Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 16

Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 2. júní 1964. Fékk 800 tunniir Eins og Vísir skýrði frá í gær varð Helgi Flóventsson fyrstur allra sildveiðibáta til að afla síldar á síldveiðivertíðinni fyrir Norður- landi. Helgi landaði afla sínum á Húsa- vík í gærkveldi, 900 tunnum sam- tals. Af þeim fóru rúmlega 100 tunnur í frystingu, en hitt til bræðslu í verksmiðjuna. Framhald á bls. 6 Vilja JORÐIN KOM ÆDANDII BYLGJUM ÁMÓTIOKKUR 30 ár Siðin frá hinum mikla jarðskjálfta á Dalvík „Fyrst heyrðum við drunur, síðan kom skriða og svo sáum við jörðina koma í bylgjum á móti okkur, líkast því að það væri öldugangur. Við féllum niður og Iágum óttaslegnir nokkra stund“. Þannig komst Bjarki Elíasson, lögregluvarð- stjóri m.a. að orði í stuttu við- tali við Vísi í morgun. Laugar- daginn 2. júní ’34, eða fyrir ná- kvæmlega 30 árum varð sá jarðskjálfti, sem mestu tjóni hefur valdið á þessari öld. Jarð- hræringar fundust um allt land, en eitt þorp á landinu, Dalvík, varð líkast því að það hefði 'orðið fyrir sprengjuárás. /r a vinnulöggjöf strax Kjartan Thors enáurkjðrinn formaður VinnEiveiféndasamhandsins Aðalfundur Vinnuveitenda- sambands íslands, sem lauk s. 1. laugardag, samþykkti að skora á ríkisstjórnina að láta ekki dragast lengur að láta fara fram endurskoðun á lögum um stétt arfélög og vinnudeilur. 1 ályktun þeirri er samþykkt var um málið er bent á hina uggvænlegu þróun í vinnumál- um undanfarin ár og brýn nauð syn talin vera á því að hafizt verði þegar handa um að finna úrbætur. Taldi fundurinn hina öru þróun í atvinnumálum, sem hér hefði orðið á síðustu árum gera endurskoðun vinnulöggjaf arinnar mjög aðkallandi. Eftirfarandi ályktun var gerð varðandi fjárfestingarfram- kvæmdir: „Aðalfundur Vinnu- veitendasambands íslands, hald- inn í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík dagana 28. —30. maí 1964 varar við hinni miklu þenslu í efnahagslífinu og skor- ar á ríkisstjóm og borgaryfir- völd að hafa samvinnu um að draga úr opinberum fjárfesting- arframkvæmdum á meðan nú- verandi ástand ríkir í atvinnu- málum“. Þessi ályktun var einnig gerð: „Aðalfundur Vinnuveitenda- sambands íslands, haldinn í Hótel Sögu í Reykjavík dagana 28. — 30. maí 1964 skorar á iélagsmenn að standa trúlega saman um málefni sín og gera allt, sem unnt er til að efla samheldni allra vinnuveitenda Framhald á bls. 6 1 tilefni að því að liðin eru 30 ár frá þessum mikla jarð- skjálfta, hefur blaðið 'snúið sér til Bjarka Elíassonar lögreglu- varðstjóra, sem fæddur er og uppalinn á Dalvík. Þegar þetta skeði, var Bjarki 11 ára gamall. JÖRÐIN GEKK í BVLGJUM. „Ég minnist þess, að laugar- daginn 2. júní var alveg sér- staklega gott veður. Um hádeg- ið vorum við nokkrir strákar að baða okkur í tjörnum fyrir ofan Dalvík. Allt f einu heyrðum við miklar drunur og skriða féll of- an í gilin fyrir ofan Brimnes- ána. Jörðin virtist koma æðandi í bylgjum á móti okkur, líkast því að það væri öldugangur. Við féllum niður og lágum ótta- slegnir nokkra stund, en síðan gengum við niður í þorpið. Mörg hús höfðu hrunið, en ég veitti því strax athygii, að húsið heima stóð uppi, nema hvað skorsteinninn hafði hrunið, svo ég hélt, að allt væri í lagi. En þegar ég kom heim, gat ég gengið inn í gegnum sprui 0u Bjarki Elíasson á húsinu, því að það hafði sprungið I tvennt. Ég átti heima á Víkurhóli, en húsið var byggt á hól, sem sprakk í tyennt í jarðskjálftanum, og klofnaði því húsið. Þegar þetta skeði, var pabbi ekki heima, en hann var að byggja hús, nokkuð fyrir sunnan þorpið. Ég lagði af stað áleiðis til hans, en komst ekki langt því vegurinn fyrir sunnan þorpið var rifinn í sundúr. Um 4 hús af 35 steinhúsum á Dalvík voru óskemmd, mörg voru gerónýt, sum illa sprungin, og þannig mætti lengi telja. Framh. á bls. 6 kemur hiagað á.mánudag Hlðörg vænfaaleg í júlí Vísir hringdi í morgun í Ferða- skrifstofu Geirs Zoega og náði tali af Geir H. Zoéga sjálfuin. Hann sagði að geysilegur ferðamanna- straumur væri orðinn hingað til lands og yrði í sumar, og segja mætti að öll hótel væru upppönt- uð og allt fullt í allt sumar. Væri jafnvel erfiðleikum bundið stund- um að koma einum manni fyrir til gistingar eina nótt og yrði að synja hópum, sem ekki hefðu pantað fyrirfram. Geir H. Zoéga sagði að fyrsta skemmtiferðaskipið, Brazil, kæmi til þeirra n.k. mánudag og kæmi aftur seinna í sumar. í júlí kæmu síðan mörg skemmtiferðaskip, Gripsholm 4. júlí, Caronía 9. júlí, Akropolis tvisvar í mánuðinum og glæsilegasta skemmtiferðaskip Þjóðverja, Hanseatic, væri væntan- legt hingað í fyrsta sinn 21. júlí með 600 til 700 farþega. Ennfremur kæmi Argentina í sumar til Ferða- skrifstofu ríkisins. Geir Zoéga kvað Geysi og Gull- foss enn í dag vera sterkasta að- dráttaraflið fyrir útlenda ferða- menn. Aftur á móti kynnu þeir ekki að meta Þingvelli á sama hátt og við íslendingar. Hann kvað Geysi að vísu hafa verið dauðan alllengi, en nú væri hann reyndar eitthvað að bæra á sér. Tveir hver ir væru og í nágrenni hans, sem gysu stöðugt, Strokkur og Fata, og væri það mjög mikils virði fyrir þá ferðamenn, sem kæmu að Geysi. Andabú Brynjólfs Brynjólfssonar. UPPB0D ÞR0TABUI TIU BANASL YS FRÁ ÁRAMÓm BR YNJÓLFSÁ FÖSTUDA G Á föstudag verður haldið í Hótel Akureyrj uppboð á þrota búi Brynjólfs veitingamanns Brynjólfssonar á Akureyri. M.a. verður boðið upp aiifuglabúið að Dverghóli í Kræklingahlíð. Auk mörg þúsund hænsna á öllum aldri eru að Dverghóli endur, gæsir og kalkúnhænsni. Hefur verið mikil gróska í búi þessu, þar sem ungar í hundr- aðavís eru flokkaðir í búr eftir aldri, frá því að þeir eru ný- skriðnir úr egginu í útungunar- búrunum og þar til þeir verða fullvaxta. Meðal þess sem boðið verður upp á föstudag eru vörubirgðir tilheyrandi þrotabúinu, kaffi- teria ásamt sjálfsafgreiðsluborði mjólkurkælivél, mjólkurlsvél, kæliskápur og kista, skrifstofu- húsgögn og margt fleira. Gjaldþrot Brynjólfs Brynjólfs- sonar er eitt hið mesta og hef- ur vakið gífurlega athygli. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk hjá Kristmundi Sigurðs- syni varðstjóra hjá umferðardeild rannsóknarlögreglunnar hafa orðið 10 banaslys af yöldum umferðar það sem af er þessu ári. Fimm þessara banaslysa hafa orðið I Reykjavík, 2 í Vestmanna- eyjum, eitt á Akureyri, eitt í Grundarfirði og eitt á Eyrar- bakka. Á sama tíma í fyrra munu banaslys hafa orðið 7 á öllu land- inu, þar af 4 í Reykjavík. Um slysafjölda hafði Kristmund- ur ekki handbærar tölur, en á- rekstrafiöldi bifreiða í Reykjavík frá áramótum til maíloka var sam- tals 1141 eða 140 meiri en á sama tíma I fyrra. # Jótuðu á sig þjófnuðinn I gærkveldi var kært til lög- reglunnar yfir stuldi á peningum í veitingahúsi einu hér í borg. Kvaðst þjónninn hafa brugðið sér aðeins frá, en á meðan hefði Framh. á bls. 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.