Vísir - 13.06.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 13.06.1964, Blaðsíða 1
VISIR 54. árg. - Laugardagur 13. jtoí 1984. - 133. tbl. Guðrún Á. Símonar í stuttri heimsókn Hyggst byrja að syngja á ný af fullum krafti Hin kunna óperusöngkona Guðrún Á. Símonar er nú stödd hér í stuttri heimsókn ásamt þriggja ára gömlum syni sínum, Ludvig Kára Forberg. Hún fór til Bandaríkjanna fyrir einum 6 ár- um til þess að syngja, og ferðað- ist víða, en þeirri söngför lauk með því að hún settist þar að. Fréttamaður Vísis hitti Guð- rúnu að máli rétt sem snöggvast í gærkvöldi, þar sem hún dvelur á heimili foreldra sinna. — Hvenær söngstu síðast, Guðrún? — Tja, það er orðið nokkuð síðan núna, ég hefi ekkert sungið síðan í fyrra. — Þú hefur áður komið upp á þessum 6 árum sem þú hefur búið erlendis, ekki satt? — Jú, tvisvar sinnum, síðast 1962. — Ætlarðu að fara að syngja eitthvað á næstunni? — Ég veit satt að segja ekki. Ég var eiginlega búin að lofa að syngja á Íslendingahátíðinni úti, kringum 17. júní, en ég býst ekki við að verða komin út þá. Ég hefi satt að segja ekki getað gef- ið mig mikið að söngnum vegna Framh. á bls. 6 Guðrún og Ludvig (Ljósm. Vísis: I. M.) Mikill mannfjöldi safijaðist saman til þess að horfa á brunann. Mikill bruni i nýju verzi- unarhúsi KEA ú Akureyri Akureyri í gær. Mesti bruni, sem átt hefur sér stað hér á Akureyri um langt skeið varð í kvöld er eld- ur kom upp í nýrri verzlunar- sambyggingu KEA við Glerár- götu og verulegur hluti húss- ins brann til kaldra kola. Varð tjón mikið i eldsvoðanum. Hin nýja sambygging er að nokkru .einlyft en að hluta tvílyft. Brann einlyfta hús ið til kaldra kola. Og tvílyfta húsið skemmdist ejnnig mikið í eldinum. Það var um kl. 18.15, að slökkviliðið var kvatt að hinni nýju verzlunarsambyggingu KEA við Glerárgötu. 1 norður hluta sambyggingarinnar hafði verið gert ráð fyrir 2 verzlun- ardeildum KEA, en sá hluti er einnar hæðar og var ekki full- gerður. Að sunnanverðu er tví- lyft hús og það var fullgert og þegar hafði verið í það flutt. Nyrzt i húsinu á neðri hæð var gert ráð fyrir raflagningardeild með birgðarými og verkstæðis- rými. Var rétt byrjað að flytja í þá deild, að þvi er Björn Þor- kelsson tjáði fréttaritara Vísis. ‘ 4MMB3KKaKS«E-^ . í miðhluta byggingarinnar var birgðageymsla byggingarvöru- verzlunarinnar og þar var verið að leggja síðustu hönd á að líma einangrun í loft, að þvf er Mich ael Jóhannesson tjáði fréttarit- aranum. Er álitið, að loftið hafi verið mettað límgufu og eldur hafi komizt í hana. f austurhluta Framh. á bls. 6 Sólarhrings sigling á síldarmiðin Treg síldveiði var í gærdag og aðeins f jögur skip höfðu tilkynnt um afla í gærkveldi. Bátarn- Ir héldu sig enn um 200 mílur NA af Langanesi, an það samsvarar um sólarhrings stími til Raufarhafnar. Á Raufarhöfn er nú flest með síldarbrag. Allar þrær eru full- ar hjá síldarverksmiðjunni, og brætt er dag og nótt. Á plön- unum er unnið að því að hafa allt til reiðu, þegar söltun hefst og aðkomufólk streymir til stað arins. Hingað til hefur fólks- eklu gætt, en nú er skólum lok- ið og skólafólkið sem oftast er uppistaðan f vinnukraftinum er óðum að koma sér fyrir. Veður er gott eystra. Skipin sem tilkynntu afla í gærdag voru: Vígri 1300, Hall- dór Jónsson 1000, Stapafell 800, Sigrún 1150. 'm e verzL ÁS BLADl.D í DAG Miiijé::: Fyrirtækið Ás, sem hefur rek- ið margar verzlanir með því heiti víðsvegar í bænum og í nágrenni hans hefur lent i greiðsluþrotum og nú f vikulok in var verlð að loka Ás-verzlun unum m.a. hinni gömlu og upp- haflegu verzlun Ás að Lauga- vegi 160. En þegar flest hefur verið rak fyrirtækið 7 verzlan- ir, m.a. á Melhaganum, í Laug? ncsinu og suður í Silfurtúni. Eigandi verzlunarinnar nefu: að undanfömu verið að senda bréf til lánardrottna sinna, sen eru mjög margir, skipta tugum og óska eftir því að þeir veiti honum nauðasamninga. Býður hann þeim að greiða um 25% af skuldarhæðinni á ákveðnum tíma. Er talið líklegt að kröfu- hafarnir gangi að þessu, þar ‘:em þeir ella fengju enn ninni hlut skuldarinnar. Eftir því sem blaðið hefur fregnað mun hér vera um að ræða eitt af stærstu greiðslu- þrotamálum hér á landi. Munu skuldirnar vera nálægt 81/2 millj. kr., en eignir er talið að leggi sig út á 1.5-2 millj. kr. Stærsti skuldareigandi mun vera Samband fslenzkra sam- vinnufélaga og Samvinnubank- inn en þau munu sameiginlega eiga um 2% millj. kr. hjá Ási. \ y 1 ■ T[ 7‘r

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.