Vísir - 17.12.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 17.12.1962, Blaðsíða 5
VÍSIR . Mánudagur 17. desember 196. 5 Svipmynd úr hinum æsispennandi leik milli Fram og Víkings í gær. Hér sétet Ólafur Friðriksson skora fyrir Víking. Óvænt úrslit á Hálogalamli Mikla athygli vakti í gær, er íslandsmótið í hand- knattleik hófst, að tvö efstu liðin í Reykjavíkur- mótinu töpuðu leikjum sín um, ÍR gegn KR 29:35, en íslandsmeistararnir og Evrópubikarlið Fram í hörkuspennandi leik við Víking með 21:26. FH vann hins vegar auðveldan sigur gegn nýliðum Þróttar, í 1. deild með 34:13. KR náði yfirhendinni fljótlega gegn ÍR og tókst að komast nokk- uð yfir. I hálfleik var staðan 18: 13 en svipað markahlutfall hélzt út leikinn og KR vann 35:29, enda sýndu KR-ingar með tvo nýliða oft mjög góðan leik. Mikil harka var á tíðum í leiknum og 5 leik- mönnum var vísað út af um stund- arsakir. FH hafði greinilega undirtök í leiknum gegn Þrótti og aldrei var sigrinum ógnað. Þróttarar léku hina lágkúrulegu „vagnhesta“- . leikaðferð og skot þeirra voru hvorki föst né beinskeytt. E. t. v. hafa hinir ungu leikmenn Þróttar verið taugaóstyrkir og er það skilj- anlegt, en liðið hefur sýnt að það getur gert betur en nú. Leikur Fram og Víkings var síð- astur þessara leikja og var eins og rúsínan í pylusuendanum. Víking- ur léku oft mjög vel og voru all- an tímann betri aðilinn. í hálfleik var staðan 12:7 fyrir Víking og svipuðum mun héldu Víkingar í gegnum síðari hálfleik og komust 7 rnörk yfir í 23:17. Framarar léku í síðari hálfleik á köflum „maður gegn manni“ en virust ekki græða á þeirri leikaðferð. Þórarinn, ný- Ófærð — Framhald ai bls. 1 ur ekki smærri og kraftminni bíl- um að fara hana sem stendur, jafnvel sumir kunna að geta brot- !zt í gegn. Fært var í morgun vestur á Snæfellsnes og þaðan svo austur t Skógarströnd og Dali. Frá Stykkishólmi var hins vegar ófært eða illfært í Grundarfjörð vegna fanna. liði í Víkingsliðinu, skoraði 7 mörk og má segja að þessi efnilegi leikmaður hafi unnið félagi sínu þarna 2 stig og sigur yfir íslands- meisturunum með mörkum á rétt- um augnablikum. Helgi markvörð- ur Víkings átti og góðan dag í markinu og varði ótrúlegustu skot, en gerði hins vegar ekki rétt í að hlaupa fram völlinn og reyna að skora mark hjá Fram, enda mark- vörðum ætlað að gæta eigin marks. Götuljósastólpar hér í Reykjavík voru rúmlega fimm þúsund talsins í lok ársins J961. Frá þessu er skýrt meðal ann- ars í ársskýrslu Rafmagnsveitu Reykjavíkur fyrir 40. starfsár henn ar og Sogsvirkjunarinnar fyrir 24. ár hennar, sem komu út ekki alls fyrir löngu. Segir svo í formála fyrir skýrslum þessum, sem Stein- grímur Jónsson, fyrrum rafmagns- stjóri hefir ritað, að þetta sé fyrsta prentuð ársskýrsla Rafmagnsveit- unnar, en fram að þessu hafa árs- skýrslurnar aðeins verið vélritaðar og stundum aðeins geymd drög að helztu atriðum, sem gerzt hafa. Það hefir verið meira aðkallandi að vinna að ýmsum virkjunarfram- kvæmdum og skýrslugerð frek ar mátt sitja á hakanum. Svo sem fyrr segir er margvísleg an fróðleik að finna um þetta mikla fyrirtæki, og meðal annars það, að í Iok síðasta árs voru alls 4997 götuljósastólpar í bænum, með einum armi, en auk þe:: 51 með tveim örmum og 25 með þrem örmum, eða samtals 5093 götu- Ijósastólpar. Þess má og geta, að um helmingur ljósastauranna er úr tré 2513, og fá hvorki meira né minna 2509 þeirra orku sína með loftlínum, .en hinir með jarðstrengj- um. í lok sl. árs voru starfsmenn Raf magnsveitu Reykjavíkur samtals Dómarar voru þeir Magnús Pét- ursson, Hannes Þ. Sigurðsson og Gunnlaugur Hjálmarsson. íslandsmótið var sett af for- manni HSf, Ásbirni Sigurjónssyni. Markahæstir í gær: Karl Jó- hannsson KR 12, Reynir Ólafs- son KR 11, Gunnlaugur Hjálm- arsson ÍR 9 Ragnar Jónsson FH 9, Birgir Björnsson FH 9, Ingólfur Óskarsson Fram 8. 361, en þar af voru 38 starfandi vegna Sogsvirkjunarinnar. Við framkvæmdadeild voru flestir starfsmenn, eru ' 148 talsins, við aflstöðvadeild 83, í fjármáladeild 67, áætlanadeild (verkfræðimál) 32, innlagnadeild 27 og skýrsludeild 4. Uppsettir mælar á svæði Raf- magnsveitunnar voru samtals 36,576, og löggiltir rafvirkjameistar ar voru skráðir 121, þar af 63, sem voru ,einyrkjar“, en 58 höfðu sveina í þjónustu sinni. Svalt, en bjart Akureyri í morgun. — Veður hefur verið gott á Norð- urlandi undanfarna daga, svalt og bjart, og frost flesta daga verið 10-12 stig. ' Færð er enn góð víðast hvar, jafnvel á fjallvegum, en þó hafa Iitlir bílar verið aðvaraðir vegna yfirvofandi umferðartruflana ef skyndilega skyldi hvessa. Lausa- mjöll er talsvert mikil og það má ekkert út af bregða til að vegir lokist, a. m. k. fyrir kraftlitla og Iága bíla. Aðfaranótt sunnudagsins var innbrot framið í Hressingarskálann í Austurstræti og stolið þar nokkru —agni af sælgæti og tóbaksvörum. Meðal þess sem saknað var, voru m. a. 80—7" pakkar Camel- vindlingar, nokkuð af vindlum og nokkrir pakkar af súkkulaði. Pen- ingar fundust hins vegar engir. Götuljósastólpar í Reykjavík nú 5000 Styrkleikasvið Hér á landi er okkur mikill vandi á höndum, þegar setja á saman efnisskrá helgaðri á- kveðnu tímabili í tónlistarsögu einhvers lands. Dæmi um þetta er þessi efnisskrá frá tónleik- um á vegum „Angliu" í Hafn- arfjarðarkirkju „Kirkjutónlist frá 17. öld“ í gærkvöld. Orgelleikur. Páll Kr. Pálsson: Maurice Greene (1695 — 1755): . . . Voluntary William Croft (1678-1727): . . . Voluntary í D-dúr. Einsöngur. Kristinn Hallsson: Þrjú brezk sálmalög með diskanti (fylgirödd). Flautuleikur. Dveril Willims: Maurice Grenne: . . . Fancy. John James (16??-1745): . . . „Echo“-Voluntary. Henry Purcell (1659 — 1695): . . . Minuet. Orgelleikur: Henry Purcell: . . . Chaconne. Einsöngur: Þrjú brezk sálmalög með diskanti. Flautuleikur: Michael Chr. Festing (1860 — 1752): . . . Largo, Allegro, Aria Two Variations. Orgelleikur: Henry Purcell: . . . Toccata í A-dúr. Sakir þess að flytjendur hér- lendis eru svo mikið á náð til- viljana í hingaðkomu nóína — ekkert nótnasafn til landinu — nótnaverzlanir fáar og með af- brigðum frumstæðar — þá eru skörðin ósjaldan fyllt með efni, sem lítið erindi á á efnisskrána. Á þessa kirkjutónleika (17. aldar tónsmíða) slæddust því eitt „Fancy" — (til heima- brúks) — lítil flautusónasta — (til flutnings í veizlusal „með matnum") — og menúett — (til að dansa eftir) — og sumar smíðarnar voru frá 18.— 20. ald ar (sbr. diskantinn). Frá sögulegu sjónarmiði er tónlist Englendinga um 1600 einhver sú blæsilegasta í allri tónlistarsögunni — en fer síð- an hraðhnignandi fram eftir öld inni — með einni undantekn- ingu, þar sem Purcell var. Um aldamótin 1700 er ensk tónlist hins vegar í hinni mestu lægð (sbr. alræði ítala þar í landi á þessu sviði) og sem slík liggur hún niðri (ef Hándel er undan- | skilinn) fram á síðústu áratugi. Það er því einlæg ósk mín að Anglia beiti sér á næstu tón- leikum fyrir kynningu á þvf bezta í enskri kirkjutónlist — allt aftur að Dunstable — eða fram til síðustu ára — í stað þess, svo sem gefið var til kynna, að snúa sér að hnign- unarskeiði 18. og 19. aldar. Með því móti ynni félagið afburða þarft verk fyrir tónlistarlíf bæj arins. Þungamiðja hljómleikanna í gærkvöldi var vafalítið „Cha- connan“ eftir Purcell — enda viðamesta tónsmíðin og bezt flutt af orgelverkunum. Þar sýndi Páll markvisst hljóðfall, fjölbreytileg og minnisverð blæ brigðaskipti af stórmannlegum orgelstíl. Þegar Purcell leitaði að fjarlægustu hljómasambönd- unum — í „blóra“ við ein- strengingslegan bassann sinn — þá var það svo skýrt flutt, að ekkert fór á milli mála — áheyrendur sperrtu eyrun þar til lausnin var fengin. Mikil reisn var yfir söng Kristins á hinum einföldu sálmalögum — og vantaði ekk ert nema tilþrifameiri verkefni handa hans ágætu rödd. Sömu kvartanir um „verkefnaskort" eiga og við flautuleik frk. Willi ams. Víðtækara styrkleikasvið hefði verið æskilegra í leik hennar — en vonandi kemur það betur fram síðar —. Þorkell Sigurbjörnsson. I Kópavogskirkja — Framh. af 1. síðu. 1958 hófust framkvæmdir sam- kvæmt þeirri teikningu. Var kirkj- unni valinn staður á svokölluðum Borgum, sem frá 1946 hefur verið haldið óbyggðum, sem stað fyrir kirkju. Húsameistari ríkisins gerði teikn ingu og var fyrsti aðstoðarmaður hans Ragnar Emilsson. Hörður Ágústsson var ráðgjafi við litaval og innanhússskreytingu. Almenna byggingarfélagið annaðist alla verkfræðiþjónustu. Byggingarmeist ari var Siggeir Ólafsson. Kirkjunni hafa gefizt margar rausnarlegar gjafir og er ekki hægt að geta nema fárra, þar sem heita má að hver einasta fjölskylda hafi látið eitthvað af hendi rakna. Fyrsta stórgjöfin sem kirkjunni barst, var frá verkamanni í Kópa- vogi, sem ekki vill láta nafns síns getið. í gær gaf hann svo kirkj- unni aftur 10 þúrund krónur. Bæjarstjórn Kópavogs gaf glugga í tvo stafna kirkjunnar og kven- félag I<ópavogc' gif glugga í einn stafninn. Sex konur I Kónavogi, undir forystu frú Helgu Sveins- dóttur á Sæbóli, gáfu kirkjunni tvo kertastjaka, högull og rykkilín, auk alls silfurs til altarisþjónustu, að undanskildum kaleik, sem var gefinn af samkennurum Böðvars Guðjónssonar frá Hnífsdal, til minningar um hann. Þá hafa þess- ar konur gefið stofn að klukku- sjóði. Ljóskross á austurstafni gáfu ekkja og vinir Jóns Guðjónsson- ar rafvirkjameistara til minningar um hann. Böm Þórunnar Isaksdótt ur í Fifuhvammi gáfu 25.000 krón- ur sem stofn að orgelsjóði. Ekkja Einars Sæmundsen gaf tvo fimm arma kertastjaka. Ónefnd hjón gáfu bll frá verksmiðju erlendis. Var veitt leyfi af fjármálaráð- herra til að gefa eftir tolla á blln- um og greiddi söluverð hans nær allan kostnað við bekki í kirkjuna. Meðal þeirra sem gáfu vinnu sína voru Oidtman, sem sá um að setja upp glugga Gerðar Helga- dóttur. Jón Gauti rafmagnsfraéð- ingur gaf vinnu sína við að teikna rafkerfi í kirkjuna, og Euther Sal- ómonssor gaf vinnu sína við pípu- ’agningar í kirkjuna. Kirkjukór Kópavogskirkju ann- aðist söng við athöfnina, undir stjórn Guðmundar Matthíassonar organista.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.