Vísir - 18.10.1962, Blaðsíða 1
VISlR
52. árg. — Fimmtudagur 18. október 1962. — 239. tbl.
Stjórnar
síldar-
leitinni
Jón B. Einarsson skip-
stjóri bíður eftir nýju
síldarleitarskipi, og eftir
því að komast út á sjó.
— Það verður ekki fyrr
en búið er að semja,
sagði hann í morgun.
Jón hefur eins og kunn-
ugt er verið skipstjóri á
síldarleitarskipinu Fann
ey í fjölda mörg ár, á
síðasta sumri var Jón
með Pétur Thorsteins-
son .Nú fær hann nýtt
skip, Guðmund Péturs,
Framhald á bls. 10.
rr
LITLU, HVÍTU TÖFLURNAR
í fyrradag tók lögreglan í Reykjavík fastan bifreiðarstjóra, sem ók
bifreið sinni undir annarlegum áhrifum deyfilyfja.
Yfirmaður rannsóknarlögreglunnar sagði Vísi í morgun, að það
hefði komið þráfaldlega fyrir að bifreiðastjórar hefðu verið teknir í
slíku ástandi.
Þetta sýnir hve deyfilyf jamálið er orðið alvarlegt í íslenzku þjóðfélagi.
Vísir drap á eina hlið þess í gær á forsíðunni.
í dag birtum við hér fyrir neðan ummæli yfirlæknis Slysavarðstof-
unnar og þau eru ekki fögur.
ÚHU6NANLE6A MAR6IR
NEYTA DEYFIL YFJA "
segir yfírlæknir Slysavarðstofuiwar
— Koma hingað marg-
ir undir áhrifum deyfi-
lyfja?
— Óhugnanlega marg-
ir, svaraði Haukur Krist
jánsson, yfirlæknii
Slysavarðstofunnar. -
Sumir, hélt Haukur á-
fram, eru undir áhrifum
örvandi lyfja, t. d. am-
fetamíns og preludins,
aðrir undir áhrifum ró-
andi lyfja, svokallaðra
tranquillizers, og svo er
það fólkið, sem er flutt
hingað í móki, eftir að
hafa tekið inn of stóran
skammt af svefntöflum.
Við höfum ekki fengið
eiturlyfjasjúklinga, t. d.
morfínsjúklinga.
— Eruð þið beðnir um lyfin?
— Sumir eru að biðja um
þau. Aðra fjytur lögreglan
hingað. Það er t. d. ekki óal-
gengt að hún komi með öku-
menn, sem hún hefur fundið
undir annarlegum áhrifum, án
þess að vínlykt væri af þeim.
Svo eru margir fluttir hingað
nærri ósjálfbjarga. Þeir sem
koma til að biðja, vilja fá
prella eða amma, eins og þeir
kalla það.
— Hvar hefur þetta fólk
fengið lyfin?
— Eftir því sem við komumst
Haukur Kristjánsson yfirlæknir.
Iyf hjá sjómönnum, eða eru
sjálfir togarasjómenn og hafa
komið með þau með sér frá út-
■ilfífldiim M^r i .ilttoL ft&iiilinili m
einkum frá Þýzkalandi. Þar eru
sum þessara lyfja seld án lyf-
seðla. Komið hefur fyrir að
menn hafi tæpt á þvi, að þeir
hafi fengið þessi lyf hjá manni
hér í bæ, sem selji fyrir aðra,
Þeir, sem nota deyfilyf og
svefnlyf fá þau einkum gegn
lyfseðlum frá læknum í
bænum. Oftast stendur notkun
þessara örvandi og deyfandi
lyfja í sambandi við vín. Annars
höfum við ekki aðstöðu til að
fá þetta fólk til að segja frá
öllu. Það er heldur ekki í okkar
verkahring. En það játar ýmis-
legt en er samt tregt til að
segja hvar lyfin séu fengin.
— Nefna sjúklingarnir nokk-
ur nöfn?
Það jr undarlegt, en margt
af þessu fólki sýnist vera
dómgreindarlaust fólk, þegar
það kemur hingað, vegna þess
hve mikið það hefur tekið inn.
En það nefnir aldrei nöfn, seg-
ist aðeins hafa fengið þetta hjá
kunningjum, eða „strákunum“
og einn kvaðst vera í klíku o.
s. frv. Það er áberandi hvað
togarasjómenn eru margir með-
al þeirra sem koma hingað und-
ir áhrifum.
Er þetta forfallið fólk?
— Margir eru það, ef ekki
flestir. Sumir nota örvandi lyf
á morgnana til að hressa sig
upp og deyfilyfin á kvöldin til
að komast í ró. •
— Hvað gerið þið við þetta
SÍLDARVERÐIÐ:
Samkomulag í nótt /
Jón B. Einarsson skipstjóri var staddur á Grandagarði i morgun. Hann
stóð hjá 250 tonna tappatogara, sem er eins og það skip, sem hann fær
íftir nokkra daga til síldarleitarinnar í vetur. (Ljósm. Vísis, I. M.).
Algert samkomulag náð-
ist í nótt í verðlagsráði
sjávarútvegsins um síldar-
í verð í öllum verðflokkum.
Bræðslusíldin lækkar um
3 aura hvert kílógramm,
sökum verðfalls á lýsi og
mjöli á heimsmarkaðinum.
En á móti því kemur að
verð á frystri síld hækkar
um 5 aura og að stórauk-
inn markaður hefir fengizt
fyrir frysta síld svo að það
ætti að bæta upp lækkun
bræðslusíldarinnar, og vel
það, ef að líkum lætur.
Verð á síld til söltunar, flökun-
ar og útflutnings er óbreytt frá því
í fyrrahaust, svo að í heild eru
litlar verðbreytingar siðan f fyrra.
í Verðlagsráði sjávarútvegsins
eiga sæti 6 fulltrúar síldarkaup-
enda og jafnmargir frá síldarselj-
endum, en það er 3 sjómenn og
þrír útvegsmenn, formaður er
Sigurður Pétursson. Hver um sig
hefir neitunarvald, þ. e. a. s. getur
Frh. á 10 Wo