Vísir - 18.06.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 18.06.1964, Blaðsíða 1
ijfggWBBfsaterfHisas 3 - '*l**m r: : :::: ■■■■ STIKKER VÆNTANLEG- UR UM HELGINA Dirk Stikker, framkvæmdd- stjóri Atlantshafsbandalagsins kemur í heimsókn til íslands á sunnudagskvöld til þess að kveðja ríkisstjórn fslands og aðra, er hann hefur átt sam- skipti við hér en hann lætur af embætti sem framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins 1. ágúst n.k. Mun Stikker aðeins hafa stutta viðdvöl hér en hann fer utan aftur á þriðjudagsmorgun. Framh ð bls 6 Mannfjöldinn mikli á Arnarhóli þjóðhátíðardaginn 17. júní 1964. '»i» / ••• . '■ ■ ■' : 1 sem „Leggið braut, greiðið veginn, ryðjið hverjum ásteytingarste ni til hliðar. Þjóðhátíðin í Reykjavík í gær á 20 ára afmæli Iýðveldisins er vafalaust fjölmennasta samkoma, sem nokkru sinni hefur verið haldin hér og sennilega gæti það hvergi skeð nema hér á íslandi, að tíundi hluti allrar þjóðarinnar væri saman kom- inn á einn stað. Vestur-íslendingar og útlendir menn, sem hér dvöldust, létu í ljós undrun sína yfir þeim geysilega mann fjölda, sem þarna var saman kominn og aðdáun sína á því hátíðarskapi, sem var á hópnum. Þama hjálpaðist allt að, heppilegt þjóðhátíðarveður og margbreytileg og nær því samfelld skemmtiatriði. Þó að lítt væri vikið út frá hinni venjubundnu röð ræðuhalda og skemmtiatriða, var meiri fylling yfir þeim en venjulega, svo að sérstakur hátíðasvipur var yfir deginum. Mannhafið náði þegar mest var, bæði um miðjan daginn og á kvöldskemmtuninni, yfir Arnarhól, Kalkofnsveg, allt Lækjartorg, Stjórnarráðsblettinn, neðsta hluta Bankastrætis og langt suður eftir Lækjargötunni. Rigning um morguninn. Veðurútlit fyrir þjóðhátiðar- daginn virtist ekki álitlegt um morguninn, þá var skýjaður him inn og gerði hellirigningu og vottaði jafnvel lítilsháttar fyrir hagli, en upp úr hádegi, þegar skrúðgöngur voru að hefjast frá þremur stöðum í bænum birti til. Þjóðhátíðina setti Ólafur Jóns son, form, þjóðhátíðarnefndar skömmu fyrir kl,. 2 með stuttri raeðu á Austurvelli, þar sem hann minntist 20 ára afmælis lýðveldisins, bað menn að minn- ast þeirra sem trúðu á landið, jafnvel þegar fátækt og skortur hafði lagt nærri allt í auðn. BLAÐID I DAG i Bls. 3 Myndsjá frá 17. júní 4 Síldarvinnsla á Raufarhöfn 7 Fyrsta íslenzka óperan. Eftir Leif Þórarinsson. 8 Viðtal við Gísla Sigurbjörnsson. 9 Ræða dr. Bjarna Benediktssonar, for- sætisráðh. 17. júní Sækjum þrótt í sigrana og lát- um mistök verða okkur til varn- aðar. „Þetta er dagurinn“. Þá hófst hátíðaguðsþjónusta í Dómkirkjunni, sr. Bjarni Jr'ns- son vígslubiskup prédikaði og Iagði út af þessum orðum í 108 sálmi: „Þetta er dagurinn sem drottinn hefur gert, fögnum og gleðjumst á honum“, Ræða hans fól í sér þakklæti fyrir þá gæfu sem guð hefur leitt yfir þjóðina, en nú um langt skeið hefur sól verið yfir íslandi. Við skulum gera þá játningu sagði sr. Bjarni að mikla hluti hefur guð fyiir oss gert og þá bæn að hann styrki verk handa vorra. Til þeirra, sem stjórna landinu beindi hann þessum orðum: Ræða forsætisráðherra. Að lokinni guðsþjónustu kom Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra út á svalir Alþing ishússins og ávarpaði þjóðina. I ræðu sinni lagði hann áherzlu á það, að Jón Sigurðsson hafi aldrei ánetjazt neinu kenninga- kerfi. Lærdómur hans var mik- ill en kenning hans var einföid, að frelsi og þekking væri drif- Framh. á bls. 6 MESTA SÍLD VEIDIÁ EINUM SÓLARHRING 1 gær og í nótt fengu 86 skip samtals 54500 mál í Seyð- isfjarðardjúpi. Er það mesta veiði á einum og sama sólar- hringnum það sem af er þessu sumri og um leið fyrsta síldin að marki sem veiðist út af Aust- fjörðum. Lát hefur þó orðið á veiðinni þar eð bræla er nú á þessum slóðum. Löndunarbið cr á öllum Austfjarðarhöfnum, m. a. biðu 10 skip á Vopnafiröi í morgun. Eftirtalin skip fengu 500 mál og meira: Svanur ÍS 600, Höfrungur 650, Rifsnes 500, Hoffell 600, Engey 550, Höfrungur III 800, Sunnutindur 1300, Loftur Bald- vinsson 650, Árni Magnússon 750, Huginn II 550, Snæfell 1000, Sigurvon 700, Jörunduf II 1100, Sólfari 700, Halldór Jónsson 500, Dofri 500, Harald- ur 800, Vigri 1100, Oddgeir 1000, Bjarmi II 800, Arnfirðing- ur 850, Ásþór 550, Hilmir II 550, Reykjanes 700, Hafþór 800, Sigurður Jónasson 700, Hamra- vík 600, Faxi 550, Steingrímur trölli 800, Jón Finnsson 700, Sólrún 700, Sigurður AK 750, s Mánatindur 1000, Þórður Jóns- | son 1300, Áskell 650, Þorbjörn 1 II 1100, Dalaröst 700, Kamba- 1 röst 650, Gnýfari 650, Skarðsvík 1 800, Seley 1000, Jón á Stapa j 1000, Sigfús Bergmann 1050, í Guðbjörg 1050, Pétur Jónsson í 550, Stefán Árnason 650. 1 •

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.