Vísir - 19.06.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 19.06.1965, Blaðsíða 1
ISIR ní 1965. - 136. tbl. Ferðamamwösin að byrja ú AKUREYRI Mikil gestaþröng var á Akur- eyri yfir þjóðhátíðardaginn og dagana þar í kring. Voru öll hótel þá ef svo má segja yfirfull. Síldarstúlkur mun færríí ár Flokkunarvélar kornnar d nær allar söltunarstöðvar eystra Mikil breyting verður nú í sumar á vinnunni í síldarsöltunarstöðvun- um sem fylgir aukinni vélvæðingu. Það má heita að allar síldarsöltun arstöðvar frá Húsavík og austur um alla Austfirði séu búnar að fá sér flokkunarvélar. Þær hafa það í för með sér, að á stöðvum þar sem 60 — 70 konur áður unnu verða nú aðeins 30—40 konur. Var útilokað að nota gömlu aðferðina, að láta konumar kasta úr þar sem síldin er mjög blönduð. Síldarstúlkur hafa enn ekki farið austur á Austfirði en þær hafa ver ið beðnar um að vera tilbúnar og er enginn vafi á því að jafnskjótt og söltunarhæf síld fæst, fer allt af stað í einu vetfangi. Nú sem stendur bíða síldarsalt- endur sem sé eftir þvi að fá söltun arsíldina. Menn bíða sérstaklega með eftirvæntingu eftir því að síld in við Gerpi og Langanes fari að veiðast. Hins vegar er búizt við eftir reynslunni í fyrra að það sé ekki nein demantssíld, heldur mjög blönduð og smá, en þá munu flokk unarvélarnar einmitt koma að góðu haldi. , Voru þetta m. a. gamlir stúdent ar og skyldfólk nýstúdenta, sem þyrptist til síns gamla sköJabæj ar. Og nú upp úr 20. júni fer hinn eiginlegi ferðamanna- straumur til Akureyrar að hefj- •ast. I bænum eru 3 hótel og eitt rétt fyrir utan hann í Hlíðar- fjalli. Samtals eru i þeim 175 gistirúm og er mikið búið að panta, mest útlendir ferðamenn. Fréttaritari blaðsins ræddi stuttlega við forstöðumenn hótel anna. Ragnar Ragnarsson hótel KEA sagði að gisting hefði verið mikil í sambandi við 17. júní, en minna um matargerð fyrir gest- ina en í fyrra. Aðstreymi venju- legra ferðamanna hefst nú strax upp úr 20. júní og liggja talsvert fleiri pantanir fyrir en í fyrra. Mest útlendingar, helzt Englend ingar, Gistirúm eru 58. Framh á bls. 6. Aðeins 2 laxar veiddir í Elliðaám 10 laxar kornnir í gegnum teljarann í gær þegar tíðindamaður Vís is heimsótti veiðihúsið við Elliða ár, voru aðeins 2 laxar komnir á land í sumar. Fyrsti laxinn sem veiddist í fyrradag, var 13 pund. Veiðimaðurinn var Pétur Jóhannesson. Annar lax beit svo á hjá Þorkell Þórðarsyni snemma í gærmorgun. Það var 10 punda hængur, nýgenginn og lúsugur. Þorkell hefur veitt i Elliðaánum í meira en 20 ár svo hann ætti að kunna tökin. Báðir laxamir fengust við fossinn. Björn Sæmundsson vörður við árnar segist ekki muna eftir að Elliðaárnar hafi verið eins vatns litlar. Hefur þó Björn verið vörð ur þarna í 16 ár. „Lax, hvað er nú það?“ — spurði Björn í gríni, þegar blaðamaðurinn spurði um veiðina. Björn tjáði blaðamanni að veiði hafi eiginlega hafizt 5. júní. Þá var borgarstjóranum, Geir Hallgrímssyni, rafmagnsstjóra, stöðvarstjóra Elliðaárstöðvarinn ar og stjóm Stangveiðifélags Reykjavíkur, boðið að reyna við laxinn, en enginn þeirra veiddi neitt. Síðan hafi verið gert hlé til 11. júní Aðeins 10 laxar hafa gengið í gegnum laxateljarann, sem sýnir að óvenjulega fáir iaxar hafa gengið upp f.ána. Búið að steypa 1,5 km. Þorkell Þórðarson með annan Iaxinn sem hefur komið á Iand. Búið er að vinna i rúma viku við að steypa Keflavíkurveginn, og gengur það starf fyllilega sam- kvæmt áætlun. Byrjað var að steypa veginn hjá Kúagerði um miðja s.l. viku og I gærmorgun var búið að steypa sem næst 1,5 km. af þeim 18,3 km. sem steyptir verða suður í Njarð- vfkur. Unnið er með fullum af- köstum dags daglega, en sam- kvæmt áætlun á að ljúka verkinu og taka veginn í notkun í septem ber í haust. Er þetta fyrsta varan lega vegalagningin, sem gerð hef- ur verið úti á þjóðvegum lands- ins, eða utan bæja og kauptúna. Fer skipting Amasafns fram úður en dómur fellur? Menntamálaráðherra Dana K. B. Andersen er nú að fhuga það hvort ekki sé rétt að hefja nú þegar undirbúning að skiptingu Ámasafns með þvi m.a. að skipa nefnd þá sem á að skipta safninu og láta hana hefja störf, enda þótt málsókn standi yfir. Gæti hugsazt að nefndin gæti logið sfnum störfum áðun en dómur er upp kveðinn svo að afhending gæti þegar hafizt eftir að dómur hefur gengið. Skýrir blaðið Berlingske Aften avis frá þessu. Blað'ið segir þó, að menn greini nokkuð á um það hvort það sé framkvæmanlegt, að hefja þegar störf við þetta. Sum ir lögfræðingar telja að verkið verði ekki hafið fyrr en samn ingar Við Island um afhending ima hafi verið fullgerðir. Það er skoðun kennslumála ráðuneytisins að Kaupmanna- hafnarháskóli eigi sjáifur að til nefna hlna tvo dönsku fulltrúa í nefndinni, en líklegt að há- skóhnn sé ófús til þess þar sem nefndarstofnunin muni mæta mótspymu Ámastofnun- ar. Nefndarstörf yrðu líka gerð örðug gegn mótspyrnu Áma- stofnunar. Gæti jafnvel svo far ið að Ámastofnunin néitaði nefndinni um aðgang að hand ritasafninu þar til dómur hefur verið kveðinn upp i óg'ildingar málsókninni. Blaðamaður Vísis kom við í Hvalstöðinni um daginn og tók þessa mynd af gapandi skíðhval á skurðarplaninu. 85 HVAUR HAFA VCIÐZT Þegar Vísir hafði samband við hvaiveiðisöðin í Hvalfirði í gær kvöldi höfðu 83 hvalir borizt á land og tveir væntanlegir til við- bótar. Mest hefur veiðzt af Iang- reyði en auk bess nokkuð af búr- hval. Á sama tíma i fyrra höfðu borizt að landi alls 96 hvalir. Véiði hófst að þessu sinni 21. maí, en framan af var ótíð sem hindraði veiðar. Veiðarnar hafa gengið vel það sem af er sumars og stöðug vinna er í hvalstöðinni. Hvalveiðibátarn'ir hafa að mestu leyt ihaldið sig djúpt út af Faxa- flóa eða út af Hornbjargi. Eins og undanfarin ár munu 4 hvalbátar vera að veiðum í sum- ar. Bátarnir hafa verið endurnýj aðir undanfarin ár og eru nú allir gömlu bátarnir komnir úr umferð Veiðitíma lýkur um 20. sept.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.