Vísir - 11.06.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 11.06.1963, Blaðsíða 1
VISIR 53. árg. — Þriðjudagur 11. júní 1963. — 131. tbl. Síldveiðin byrjar vel „Síldveiðin byrjar ágætlega,“ sagði Jón Einarsson skipstjóri á síldarleitarskipinu Pétri Thor- steinsyni, er Vísir hafði tai af honum á Siglufirði í morgun, en Pétur 7 oinsso'n hefur nú leitað sv i út af Bakka- flóa, þar sem aiimikil síld hefur veiðzt undanfarna daga. Síðdeg- is i gær fengu þau fáu skip, sem þar v.oru, ágæta veiði, Grótta 1700 mál og tunnur, Odd geir 1400, Gulifaxi 1100, Snæ- feil 1200 og Sigurður Bjarnason 1200 mál og tunnur. Áður höfðu Stígandi og Gunnar frá Reyö- arfirði fengið ágæta veiði á þess um slóðum og nokkur fleiri skip einhvern afla. Jón Einarsson skipstjóri sagði, að aðalveiðisvæðið væri fjörutíu til sextíu sjómílur suðaustur af Langanesi. Þar lóðaði leitarskipið á ágætar torfur á töluvert mörgum stöð- Framhald á bls. 5. SJÁLfSTÆBISFLOKKURINN JÓK mSI SITT I 41,4 PRÓSfNT ÓSIGUR KOMMÚNISTA Úrslit Alþingiskosn- inganna eru mikill sigur fyrir viðreisnarstjórn- ina. Þjóðin hefur vottað stefnu síðustu ára traust sitt. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur aukið atkvæða magn sitt. Framsóknar- flokkurinn hefur einnig fengið nokkru fleiri at- kvæði en síðast, en kom múnistar töpuðu veru- lega fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut jafnmarga þing- menn og 1959, eða 24. Alþýðuflokkurinn hlaut 8 þingmenn, einum færra en síðast. Hafa stjórnarflokkarnir því meirihluta á þingi, eða 32 þingmenn. Kommún- istar hlutu 9 þingmenn og töpuðu einum. Fram- sóknarflokkurinn hlaut 19 þingmenn, vann tvo. Stjómarflokkarnir auka atkvæðamagnið að baki sér úr 54.9% í 55.7%, og er það í fyrsta skipti að stjóm, sem étarfað hefur áður heilt kjörtímabil, hljóti fylgisaukningu og meirihluta allra kjósenda. Stjórnarflokkarnir missa að vísu einn þingmann, en hafa áfram meirihluta í báðum þingdeildum. Skapa kosningaúrslitin gmndvöll fyrir áframhaldandi samstarf " Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks til eflingar aukinni viðreisn og velmegun. Kommúnistar tapa stórlega fylgi í þessum kosningum, og dugir ekki einu sinni handalagið við Þjóðvörn til að breiða yfir það tap. Missa þeir einn þing- mann (úr 10 í 9) og hljóta nú 16% atkvæða, en höfðu áður 19.4% eða 3.4% minnkandi fylgi. Framsóknarflokkurinn bætir við sig tveim þingmönnum (úr 17 í 19) og eykur atkvæðafjölda sinn um 2.5%. Á kjörskrá voru nú 100.573, en atkvæði greiddu 90.945 eða 90.4%. Atkvæðatölur flokkanna og hlutfallstölur þeirra (I sviga tölur síðustu kosninga) fara hér á eftin Alþýðuflokkur 12793 atkv. eðá 14.2% (12009 atkv. eða 15.2%). Framsóknarflokkur 25220 at- kv. eða 28.2% (21882 atkv. eða 25.7%). Sjálfstæðisflokkur 37116 at- kvæði eða 41.4% (33800 atkv. eða 39.7%). Alþýðubandalag 14274 atkv. eða 16% (16504 atkv. eða 19. Framhald á bls. 5. Atkvæðamagn og þingmenn Sjálfstæðisflokkurinn jók verulega fylgi sitt í þessum kosningum (úr 39.7% í 41.1% ) Þingmannatala flokksins helzt hins vegar óbreytt. Einn maður tapaðist í Reykjavik, en í stað hans kemur uppbótarþingmað- ur, Hermann Þórarinsson frá Blönduósi. Þingmenn Sjáifstæð isflokksins eru 24. Kosningaúrslitin eru mikill sigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þrátt fyrir harða hríð, beggja stjórnarandstöðuflokkanna og eftir að hafa setið i ríkisstjórn allt kjörtímabilið, er það mjög eftirtektarverður og mikilvæg- ur árangur að fá aukið fylgi og halda þingmannafjöldanum. Alþýðuflokkurinn tapar ein- um manni og lítilsháttar af at- kvæðum, eða um 1,5% af heild aratkvæðamagni. Ef miðað er við síðustu borgarstjórnarkosn- ingar ,hefur flokkurinn bætt stórlega við sig. Góður sigur er það fyrir Alþýðuflokkinn að halda þingmönnum sínum í Reykjavík og á Vesturlandi, en þá hugðist Framsókn fella. Framsóknarflokkurinn bætir við sig 2.5% af heildaratkvæða- magni og er það minni aukning en Framsóknarmenn höfðu gert sér vonir um. Lögðu þeir ofur- Framhald á bls. 5. Formaður Alþýðuflokksins: Viljum sams tarf Vfslr átti f morgun tal við var fyrir kosningar. Við Alþýðu formann Alþýðuflokksins, Emil flokksmenn getum verið ánægð- Jónsson ráðherra. Spurði blaðið ir með kosningaúrslitin. Þau hann um afstöðu Alþýðuflokks- eru okkur hagstæð, miðað við Ins til áframhaldandi stjómar- bæjarstjórnarkosningamar sfð- samstarfs. Ráðherrann sagði: ustu. Eini skugginn er að Frið- — Rfkisstjómin heldur vænt- jón Skarphéðinsson hverfur nú anlega áfram, enda er það í af þingi. Að honum er mikil samræmi við það sem ákveðið eftirsjá. Halda verður áfram í sömu braut — sagði Bjarní Benedikts- son í morgun — Við fögnum miklum sigri, sagði Bjarni Bene- diktsson, formaður Sjálf stæðisflokksins, er Vísir átti tal við hann í morg- unum kosningaúrslitin. Tilviljanirnar liafa verið á móti flokknum að þessu sinni, sem fram kom í því að við misstum þingsæti í Reykjavík, þrátt fyrir að við stórykjum fylgi okkar hér. Og á sama hátt varð sigur Framsóknar yfir Karli Guðjónssyni i Suðurlands kjördæmi með broti úr stigi ekki til þess að kommúnistar misstu þingsæti, heldur gekk ósigur þeirra út yfir okkur, því ella hefðum við fengið 25 þing- menn kosna. Þannig verka ýmis ófyrirsjá- anleg atvik á sjálfa þingmanna- töluna, en f heild megum við Sjálfstæðismenn vera mjög ánægðir. Við höfum unnið einn stærsta sigur sem flokkurinn hefur fengið fyrr og síðar. Vil ég þakka öllum, sem að honum stóðu. — Hvemig verður með stjóm arsamstarfið? — Núverandi ríkisstjóm hef- ur hlotið eindregna traustsyfir- lýsingu alþjóðar og er þvf sjálf- Bjarni Benediktsson sagt að áfram verði haldið á sömu braut. Ég þekki ekki dæmi þess úr íslenzkri stjóm- málasögu að ríkisstjóm sem setið hefur heilt kjörtfmabil hljóti svo miklð fylgi við al- mennar kosningar. Enda hygg ég að stuðningur 56% kjósenda myndi hvarvetna i heiminum vera talinn með mestu stjóm- málasigmm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.