Vísir - 30.01.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 30.01.1964, Blaðsíða 1
VISIR 54. árg. — Fimmtudagur 30. janúar 1964. — 25. tbl. GlaumbæjarmáliS senn dómtekið Fjársvikamál Sigurbjamar Eiriks sonar veitingamanns mun verða tekið til dóms í sakadómi Rcykja- vfkur áður en langir tfmar líða. Ætlunin var að málflutningur faeri fram í sakadómi Reykjavíkur í dag, en að ósk verjanda var frestur veittur um nokkurn tíma. Er Vísir spurðist fyrir um mál þetta hjá Halldóri Þorbjörnssyni saka- dómara kvað hann daginn ekki hafa verið ákveðinn sem málflutningur- inn færi fram, en það yrði a.m.k. ekki í næstu viku. Vísir spurðist ennfremur fyrir um það hjá Sveini Sæmundssyni yfirmanni rannsóknarlögreglunnar hvað ' liði rannsókn í fjásvikamáli þvl sem upp kómst við endurskoð- un í Sparisjóði Reykjavíkur um s.l. áramót, en Sveinn hefur sjálfur haft rannsókn þess með höndum. Sveinn tjáði Vísi að þeirri rann- sókn væri enn ekki lokið og á þessu stigi kvaðst hann ekki geta sagt hvenær það yrði. Nú fer hver að verða síðastur að skila skattframtali sínu, þar eð fresturinn rennur út annað kvöld. Margir hafa lagt leið sfna á Skattstofuna síðustu daga til þess að leita aðstoðar við útfyllingu fram- tals. Mynd þessi var tekin í morgun á Skattstofunni f Reykjavík. Námsmaður er að leita sér upplýsinga. AIDRCIVCRDUR CCRDUR FIUC■ Blaðsð í dag VOLLUR A ALFTANCSI „Það er mín skoðun'- segir ráðherra Flugvallarmálin eru mjög ofarlega á baugi þessa dagana, eins og komið hefir fram hér í blaðinu. Menn ræða um það leynt og Ijóst, og eru mjög á öndverðum meið um það, hvort leggja eigi Reykjavíkur flugvöil niður, og ef svo verði hvort þá verði gerð ur nýr flugvöllur á Álfta nesi eða allt flug flutt frá Reykjavík til Kefla víkur. Ingólfur Jónsson samgöngu- málaráðherra sagði i stuttu við- j tali við Vísi í morgun, að hann væri á þeirri skoðun að aldrei yrði gerður nýr flugvöllur á Álftancsi kostnaðarhrs vegna, hvað sem öðru liði. Ráðherrann sagðist mjög gjarnan vilja að þessi skoðun hans kæmi fram opinberlega og var ekkert myrk ur í máli í þessu sambandi. Hann sagði að nýr flugvöllur á Álftanesi gæti alveg eins kost- að 800—1000 milljónir eins og 400 tll 500 milljónir. Eitt væri víst að slfk framkvæmd yrði ó- hemju dýr og ekkert fjármagn fyrir hendi'upp f þann kostnað. M. a. þýddi flugvöllur á Álfta- nesl það, að leggja þyrfti niður forsetasetrið á Bessastöðum og byggja nýtt, og kaupa upp og rffa fleiri húseignir. Allt yrði þetta svo óskaplega kosnaðar- samt, þótt ekkl væri litlð á ann- að, að það er mfn skoðun að þetta verði aldrei gert, sagði ráðherrann að lokum, og lét Ingólfur Jónsson,' samgöngumálaráðherra orð falla f þá átt að hann teldi ráðlegt fyrir þá, sem aðhyllast kynnu þessa hugmynd, að leggja hana algerlega á hilluna. Jeppi fer út af Skömmu eftir klukkan 11 í morgun varð enn eitt umferðar- óhappið við Korpubrúna. Nýleg jeppabifreið af Land Rover-gerð ók út af brúnni og steyptist nið ur í ána. Bifrelðin lenti á þak- inu og skcmmdist mjög mildð. Mikið vatn var í ánni í ■morgun og hálffylltist jeppinn af vatni. Einn maður var í bifreiðinni, en ekki er blaðinu kunnugt um hvort slys hafi orðið. Bls. 2 íþróttir — — 3 Myndsjá frá sfldar- söltun. — 4 Ræða forsætisráð- herra um söluskatt- inn. — 7 Viðtal við Guðrúnu Erlendsdóttur. cand. jur. — 8 Nixon í kjöri. — 9 Úr dagbókinni. » • . *

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.