Vísir - 18.06.1963, Blaðsíða 1
VISIR
53. árg. — Þriðjudagur 18. júní 1963.“ — 156. tbl.
SKA TTSKRÁIN
Á FIMMTUDAG
Ákveðið er að skattskráin
komi út á fimmtudaginn. Und-
anfarna daga hafa menn beðið
eftir útkomu skattskrárinnar,
enda hefur hennar verið vænzt
á hverri stundu, síðustu viku.
Útkoman hefur þó dregizt af ó-
viðráðanlegum orsökum, en nú
er ákveðið að skráin komi út á
fimmtudagsmorgun.
Vertíðin gengin í gnrð:
Síldarverkun haf-
in á Raufarhöfn
Nú má með fullri vissu
segja að síldarvertíðin
sé gengin I garð. Vinnu-
friðurinn er tryggður,
síldarleitin tekin til
starfa, og það sem bezt
styður vissuna — bátarn
ir eru byrjaðir að landa
á Raufarhöfn. Á aðfara-
nótt sunnudags kom
fyrsti báturinn til Rauf-
arhafnar, og allt síðan
hefur verið látlaus
straumur hlaðinna síld-
arbáta til staðarins. Var
sannarlega rösklega á
móti þeim tekið, enda
þorpsbúum byrjað að
kitla í fingurgómana.
Fréttin um, að samning-
ar hefðu tekizt í kaup-
deilunni voru miklar
gleðifregnir þar á ctaðn-
um — eins og raunar alls
staðar annars staðar á
landinu.
Eins og fyrr segir kom fyrsti
báturinn til Raufarhafnar aðfara
nótt sunnudags. Var það Stein-
unn, Ólafsvík með 100 mál. Síð-
an hefur verið stanzlaus verkun
Framh. á bls. 5
Vinnufriður á síldarvertíðinni!
7,5% kauphækkun norð-
aniands og kjararannsókn
Nú er tryggt að vinnudeilur munu ekki spilla síld
arvertíðinni í sumar. í fyrrinótt, aðfaranótt 17. júní,
náðist samkomulag við verklýðsfélögin á Akureyri
og Siglufirði um 7,5% kauphækkun. Hafði þá fund-
ur staðið óslitið í 36 stundir í Alþingishúsinu, þar
sem sáttasemjari ríkisins sat á þingi með deiluaðil-
um. EHa hefðu verkföllin verið byrjuð og síldar-
vertíðin stöðvazt.
Þá var einnig saniið um þessi
kjör við iðnverkafólk á Akur-
eyri. Samkomulag þetta gildir
tii 15. okt. í haust og feliur þá
úr gildi án uppsagnar. Tvö ö,nn
ur verkalýðsfélög i síldarbæj-
um norðanlands höfðu einnig
boðað verkfall ef ekki semst
um kaup og kjör. Eru það verk
lýðsfélagið á Húsavík, sem boð-
aði verkfail frá 18. júní og verk
lýðsféiagið á Raufarhöfn sem
boðað hefir verkfall frá 20. júní.
Verður nú tvimælalaust samið
þar um sömu lcauphækkun.
Á laugardaginn beindi ríkis-
stjórnin þeim tilmælum til verk
lýðsfélaganna og samtaka vinnu
veitenda, að þau láti í samein-
ingu fara fram athugun á þvi
hversu mikil kauphækkun megi
nú verða til þess að hún komi
að gagni fyrir launþega. Bauðst
ríkisstjórnin til að greiða kostn-
aðinn við rannsóknina og styðja
hana á allan þann hátt sem sam
tökin óska.
1 samkomulagi þvi sem náðist
í fyrrinótt lýstu samtök vinnu-
veitenda sig fúsa til þess að
láta slika rannsókn fara fram.
Samninganefnd verklýðsfélag-
anna skuldbatt sig einnig til
þess að mæla með því við stjórn
ASÍ að slík könnun verði látin
fara fram. Má þvi heita tryggt
að slíkri rannsókn verður nú
hleypt af stokkunum, en for-
maður stjórnar ASÍ, Hannibal
Valdimarsson, Iýsti þvi yfir um
helgina að stjóm ASÍ myndi
væntanlega verða við þessum
tilmælum norðlenzku verklýðs-
félaganna.
Hér á eftir fara þær yfirlýs-
ingar sem samninganefndimar
gáfu vegna tihnæla ríkisstjórn-
arinnar um kjararannsókn.
Fyrst er yfirlýsing samninga-
nefndar vinnuveitenda:
Undirritaðir aðilar, Vlnnu-
veitendasamband íslands, Vinnu
málasamband samvinnufélag-
anna hf., Kaupfélags Eyfirðinga
og Sambands fslenzkra sam-
vinnufélaga, Síldarverksmiðjur
rikisins, Vinnuveitendaféiag
Siglufjarðar, Verzlunarmannafél
agið á Akureyri, Vinnuveltenda-
félag Akureyrar, Félag fslenzkra
iðnrekenda og Kaupmannasam-
tök íslands, skuldbinda sig hér
með til þess að vinna að því,
að fram verði Iátin fara á vegum
heildarsamtaka atvinnurekenda,
f samvinnu við heildarsamtök
launþega, athugun á þvf, hversu
mikil kauphækkun megi verða,
til þess að hún komi að gagni
fyrir launþega. Er ákvörðun um
athugun þessa í samræmi vlð
tilmæli ríkisstjómar I’slands,
dags. 15. júnf 1963.
Yfirlýsing verklýðsfélaganna
á Akureyri og Sigluflrðl og
Framhald á bls. 5.
Þjóðhátíð í
fögru veðri
Nítjándi þjóðhátíðardagurinn var
haldinn hátfðlegur f Reykjavfk
með venjulegum hættj í gær.
Flutt var hátíðarmessa í Dómklrkj
unni, samkomur vom á Austur-
velli og á Amarhóli og um kvöld-
ið var dansað á götum miðborgar-
innar. Meðal þeirra, sem tóku þátt
í hátíðarhöldunum voru 120 Vest-
ur-Islendingar. Veður var hið feg-
ursta, sólskin og hressandi vind-
blær. Mikill mannfjöldi tók þátt
í hátíðarhöldunum. Borgin var fán-
um skreytt. Merki dagsins var til-
einkað landbúnaðinum.
Kirkjuklukkur höfuðborgarinnar
hringdu til hátíðarhaldanna kl. 10
um morguninn. Síðan rak hvert
Framh. á bls. 5