í dag án efa frekar árangur síð- ara sjónarmiðsins, árangur starfs þrautmenntaðrar þjóðar, sem snýr jafnvel herfilegasta styrj- aldarósigri upp í efnahagslega sigurgöngu á friðartímum. Uppbygging eða tortíming. Islenzka þjóðin hefur um nokk- urt skeið búið við nokkuð hag- stætt, en ónormalt fjárhagslegt ástand, sem er sumpart afleiðing stríðsgróða, og sumpart afleiðing erlendra lána og gjafa. Sú verð- ur tíð, að við munum þurfa að standa á eigin fótum í þjóðahafi, sem er nú að renna saman í fáar eða eina heild. Það er án efa heppilegt fyrir miðlurigsgefna pólitíkusa að eiga fyrir undirsáta hálfmenntaða þjóð flysjunga, auð- leidda, auðtrúa, sneydda heil- brigðri gagnrýni, en verði svo í framtíðinni, er það þó sama og taka þessari þjóð gröfina. Framtíð íslands og íslendinga liggur hins vegar i því að við fáum kallað fram og þjálfað alla beztu hæfileika hvers einasta ein- staklings, veitt honum þá mennt- un, kunnáttu og starfshæfni sem frekast er unnt. Á þann hátt og þann einan er hægt að tryggja það, að við verðum ekki meira aftur úr í uppbyggingu nútíma þjóðfélags en orðið er, dögum ekki uppi sem nátttröll á nýrri öld, heldur getum tekið okkur þann sess meðal þjóða heimsins, sem náttúruauðæfi og orkulindir landsins og hæfileikar þjóðarinn- ar gefa möguleika á. Og grundvöllur þess árangurs, sem við kunnum að ná, leggja íslenzkar mennta- og vísindastofn anir, sem byggðar eru upp af ís- lenzkum skóla og starfskröftum þeirra. E. J. S. Brúðcan — Framhald af bls. 9. burði til þess að maður trúi því að hann hafi sigrað í vinnuein- víginu. Gunnar Bjamason hefur gert mjög þokkaleg leiktjöld. 'O'eildarsvipur sýningarinnar var að mörgu leyti góður en það kom á óvart hversu algengt það var að leikarar mismæltu sig eða þyrftu að endurtaka ein- stök orð. Stundum gripu þeir meira að segja inn í á röngum stöðum og varð það til lýta. Þá er og fráleitt að þurfa að horfa upp á það að leikarar séu að laumast og læðupokast á bak- sviði eins og þegar viðvaningar eru að leika í skólaleikritum. Það var eins og þeir væru sumir hverjir yfirspenntir á taugum. En leikritið er gott og túlkunin víða með miklum ágætum. Njörður P. Njarðvík. Sniðskóli Berglfótar Ólafsdóttur Sniðkennsla — Sniðteikningar — Máltaka — Mátanir. Næsta námskeið hefst föstudag. SAUMANÁMSKEIÐ Innritun í síma 34730. Matráðskona Matráðskona óskast að vistheimilinu að Arn- arholti. — Upplýsingar í síma 2-24-00. Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. MILLAN - HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI Opn ðalla daga frá kl. 8 að morgni, til kl. 11 að kvöldi. Viðgerðir á alls konar hjólbörðum. — Seljum einnig allar stærðir hjólbarða. — Vönduð vinna. — Hagstætt verð. — MILLAN, Þverholti 5. BILA OG BILPARTASALAN Höfum til sölu m. a.: Dogde ’55 einkabíl, skipti æskileg á góðum 4 manna bíl ’58—60. Ford ’55 station skipti æskileg á fólksbíl. — 20 tommu ford felgur með dekkjum, skipti- drifs hausing og góðar sturtur af 4 tonna bíl. Hellisgötu 20, Hafnarfirði, sími 50271. mmm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.