Vísir - 05.06.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 05.06.1964, Blaðsíða 1
54. árg. - Föstudagur 5. júní 1964. - 126. tW. Samaingar fyrir narðan og austan undirritaðir rétt fyrir hádegi í dag mm , ' : ■ý-'x:. -.v . .'■'f v' V v' í :$ÍÍ*Í' Samningar við félögin fyrir norðan og austan undirritaðir. Björn Jónsson formaður Einingar á Akureyri er að skrifa undir að baki honum stendur Björgvin Sigurðsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasmbandsins. Torfi Hjartarson sáttasemjari situr við enda borðs- ins til vinstri. Rétt fyrir hádegi í dag var undirritaður samn- ingur við 24 verkalýðs- félög á Norður- og Aust- urlandi. Var þar um að ræða fyrstu samningana á grundvelli þess ramma samnings, er gerður hafði verið af verklýðs- hreyfingunni við ríkis- stjórnina í nótt. Samn- ingar allra hinna 24 verkalýðsfélaga hafa verið samræmdir þann- ig að gilda munu sömu kjör á svæðinu frá Hvammstanga til Horna fjarðar. Kjörin á félagssvæði um- ræddra 24 verkalýðsfélaga hafa Framh. á 5. sfðu. Samkomulagið í nótt: SAMNIN6AR 7/1 IINS ÁRS - IN6IN CRUNNKA UPSHÆKKUN Helmingshækkun íbúðarlúnu ^ÐALATRIÐIN í því almenna samkomulagi sem náðist í nótt milli vinnuveitenda og verklýðshreyf- ingarinnar, fyrir milligöngu ríkisstjórnarinnar, eru þessi: • Samningar við verklýðsfélögin gildi til ekki skemmri tíma en eins árs. • Ekki eigi sér stað hækkun grunnlauna á því tímabili. • Sett verði lög um verðtryggingu kaupgjalds, sérstök kaupgjaidsvísitala' reiknuð út fjórum sinnum á ári og kaupgreiðslur miðaðar við vísitöluna 1. maí s.I. • Miðað er að styttingu vinnutímans með því að eftirvinnu álag Iækki í 50%, en dagvinnukaup sé jafnframt hækkað — verðtrygging kaups þannig að tekjur verði óbreyttar þrátt fyrir styttingu vinnutímans um stundarfjórðung og Iækkun eftirvinnu- álags. Nætur- og helgidagakaup standi óbreytt í krónu- tölu. • Lög verði sett um lengingu orlofs verkafólks úr 18 dög- um í 21. • Víðtækar ráðstafanir verði gerðar í húsnæðismálunum. 250 millj. króna verði aflað til lána næsta árið og Ián út á hverja fbúð verði ekki minni en 289 þús. krónur. Tryggð verði bygging 1500 íbúða á ári. • 15—20 millj. verði varið til viðbótarlána til verkafólks eftir tillögum verklýðsfélaganna. Lagður verði á 1% al- mennur launaskattur til húsnæðisfjáröflunar og íbúðarlán ve/ji vísitölubimdin með 4% vöxtum til 25 ára. BLAÐIÐ í DAG :Is. 3 Myndsjá: Ökuniðing ur eltur. — 4 Föstudagsgrein um Goldwater. — 6 Heúndallur. — 8 Afmælisgrein um Þórarin á Eiðuni. — 9 Tónlistargagnrýni eftir Leif Þórarins- son. Ríkisstjórnin, verklýðshreyf- ingin og vinnuveitendur mæla með því að samningar verði gerðir á grundvelli þessa heild- arsamkomulags. Fyrstu samn- ingamir voru undirritaðir á grundvelli þess í morgun, við 24 verklýðsfélög norðan og aust anlands. Er frá þeim sagt hér í blaðinu í dag. Heildarsamkomu iagið, sem náðist við verk Iýðshreyfinguna fyrir atbeina ríkisstjórnarinnar fer hér á eftir. Undanfarnar vikur hafa farið fram viðræður milli rlkisstjóm- arinnar, Alþýðusambands ls- lands og Vinnuveitendasam- bands íslands. Ræddar hafa ver ið leiðir til stöðvunar verðbólgu og til kjarabóta fyrir verkafó-K. Þessar viðræður hafa nú leitt til samkomulags um þau atriði, sem hér fara á eftir, og mæla aðilar með því, að samningar milli verkalýðsfélaga og vinnu- veitenda séu nú gerðir á þeim grundvelli. I. VERÐTRYGGING KAUPGJALDS. 1. Ríkisstjórnin beitir sér fyr ir því, að verðtryggingu kaup- gjalds sé komið á með laga- setningu. Verðtryggingin sé mið uð við vísitölu framfærslukostn aðar f Reykjavík. Þó nái verð- tryggingin ekki til hækkunar þeirrar vísitölu, sem stafar af hækkun á vinnulið verðerunns landbúnaðarafurða vegna breyt inga á kauptöxtum eða vegna greiðslu verðlagsuppbótar á laun. 2. Reiknuð sé út sérstök kaupgreiðsluvísitala fjórum sinn um á ári, miðað við þann 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 3. nóvember. Þessi vísitala sé mið- uð við sama grundvallartíma og núverandi vísitala (marz 1959). 3. Kaup breytist samkvæmt hækkun kaupgreiðsluvísitölurm ar frá því sem hún var 1. maí 1964. Þessar breytingar fari fram ársfjórðungslega mánuði eftir að kaupgreiðsluvísitalan hefur verið reiknuð út, þ. e. 1. marz 1. iúní. 1 sentember ns I. desembér. Kaup breytist með hverri hæltkun eða lækkun vísi- tölunnar um eitt stig eða meira. 4. Aðilar samkomulagsms mæla með þvi við Kauplags- nefnd og Hagstofuna, að hafin sé endurskoðun grundvallar vísi tölu framfærslukostnaðar. Nýr vísitölugrundvöllur taki því að- eins gildi á samkomulagstíma- bilinu, að samkomulag sé um það á milli aðila. II. VIKÚ- OG MÁNAÐARKAUP VERKAFÓLKS í SAM- FELLDRI VINNU. Verkalýðsfélög og vinnuveit- endur semji um, að verkafóiki, sem unnið hefur sex mánaða samfellda vinnu hjá sama vinnu veitanda, verði greitt óskert vikukaup, þannig að samnings- bundnir frídagar, aðrir en sunnu dagar, séu greiddir Með samfelldri sex mánaða vinnu er átt við, að unnið hafi verið hjá sama vinnuveitanda full dagvinna í sex mánuði, enda jafngildi fjarvistir vegna veik- inda, slysa, orlofs, verkfalla eða verkbanna fullri vinnu. Sami gildir um daga, sem falla úr, t. d. í fiskvinnslu, vegna hráefna- skorts eða sambærilegra orsak-i. Það jafngildir samfelldri vinnu, ef unnið hefur venð í árstíðabundinni vinnu samtals í sex mánuði hjá sama vinnuveit- anda á undanförnum tveimur ár um. Slík árstíðabundin vinna skal þó því aðeins tekin til á bls 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.