Vísir - 03.12.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 03.12.1962, Blaðsíða 1
VISIR 52. árg. — Mánudagur 3. desember 1962. — 272. tbl. Fyrstu jólaskreytingarnar Mynd þessi var tekin i morgun á Skólavörðustígnum en þar er búið að setja upp mikla jólaskreytingu. Snáðinn horfir hugfanginn á jóla- skreytinguna. Ljósm. I.M. í I Esja strandar vegna alvarlegra mistaka Var dregin ó flot í nótt Strandf erðaskipið Es j a strandaði í Eyjafirði í fyrrinótt, en náðist aftur út nú í nótt með aðstoð olíuskipsins Stapafells. Skipið mun vera lítið sem ekkert skemmt, en athugun á því og sjópróf munu fara fram á Akur- eyri í dag og á morgun. Þegar fréttamaður Vísis fór í gær um borð í Esjuna, þar sem hún lá strönduð rétt við Gáseyri í Eyjafirði, var það sýnilegt, áð strandið hafði orðið vegna einhverra mikilia mis- taka. Skipverjar vildu helzt ekkert við fréttamanninn tala um það, hvemig þetta hefði viljað tii, en auðfundið á öllum, að hér hefði verið um óverjandi mistök að ræða. Skipið hafði verið að sigla út frá Akureyri um miðnætur- leyti á leið til Siglufjarðar. Var skipið á fullri ferð þegar það tók niðri um kl. hálf eitt á sandbotni milli Dagverðareyrar og Gáseyrar og er það á þeim stað þar sem talið er að skipa- lægi hafi verið til forna er kaupstaður var á Gáseyri. Þegar þetta gerðist var stillt veður, bjart og háflóð. En til Frh. á bls. 5. Mjög mikil sparifjáraukning Aukning sparifjár lands manna fram til 1. nóvem- ber í ár var meiri en allt árið í fyrra. Sýnir þetta hagstæð áhrif viðreisnar- innar og er mjög mikils- vert, því spariféð er undir- staða fjárfestingarinnar. Sparifjáraukningin fram að 1. nóv. var orðin 431 millj. króna. En allt árið 6 þús. tunnur Góð síid veiddist f fyrrinótt f Jökuldjúpi og Koiluál og er saltað hér í bænum. AIIs bárust til Reykjavíkur f gær 5900 — 6000 tn. Enginn bátur var á sjó í morgun og ekki vitað þá hvort bátar myndu fara tii veiða með kvöldinu. Veiði var misjöfn í fyrrinótt. Sumir bátar fengu ekkert, en aðallega aflaðist f Skerjadjúpinu út af Eldey, og var sú síld, er þar veiddist, smá og blönduð, en sú sem veiddist f Jökuldjúpinu og Kolluál var stór og feit. Til Akraness bárust í gær 1650 tunnur og var það mest allt síld, sem veiddist út af Jökli, stór og falleg sfld, en erfitt hafði veri- að fást við hana. Lögðu því bátarnir af stað fyrr en ella heimleiðis en urðu Frh. á bls. 5. 1961 var sparifjáraukning- in 430 millj. króna. Allt sparifé í bönkum landsins nam 1. nóvember s. 1. samtals 2 milljörðum og 634 milljónum króna. Veltuinnlán í bönkunum 1. nóv. námu 237 millj. kr. Er ekki að efa að í árslok mun sparifjársöfnun lands-, manna hafa enn stórauk- izt. ÍSLENZKA LÁNIÐ í BRETLANDI: Fyrsta erl. lánið I ellefu ár Sýnir traust á íslenzkum gjaldmiðli I morgun var íslenzka auglýst í London. Ann- skuldabréfalánið sem ast það Hambrosbanki tekið er í Englandi, að fyrir hönd íslenzku ríkis upphæð 240 millj. króna, stjórnarinnar. - Útboð lánsins fer fram á fimmtudaginn. Brezku blöðin skýrðu frá lán- inu í áberandi greinum á föstu- daginn og gátu þess öll að þetta Þessi mynd birtist í blaðinu Times í Lond- on á föstudaginn og er tekin við undirritun samningsins um 240 miilj. króna fram- kæmdaiánið í London. Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra undir ritaði samninginn fyrir hönd ríkisstjórncrinn- ar. Við hægri hlið hans er Mr. Charles E. A. Hambro bankastjóri, en til vinstri Hendrik Sv. Björnsson sendi- herra í London. er fyrsta erlenda skuldabréfalán ið sem brezka ríkisstjómin leyf ir að tekið sé f Bretlandi f 11 ár. Segja biöðin að hér sé um stefnubreytingu að ræða í brezk um kauphallar og lánaviðskipt- um, en þessi staðreynd er ekki síður ljós vottur þess hvert traust er nú fcngið erlendis á hinum íslenzka gjaldmiðli, þar sem ísland er fyrsta landið í svo langan tfma sem lánsheimild fær í þessu formi. FYRSTA LÁNIÐ. Manchester Guardian birtir all stóra frétt um íslenzka lánið á forsíðu fjármálablaðs síns undir fyrirsögninni „Icelandic loan tháws the London capital mark- et“. Blaðið segir að íslenzka lán ið brjóti hér brautina á hinum brezka lánamarkaði, þar sem aðe’ins þrjú erlend lán hafi verið veitt erlendum ríkisstjórnum i Bretlandi frá stríðslokum. Var Frh á bls. 5. I I, v S v ■ : - l y ' 1 1 >•'. \ ' I \ ‘ ! ! ! ! r* | ! I M V\ I \ - ; i \ I M.I'!1:!:(!';

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.