Vísir - 18.06.1965, Blaðsíða 16
ISIJR
Eðvarð
Sigurðsson
sjúkur
Föstudagur 18. júní 1965
Eðvarð Sigurðsson, alþingismað-
ur og formaður Dagsbrúnar var
fluttur á sjúkrahús þann 16. júní.
Hafði hann veikzt nóttina áður af
kransæðastíflu. Eftir upplýsingum
sem Vísir aflaði sér í morgun eru
veikindi Jians ekki talin lífshættu-
leg en hann mun verða að taka sér
algjöra hvíld alllangan tíma, a.m.k.
í einn mánuð. Eðvarð hefur sem
kunnugt er stýrt samningaviðræð-
um af hálfu Dagsbrúnar undan-
farnar vikur. Varaformaður félags-
ins er Guðmundur J. Guðmunds-
son og tekur hann nú við þeim
störfum Eðvarðs.
Sigurbjörn Bjarnason tók þessa mynd af nýstúdentunum í Lystigarð inum á Akureyri.
Nýstúdentar útskrifaðir á Akureyri
Sóðviðri á þióðhátíðinni ó Akureyri í gær
Einstök veðurblíða var á þjóð
hátíðardaginn á Akureyri og
sem fyrr settu hvítu kollamir,
nýstúdentamir, svip sinn á
hátíðahöldin.
Hátíðin hófst með leik lúðra-
sveitar á Ráðhústorginu, en síðan
var gengið til fþróttaleikvangsins
þar sem Magnús Jónsson fjármála
ráðherra, og Sigurður H. Guð-
mundsson, nýstúdent, fluttu ræður
Þar fór síðan fram fimleikasýning
og íþróttakeppni auk knattspymu
kappleiks milli blaðamanna og leik
ara. Sýning á húsdýrum, þar á
Skégafoss kom tilReykjavíkur í gær
Skógafoss, hið nýja skip Eim-
skipafélags íslands lagðist flögg-
um prýtt á ytri höfnina í gperdag.
Skógarfoss er 3870 tonn dw. og
annað af tveimur skipum, sem
Eimskip samdi um smíði á 1963
hjá Alborg Værft í Danmörku. Allt
er skipið mjög vandað og smiðað
eftir ströngustu reglum Lloyds. Á-
höfnin er 26 manns, skipstjóri á
letðinni heim var Jónas Böðvars
son, sem fylgdist einnig með smíði
skipsins, en skipstjóri verður
Magnús Þorsteinsson.
Eimskipafélag íslands samdi um
smíði Skógafoss í ágúst 1963 og
var kjölur þess lagður 1. okt. 1964
Allur styrkleikj skipsins er miðað-
ur við, að nota megi það hvort
heldur sem opið eða lokað hlífðar-
þilfarsskip og er það styrkt til sigl
inga í ís samkvæmt finnskum ís-
siglingareglum. Sömuleiðis er
Framh. á bls. 6.
meðal geit með kiðling o. fl. vakti
mikla ánægju barnanna, en dýrin
voru höfð í búrum.
Að loknum skemmtiatriðum var
leikið fyrir dansi á Ráðhústorgi
og dansað til klukkan 3 eða 4 um
nóttina.
Hátíðin fór sérlega vel fram og
tæplega hægt að segja að vín
hafi sézt á nokkrum manni.
Nýstúdentar með sína hvítu
kolla setja mikinn svip á hátíða
höld Akureyringa 17. júní ár hvejrt.
Að þessu sinni voru 92 stúdentar
brautskráðir frá Menntaskólanum
á Akureyri og sleit skólameistari,
Þórarinn Björnsson, skólanum með
ræðu í Akureyrarkirkju, hið fyrsta
sinn sem það er gert utan gamla
skólahússins.
Þrír efstu stúdentarnir voru
Jóhann Vigfússon, Inspector
scholae 9.33, Rögnvaldur Gísla-
son, 9,30, og Jón Kr. Arason með
9,06. Voru þeir allir úr stærðfræði
deild. í rtiáladeild urðu efst Auð-
ur Birgisdóttir með 8.84, Óiafur
Framh. á bls. 6.
Fjölmörg slys í Reykjavik
og grennd í fyrradag
Jónas Böðvarsson skipstjóri og Skógafoss í baksýn.
Dagurinn í gær var slysa- og
óhappalaus í Reykjavík og
grennd áð því er bezt var vitað,
en miðvikudagurinn var þeim
mun meiri slysadagur og má
segja að hvert slysið hafi orðið
á eftir öðru í Reykjavík og ná-
grenni.
Fyrsta óhappið, án þess þó
að slys hlytist af, varð uppi í
Hörgshlíð rétt eftir hádegið á
miðvikudaginn. Þar hafði öku-
maður bifreiðar keyrt harka-
lega á rafmagnsstaur, brot-
ið staurinn og stórskemmt
bifreiðina. Hjá honum sjálfum
hefur samvizkan ekki verið í
sem beztu lagi, því hann tók til
fótanna og var horfinn af vett-
vangi þegar lögreglupa bar að.
Á miðvikudagskvoldið eftir
kvöldmat hafði Reykjavíkurlög-
reglan afskipti af fjórum um-
ferðarslysum, sumum næsta
miklum.
Það fyrsta varð kí. 9.20 á
Frakkastíg hjá húsi nr. 12. Bif-
reið hafði verið lagt þar inn af
húsasundi og stóð hún í halla,
en autt svæði fyrir neðan. Bif-
reiðin hafði verið skilin eftir ó-
læst. Rétt eftir kl. 9 um kvöld-
ið hafði 11 ára drengur farið
inn í bifreiðina og byrjað að
fikta við stjórntækin, m. a.
losað um handhemilinn og tekið
hana úr gír. En þegar bíllinn
tók að renna greip drenginn
mikil hræðsla, svo hann fleygði
sér út úr bifreiðinni og klemmd-
ist við það upp við vegg. Lög-
Framh. á bls. 6
Vínhus þjóðhátíðardagur
Samkvæmt upplýsingum frá götu-
lögreglunni i Reykjavik í morgun
fóru 17. júní hátíðahöldin fram
með miklum menningarbrag og
minni ölvun en nokkru sinni áður
á þessum degi.
Lögreglan kvaðst hafa tekið
samtals 36 menn úr umferð í gær
og nótt vegna ölvunar á almanna-
færi, en það er sízt meira en verið
hefur undanfama sólarhringa, hvað
þá ef miðað er við hinn mikla
mannfjöMasem var á stjái í bænum
í gær og nótt, eða þá 17. júní há-
tíðarhöldin undanfarin ár.
í heild er varla unnt að segja, að
ölvaður maður hafi sézt á al-
mannafæri við hátíðahöldin í gær,
sögðu þeir sem þeim hnútum voru
kunnugastir og bezt fylgdust með
hátíðahöldunum. Lögreglan sagði
að þetta væri að þakka fyrirmælum
Magnúsar Jónssonar fjármálaráð-
herra um lokun áfengisútsalanna
s.l. miðvikudag. Telur hún að sú
ákvörðun hafði öðru fremur stutt
að þeim menningarblæ, sem á há-
tíðahöldunum var, og dregið stór-
lega úr ölvun.
Lögreglumenn telja sig þó hafa
heyrt ýmsar óánægjuraddir meðal
almennings í gær út af fyrirmæl-
um ráðherrans og ýmsir hafi reynt
að leita á náðir leynivínsalanna, þ.
e. leigubílstjóranna til að fá áfengi
keypt. Vínsalarnir reyndu líka ,að
hafa sig nokkuð í frammi en lög-
reglan greip þá til gagnráðstafana
og hélt þeim í skefjum.
Sumarferð Varðar
verður 11. júlí
Hin árlega sumarferð Varðarfélagsins verður að
þessu sinni farin sunnudaginn 11. júlí. Farið verður
í Þjórsárdal og ekið um fegurstu sveitir nærlendis.
Skoðaðar verða undirbúningsframkvæmdir við
hina væntanlegu Búrfellsvirkjun. — Ferðin verður
nánar auglýst síðar.