Vísir - 13.10.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 13.10.1962, Blaðsíða 5
V 1 S I R . Laugardagur 13. október 1962. 5" E3 Kosid í fastanefnd- ir Alþingis í gær SAMEINAÐ ÞING: Á Alþingi í gser var kosið í fastanefndir. Nefndaskipan varð sem hér segir: Fjárveitinganefnd: Guðlaugur Gíslason S, Gunnar Gíslason S, Birgir Finnsson A, Kjartan J. Jó- hannsson S, Jón Árnason S, Hall- dór E. Sigurðsson F, Halldór Ás- grímsson F, Karl Guðjónsson K, Ingvar Gíslason F. Utanríkismálanefnd: Birgir Kjar an S, Jóhann Hafstein S, Gísli Jónsson S, Emil Jónsson A, Her- mann Jónasson F, Þórarinn Þórar- insson F, Finnbogi R. Valdimars- son K. Varamenn eru Ólafur Thors S, Bjarni Benediktsson S, Gunnar Thoroddsen S, Gylfi Þ. Gíslason A, Eysteinn Jónsson F, Gísli Guð- mundsson F, Einar Olgeirsson K. Allsherjarnefnd: Gísli Jónsson S, Jónas G. Rafnar S, Pétur Sig- urðsson S, Benedikt Gröndal A, Gísii Guðmundsson F, Björn Páls- son F, Geir Gunnarsson K. Þingfararkaupsnefnd: Kjartan J. Jóhannsson S, Einar Ingimundar- son S, Eggert Þorsteinsson A, Hellirinn — Framh, af 16. síðu: er lagður, er hinn svokallaði Raufarhólshellir, 1800 metra langur hellir, sem er á margan hátt hinn sérstæðasti. Áður var klukkutíma gangur úr næstu byggð í hellinn, frá Hlíðardals- skóla, en nú er aðeins 2 min- útna gangur frá veginum nýja, eða 300 metrar. Raufarhóishellir er einn af tíu stærstu hellum landsins. Hann er mjög erfiður yfirferðar, eink- um vegna þess að hann hefur hrunið mikið. Eru í honum stór- ar dyngjur, sem þarf að klifra yfir. Óttast menn nú að ennþá meira muni hrynja úr hellinum, þegar svona miklar framkvæmd ir eru á næsta leiti við hann. Tvö göt eru á hellinum og sæmileg birta frá þeim. Oft eru miklar og fallegar ísmyndanir fyrir innan þessi göt, og þess má geta, að snjó leysti ekki í Raufarhólshelli fyrr en fyrir nokkrum vikum. Þegar birtuna frá opunum þrýtur er mjög dimmt í hellinum og varasamt að fara inn í hann án góðra ljósa. Er fólk sérstaklega varað við þvi. Innst inni skiptist hellirinn í tvær meginálmur og út úr ann- arri þeirra er hliðarskot. Þar inni er mjög fallegt. Raufarhólshellir hefur fleira sér til ágætis. Þar inni hefur verið að finna svokallaða drop- steina, en nú orðið er mjög Iítið eftir af þeim. Þeir hafa bæði brotnað af og verið brotnir, þótt það sé stranglega bannað, því slíkir steinar eru friðaðir sam- kvæmt lögum. Flestir þeirra eru á þykkt eins og blýantar og allt upp í hálfan metra á lengd. Nú þegar svona stutt verður að fara í Raufarhólshelli, má búast við að bæði fólk r ferða menn staldri við og líti á og í hellinn. Menn eru því allir var- aðir við að fara gætilega, hafa góð ljós og hafa augun opin. því sífellt má búast við hruni úr þaki hellisins. Halldór Ásgrímsson F, Gunnar Jó- hannesson K, EFRI DEILD: Fjárveitingamefnd: Ólafur Björns son S, Magnús Jónsson S, Jón Þorsteinsson A, Karl Kristjánsson F, Björn Jónsson K. Samgöngumálanefnd: Bjartmar Guðmundsson S, Jón Árnason S, Jón Þorsteinsson A, Ólafur Jó- hannesson F, Sigurvin Einarsson F. Landbúnaðarnefnd: Bjartmar Guðmundsson S, Sigurður Ó. Óla- son S, Jón Þorsteinsson A, Ásgeir Bjarnason F, Páll Þorsteinsson F. Sjávarútvegsnefnd: Jón Árnason S, Kjartan J. Jóhannsson S, Egg- ert Þorsteinsson A, Sigurvin Ein- arsson F, Björn Jónsson K. Iðnaðarnefnd: Magnús Jónsson S, Kjartan J. Jóhannsson S, Egg- ert Þorsteinsson A, Hermann Jón- asson F, Ásgeir Bjarnason F. Heilbrigðisnefnd: Kjartan J. Jó- hannsson S, Auður Auðuns S, Jón Þorsteinsson A, Karl Kristjánsson F, Alfreð Glslason K. Allsherjarnefnd: Ólafur Björns- son S, Auður Auðuns S, Friðjón Skarphéðinsson A, Páll Þorsteins- son F, Finnbogi R. Valdimarss. K. NEÐRI DEILD: Fjárhagsnefnd: Birgir Kjaran S, Jóhann Hafstein S, Skúli Guð- mundsson F, Sigurður Ingimund- arson A, Lúðvík Jósefsson K. Samgöngumálanefnd: Sigurður Ágústsson S, Jónas Pétursson S, Benedikt Gröndal A, Björn Páls- son F, Hannibal Valdimarsson K. Landbúnaðarnefnd: Gunnar Gísiason S, Jónas Pétursson S, Benedikt Gröndal A, Ágúst Þor- valdsson F, Karl Guðjónsson K. Sjávarútvegsnefnd: Matthías Mathiesen S, Pétur Sigurðsson S, Birgir Finnsson A, Gisli Guð- mundsson F, Geir Gunnarsson K. Iðnaðarnefnd: Jónas Pétursson S, Matthías Mathiesen S, Sig- urður Ingimundarson A, Þórarinn Þórarinsson F, Eðvarð Sigurðs- son K. Heilbrigðis- og félagsmála- nefnd: Gísli Jónsson S, Guðlaug- ur Gíslason S, Birgir Finnsson A, Jón Skaftason F, Hannibai Valdi- marsson K. Menntamálanefnd: Ragnhildur Helgadóttir S, Alfreð Gíslason S, Benedikt Gröndal A, Björn Fr. Björnsson F, Einar Olgeirsson K. Allsherjarnefnd: Einar Ingi- mundarson S, Alfreð Gíslason S, Sigurður Ingimundarson A, Björn Fr. Björnsson F, Gunnar Jóhannsson K. lítibúið — f .amhald af 16. síðu: útibú á stofn. Á ég þar við að sleppa frá aðalbankanum Helgu Kristinsdóttur, sem hefur verið ein af fliótvirkustu og hæfustu starfs- mönnum bankans. Ég get talað af reynslu sem umboðsmaður margra lántakenda um langt skeið.“ Sæsímasf rengur — Framhald af bls t leið, ef veður verður hagstætt og ekki um bilanii að ræða af nein- um öðrum orsökum. Sæsíuinn er lagður til Vestmannajyia tekinn á j land á sama stað og sá. sem þang- að liggur frá Skotlandi, og er land , tak tilbúið. Sýning á verkum Kristínar í fyrsta skipti í tíu ár, er nú haldin sýning á verkum Kristínar Jónsdóttur. Gangast dætur hennar, Hulda og Helga Valtýsdætur fyrir henni og hefst hún í dag kl. 4 í Bogasal Þjóðminja- safnsins. Á myndinni sjást Hulda og Helga Valtýsdætur við eitt af málverkum móður sinnar. Unnið að kappi við Tollvörugeymsluna Unnið er kappsamlega við áfanga tollvörugeymsl unnar, en ekki er víst, að unnt verði að ljúka hon- um, áður en frost gerir. Vísir átti í gær stutt samtal við Albert Guðmundsson, stórkaup- mann, form. Tollvörugeymslunnar h.f., og spurði hann, hvað málum þessum liði, og hvort unnt mundi að láta fyrirtækið hefja starfsemi sína nú í haust. Albert kvað það vera of mikla bjartsýni að gera ráð fyur, að hægt væri að byrja strax í haust að taka á móti vörum og geyma þær. Til þess væru framkvæmdir á mannvirkjum fyrirtækisins ekki nógu langt á veg komnar. Eins og getið hefir verið í blöðum, er búið ; að reisa einn vöruskálann, og unn- ið er kappsamlega við að koma upp I skrifstofuhúsnæði, þar sem full- trúar tollstjórnarinnar munu hafa j aðsetur sitt, skrifstofur verða vegna toilútreikninga og þar fram eftir götunum. Það fer eftir því hversu snemma frostin hefjast í haust, hvort int verður að ljúka þessum fyrsta áfanga framkvæmd anna alveg, en í honum er einnig | fólgið að lagfæra port á lóð fyrir- tækisins. Þarf að grafa það tals- vert upp og fylla síðan aftur, en að því búnu verður móttökusvæðið malbikað. Starfslið hefur fyrirtækið ekki I ráðið enn, enda málið ekki komið á þann rekspöl, að þess sé þörf. Bárður Daníelsson verkfræðingur, sem teiknaði mannvirki Tollvöru- geymslunnar h.f. hefir haft um- sjá með byggingarframkvæmdum, en hægri hönd Alberts að öðru lcyti. hefir verið Helgi Hjálmsson, sem annars er starfandi við Verzl- unarráð íslands. Þó ekki takist að ljúka fyrsta áfanganum í haust, ætti fyrirtækið að geta hafið þjónustu sína við innflytjendur snemma á næsta vori. Saman á RÖÐLI Það er góð tilbreyting að geta skroppið í kínverskan mat á Röðli þessa dagana. „Snillingurinn Wong“ eins og hann er kallaður í auglýsingum skemmtistaðarins matreiðir þar gómsæta rétti úr kjúklingum, öndum og að ó- gleymdum hrísgrjónunum. Það er alveg sérstakt bragð af þessum mat, ljúft og gott. Matur- inn er ekkert dýrari en annar mat- ur, en óneitanlega forvitnilegri. Það skaðar ekki meltinguna að sjá skemmtikraftinn Bror Mauritz- Hansen tvisvar um kvöldið með sín æsilegu látbrögð. Við höfum áður getið hans að góðu og látum þar við sitja. Áhorfendur skemmtu sér konunglega yfir látum hans, þegar við litum þangað inn eitt kvöldið til að smakka hjá Kín- verjanum. Eftir aðsókninni að dæma er Röðull velsóttur skemmti- staður þessa dagana eins og endra- nær. LIONS-klúbbur ú Putreksfirði Frá fréttaritara Vísis. Þann 6. þ. m. var haldin stofn- skrárhátíð Lionsklúbbs Patreks- fjarðar í veitingastofunni Ösp. Þar voru saman komnir klúbbaðilar og konur þeirra, auk nokkurra gesta frá Lionsklúbbum Reykjavíkur, ísafjarðar og Bolungarvíkur. Um- ö.-misátjórinn hér á landi, Hilmar Foss, hélt ræðu og skýrði mark- mið þessa félagsskapar og afhenti síðan stofnskrá klúbbsins. Síðan voru fluttar árnaðaróskir og gjafir færðar frá hinum ýmsu Lions- klúbbum. Meðlimir Lionsklúbbs Patreks- fjarðar eru 28. Formaður er Sig- urður Jónasson, gjaldkeri Ingólfur Arason og ritari er Jakob Helga- son. SöEumiðsföðin — Fran.hald at bls. 1. auk þess sem það eru mikil út- gjöld fyrir Sölumiðstöðina að reka verksmiðjuna með tapi kann- ske ár eftir ár. Sjón varpstækjum fjölgar Sjónvarpstækjum fer sti'ðugt fiölgandi í Revkjavík og násrenni t'aðið snurð'-’t fvrir Mí Viðtspk'a "orzlun ríkisin0 f’ölda heirra fAl rlr iinnl«'f"in»tpr pfl Lop|(l ---- ha. \ rí vitað <mi. vær« um ■”>0 t»qr kotn " ttfki sem fh’tt hafa ' ð af Keflavfkur ,,""velli oít seld hié sölunefnd varnarliðseigna, án þess að Við- tæk'sverrlunir. hefði þar nein af- skinti. "eliendum tækjanna ber saman <—- nð sala < t!»ir:<<n"»'»'i sé talsverð tfefur höri verið Iftil vfir sumar- ur. Lætur fólk það ekki á sig fá þó að tækin kosti frá 15 þús. kr. Binda sjónvarpseigendur miklar vonir við hinn nýja sjónvarpstum á Keflavíkurflugvelli og einnig væntanlega stækkun stöðvarinnar. Er búizt við að móttökuskilyrði I Revkiavík muni batna til muna við þetta, en þau hafa viða verið mjög slæm til þessa.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.