Vísir - 20.10.1962, Blaðsíða 10

Vísir - 20.10.1962, Blaðsíða 10
iO VISIR . Laugardagur 20. október 19(52. Eysteinn og tækjagjaldið til vill hafa einhverjir hald- ið að Eysteinn Jónsson væri framsýnn stjórnmálamað- ur. Þeir munu hafa. orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar þeir heyrðu ræðu hans um efna- hagsn 'lin og vextina á þingi í fyrradag. Hvemig vildi Eysteinn láta leysa síldveiðideiluna? Tillaga hans var sú, að gengið yrði að öllum kröfum sjómanna og síð- an yrði ýtvegsmönnum greidd sérstakt uppbótargjald sökum hinna dýru tækja, sem þeir hafa keypt til báta sinna. Þá mundi útgerðin geta staðið undir stórhækkuðu kaupi. Þama talaði snillingurinn, sem lærði sína fjármálafræði í Samvinnuskólanum. Hvað er nú athugavert við slíkan röksemd- arflutning? |Jér fer Eysteinn Jónsson fram á hvorki meira né minna, en að uppbótarkerfið verði innleitt aftur í allri sinni dýrð. Ætti hann þó manna bezt að vita að það hefir gengið sér til húðar i ísienzku efnahagslífi á tuttugu undanförnum árum. Það er einmitt mergurinn máisins, að mesta mein útgerð- arinnar hafa verið uppbæturn- ar, að þvi leyti, sem þær hafa hvatt til kæruleysis um rekstur og bruðls c sóunar á fjármun- um, sem betur hefðu verið komn ir annars staðar. Siðan var tap- inu skellt á ríkið. Þessa sögu þekkja allir, og fæsta — nema Eystein mun Ianga til þess að hefja aftur þá raunaroliu, Cvo er önnur hiið á málinu ^ sem ekki má gleyma. Hvaðan ætiar Eysteinn Jónsson að taka uppbæturnar tii útgerð- armanna? Auðvitað verða þær að koma úr ríkiskassanum. Og hvaðan fær ríkiskassinn fé sitt? Úr vösum skattborgar- anna. Þær kosta með öðrum orðum nýjan skatt á Iandsfólk- ið. Og þetta er kjarni málsins. Formaðu. Framsóknarflokksins Ieggur til að bændur, verzlunar- og iðnaðarmenn séu skattlagðir til þess að útgerðarmenn fái keypt sér ný fiskveiðitæki. Slík hagfræði mun fæstum þykja góð latína. Hitt er sönnu nær að sjómenn og útgerðar- menn komi sér saman um hæfi- lega skiptingu aflahluts og tekna útgerðarinnar. Þar verður óhjákvæmiiegt að tekið sé tillit til þess að útgerðin hefir orðið að Ieggja í mikinn kostnað vegna nýrra tækja. En hvaða afleiðingar hefir það haft fyrir sjómenn, engu síður en út- gerðarmenn? Stórlega aukinn afia á síld- veiðunum. J/r það nokkur frágangssök þótt sjómenn, sem margir hverjir hafa á annað hundrað þúsund krónur í tekjur eftir nokkurra mánaða vertíð, taki nokkurn þátt í kaupum þessara dýru tækja? Er það ekki sanngirniskrafa að þeir greiði hluta þeirra tækja, sem auka svo mjög tekj- ur þeirra — og afla skipanna? Vestri. Nautnalyfjaneyzla - Framhald at bls. 4. um þar sem íslenzkir sjómen/i verzla. — En finnur lögregian ekki þess háttar smyglvarning í fórum manna sem eru undir deyfilyfja áhrifum hér í Reykjavík? — Lögreglan finnur mikið — í rauninni alltof mikið — af pill- um í fórum gistifanga sinna. — Og hvar telja þeir sig hafa fengið þær? — I sumum tilfellum segja þeir ekki neitt, gefa ekkert upp og eru þögulir sem gröfin. En í mörgum tilfellum þarf ekki að spyrja, því að umbúðirnar segja til um hvaðan lyfin eru komin. Og þau eru undantekningarlítið úr einhverri lyfjabúðinni hér í Reykjavík, gefin út á lyfseðli frá einhverjum lækni. En jafnvel það — þótt allt sé eðlilega eða lög- lega fengið — vilja eigendurnir ekki viðurkenna. Þeir reyna þvert á móti iðulega að rffa merkið af glasinu og koma lyfseðlinum fyrir kattarnef. Þeim finnst það trúnað arbrot að gefa upp hvaðan lyfið er fengið. Óttast e .t. v. líka að fá ekki lyf þaðan oftar ef Iögregl- an verður áskynja um hvaðan það er fengið. — Talið þið við lækna sem gefa þessa lyfseðla út? — Já, stundum gerum við það Við þurfum oft, eða viljum a. m. k. vita af hverju viðkomandi maður hefur þessi meðöl undir höndum og til hvers honum hafi verið gefin þau. Læknar svara ýmsu. — Hverju svara Iæknamir til? — Ýmsu. Stundum sjá þeir aumur á mönnunum, þeir bera sig ilia, þurfa að fara á sjóinn eða sinna áríðandi erindum en eru niðurbrotnir eftir fyllirí og þurfa á hressandi meðali að halda, eða þá að konur þeirra eru að springa af offitu og þurfa að megra sig til að halda línunni o. s. frv. Ástæðurnar eru margar, en hins vegar tími læknanna oft- ast svo naumur að þeir hafa ekki tíma til að kanna málið ofan í kjölinn, nenna heldur ekki að standa i orðaskaki við pillubeið- arann og þetta endar venjulegast með því að hann fer út með lyí- seðilinn í höndunum. — Stundum falsa menn líka lyf seðla? — Jú, það þekkjum við líka, en það er ekki hægt að segja að það séu mikil brögð að þvi. — Hafið þið ekki ákveðna menn grunaða um að selja pillur? — Það hafa stundum verið nefnd nöfn í því sambandi, en ekkert sannast. Eitt sinn vitn- aðist að nokkru magni af pillum hafði verið stolið úr einni Iyfja- búð borgarinnar. Þjófurinn tók að selja þær og þá vitnaðist strax hver hann var. Kunningjar „hjálpa“. Margir, sem við höfum talað við, segjast hafa fengið pillur gefins hjá kunningjum sínum, án þess þó að vilja segja hver kunn- inginn er. Nú það að gefa hefur ekki verið talið til lögbrota, jafn- vel þótt sala geti i vissum til- fellum talizt óheimil. Og við vit um það líka að menn verða stund um óskaplega góðir þegar þeir eru undir áhrifum og vilja endi- lega miðla öðrum af þeirri sælu sem þeir njóta sjálfir. En svo má líka geta þess að lögreglan hefur vitneskju um menn cem hafa játað að hafa selt pillur í hrekkjaskyni. Við vitum um tilfelli þar sem þeir, seldu gjörsamlega saklausar bætiefna- pillur sem örvandi meðal og fólk ið keypti þær í þeirri trú að það kæmist undir áhrif. í öðrum til- fellum seldu þeir hægðapillur í sama :yni, en í staðinn fyrir að komast í einhverja „himnaríkis- sælu“ fékk það óstöðvandi niður- gang. Þetta er líka til í málinu. Eru læknar of örlátir? — Hefur þetta eiturlyfja- eða pillumál valdið lögreglunni á- hyggjum. — Ekki aðeins áhyggjum held ur einnig gífurlegri vinnu og stöð ugum eltingarleik — eltingar- Ieik sem endar nær alltaf á sama staðnum — við dyr apótekanna. — En hvað viljið þið að lok- um segja um þetta og hvaða ráð teljið þið helzt til úrbóta. — Við viljum segja það, að frá leikmanns sjónarmiði virðast læknar ávísa alltof miklu af nautnameðalalyfseðlum. — I flestum tilfellum er vart hugsanlegt að það geti ver- ið að undangenginni ítar- legri rannsókn. Við teljum að fólk geti verið án flestra þess- ara lyfja og sé blátt áfram bet- ur komið án þeiwa. Fyrst og fremst teljum við að lyf eins cg amfetamin, ritalín og preludin megi að fullu og öllu hverfa, og auk þess verði læknar að gæta fyllstu varúðar með svefnlyf og önnur róandi meðöl. Sæsínt£nn — Framhald at bls. 1 Vegalengdin sem Neptune hef ur lagt er 1527 kílómetrar frá Nýfundnalandi til Frederiksdal á Grænlandi og 1543 kílómetrar þaðan til Vestmannaeyja, eða alls 3070 kílómetrar. Hófst lagn- ingin þann 19. september og hef ur staðið síðan að undanskilinm stuttri viðdvöl í Grænlandi. Fermingar Ferming í Langholtskirkju sunnu- daginn 21. okt. kl. 2. Prestur séra Árelius Níelsson. Stúlkur: Dagbjört Rebekka Aðalsteinsdóttir, Langholtsvegi 73. Guðlaug Sigmarsdóttir Melstað, við Vatnsenda. Guðríður J.úlíusdóttir, Ásgarði 5. Herdís Jónsdóttir, Básenda 4. Jóhanna Gunnarsdóttir, Kleppsveg 108. Pálína Kristinsd. Goðheimum 4. Ragnheiður Guðrún Gunnarsdóttir, Hjallavegi 19. Sigríður Svava Kristinsdóttir, Goð- heimum 4. Vilhelmína Sigurðardóttir, Álfheim- um 38. Þorbjörg Júlíusdóttir Ásgarði 5. Piltar: Björn Júlíus Gústafsson, Sólheim- um 23. Bragi Guðmundsson, Bústaðav. 73. Eggert Gunnarsson, Gnoðavogi 38. Guðjón Steinar Aðalsteinss., Lang- holtsvegi 73. Guðmundur Freymóður Sigurjóns- son, Lönguhlíð 7. Jón Haukur Ólafsson, Ásgarði 45. Lárus Andri Jónsson, Básenda 4. Páll Vídalín Sigurðsson, Álfheim- um 38. Páll Eiríkur Símonarson, Suður- landsbraut 75 a. Pétur Hallgrímsson, Laugarásv. 29. Sigurður Friðrik Lúðvíksson, Mána hlíð v/Geitháls. Sævar Már Ólafsson, Ásgarði 45. Ferming í Fríkirkjunni 21. okt. kl. 2 e. h. Prestur séra Þorsteinn Björnsson. Stúlkur: Camilla Olsen Richartsdóttir, Hverf isgötu 59. Elísabet Pétursdóttir, Nökkvav. 18. Guðrún Karlsdóttir, Laugavegi 141. Hafdís E. J. Höjgaard, Suðurlands- braut 94. Ingibjörg Ingvarsdóttir, Hringbraut 113. Kristbjörg Stella Þorsteinsdóttir, Skólavörðustíg 35. Lilja Dóra Eyþórsdóttir, Réttar- holtsvegi 79. Margrét Guðmundsdóttir, Holts- götu 31. Ólöf S. J. Höjgaard, Suðurlands- braut 94. Sigríður Guðbjörg Guðmundsdóttir, 1 Lyngbrekku 28, Kópavogi. Piltar: Halldór Kristján Júlíusson, Þor- finnsgötu 8. 6 dagar eru eftir þar til dregið verður í Skyndi- happdrætti Sjálfstæðis- flokksins. Notið einstakt tækifæri. Drætti verður ekki frestað. Óðins-félogar Slcorað er á Óðins-félaga að gera skil sem alira fyrst í Skyndi happdrætti Siálfstæðisflokksins. Hægt er að gera upp f skrif- tofum álfstæðisflokksins við Austurvöll. á morgun Helgi Hauksson, Þvervegi 36. Hilmar Ásgeirsson, Suðurlandsbr. 24. Jón Bjarni Þorsteinsson, Sporða- grunni 9. Kjartan Þór Guðmundsson, Grens- ásvegi 45. Ólafur Ólafsson, Höfðaborg 63. Ferming í Fríkirkjunni kl. 10.30. Prestur séra Gunnar Ámason. Stúlkur: Anna Eyjólfsdóttir, Ásgarði 3. Ásdís Þorsteinsdóttir, Teigagerði 3. Ásta Rönning, Bústaðabletti 17. Auður Gústafsdóttir, Ásagötu 7, Kópavogi. Erna Magnúsdóttir, Breiðagerði 8. Guðmunda Hafdís Jónsdóttir, Þing- hólsbraut 9, Kópavogi. Guðrún Filippusdóttir, Rauðagerði 18. Iris Sigurðardóttir, Hólmgarði 7. Margrét Gústafsdóttir, A-götu 7, Blesugróf. María G. Ingólfsdóttir, Sunnubraut 29, Kópavogi. Petra Jónsdóttir, Álfhólsvegi 49, Kópavogi. Sigríður Júlíusdóttir, Réttarhóli við Sogaveg. Sigrún Ólafsdóttir, Melgerði 16, Kópavogi. Sjöfn Skúladóttir, Rauðagerði 17. Piltar: Bjarni Finnsson, Ásgarði 28. Einar Þorsteinsson, Teigagerði 3. Felix Eyjólfsson, Ásgarði 3. Guðm. Thorsteinsson, Kópavogsbr. 12, Kópavogi. Hákon H. Pálsson, Hlégerði 13, Kópavogi. Jóhann Karlsson, Borgarholtsbr. 42 Kópavogi. Kristján Á. Bjarnason, Hlíðarv. 44 Kópavogi. Pétur Sigvaldason, Teigagerði 13. Stefán L. Jónsson, Háagerði 11. Vilhelm V. Guðbjartsson, Hverfis- götu 76 B. Örn Þorvarðsson, Bræðratungu 58, Kópavogi. Kvennosíðo — Frh. af bls. 7. þess virði að vera iesin með gaumgæfni. Bætir hún af miklum mun úr þeim mikla þekkingar- skorti, sem hin verðandi móðir hefur átt við að búa, hvað í vændum er, og gefur henni um leið tækifæri til að kynnast hvernig hún geti alið barn sitt á sem eðlilegastan hátt. Bókinni er auk formála og inn- gangsorðs skipt í þrjá hluta. Fyrsti hlutinn fjallar um: 1. Vöðvaspennu — vöðvaslökun 2. Fósturmyndun. 3. Lflumsrækt. 4. Slökun. 5. Öndun. 6. Mataræði. Annar hluti fjaliar um: 1. Fæðingu. 2. Sængurlegu. 3. Brjóstameðferð. 4. Móðurmjólkina. 5. Hinn nýborna þjóðfélagsþegn. Báðir þessir hlutar eru skrif- aðir á mjög frambærilegan hátt á auðskildu máli fyrir hvern þann sem vill kynna sér þessi mál. Hverjum kafla fylgja vel gerðar skýringarmyndir til að gera efni þeirra enn augljósara. Þriðji hlutinn tekur svo yfir I minningar frá liðnum tímum og kveðjuorð. Er sá hlutinn einkar hugljúfur og sýnir bezt hvaða tökum Ijósmóðurstarfið hefur náð á frk. Huldu og hvað hún reyn- ir að láta aðra njóta góðs af því með sér. Hafi frk. Hulda Jensdóttir þökk fyrir útgáfu þessarar bókar sem ég álít að eigi erindi til i allra verðandi mæðra. 12

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.