Vísir - 15.07.1965, Blaðsíða 2

Vísir - 15.07.1965, Blaðsíða 2
VI S IR . Fimmtudagur 15. júlí 1969. RITSTJÚRI ■' JÓN BIRGIR PETURSSON FH — meistarar ár samfleytt Meistarar 10. áriB í röi? FH sigurstranglegast á Islandsmótinu i útihandknattleik er hefst á mánudag 18 íslandsmót karla í handknattleik (utanhúss), verður háð að Hörðuvöllum í Hafnarfirði á tímabilinu frá 18. júlí til 28. júlí. Fimleikafélagi Hafnarf jarðar hef- ur verið falin umsjón mótsins eins og undanfarin ár. Að þessu sinni taka 6 lið þátt í mótinu, en þau eru Hafnarfjarðarliðin FH og Haukar, og Reykjavíkur félögin Valur, Ármann, Þróttur og ÍR. Leiknir verða 2 til 3 leikir hvern leikdag og leika allir við alla. Frá upphafi hafa eftirtalin lið sigrað í mótinu: Árið 1948 sigraði Ármann í Reykjavík — 1949 — Ármann á Akureyri — 1950 — Fram á Akureyri — 1951 — . Valur á Leirvogsbakka — 1952 — KR í Engidal' — 1953 — Ármann á KR-vellinum — 1954 — Fram f Engidal — 1955 — Valur á KR-vellinum — 1956 — FH í Engidai — 1957 — FH á Leirvogsbakka — 1958 — FH á Akureyri — 1959 — FH á Hörðuvöllum — 1960 — FH á Ármannsvellinum _ 1961 — FH á Hörðuvöllum — 1962 — FH á Ármannsvellinum _ 1933 — FH á Hörðuvöllum — 1964 — FH á Hörðuvöllum Dregið hefur verið um hverjir leiki saman hvert kvöld, og skýrir eftirfarandi tafla það: Mánudagur 19. júlí kl. 7,30: FH — Haukar. Þróttur — Ármann. Valur — ÍR. Miðvikudagur 21. júlf kl. 8: Haukar — Þróttur. Ármann — ÍR. Föstudagur 23. júlí kl. 8: FH — Ármann. Haukar — Valur. Laugardagur 24. júlí kl. 2,30: Haukar — ÍR. Valur — Ármann. •..................... ,..íj4-——í---: KR í Evrópubikar- keppni í körfubolta Áfráðið er að KR sendi lið f Evrópubikarkeppni meistara iiða f körfuknattleik, sem hefst f nóvember næstkomandi. Að undanförnu hafa verið stanziausar æfingar hjá meist- araflokki félagsins undir handleiðslu bandarfska þjálfarans Philip Bonzing. Æft hefur verið tvisvar í viku í KR-húsinu og jafnframt farið einu sinni í viku suður á Keflavikurflugvöll og æft í íþróttahúsinu þar. Tilhögun keppni þessarar er þannig háttað að leikið er heima og heiman og er það liðið úr leik sem færri stig hlýtur eftir ’ báða leiki, en sigurvegarinn heldur áfram f næstu umferð. Eins og menn minnast er þetta sama keppni og ÍR tók þátt í síðast liðið haust, unnu írlandsmeistarana og lentu f annarri umferð gegn Frökkum og urðu þar úr leik. Evrópumeistari er Spánska liðið Real Madrid, þeir unnu nauman sigur yfir Sovéska liðinu TS.S.K.A. frá Moskvu. í fyrri umferð sigraði Moskvuliðið 88—81, en f seinnl umferð tóku Spánverjar sig á og unnu Rússana 76—62, og urðu þar með Evrópubikarmeistarar 1965. Svo eins og sjá má eru þeir lið- tækir f fleiru en knattspyrnu. FH — Þróttur. Mánudagur 26. júlí kl. 8: FH — IR. Valur — Þróttur. Miðvikudagur 28. júlí kl. 7,30: Þróttur — ÍR. Haukar — Ármann. FH — Valur. ☆ mm Víkiag 4:3 Breiðablik vann Víking í gærkvöldi í leik liðanna í 2. deild, sem fram fór í Kópavogi með 4 mörkum gegn 3. Hefur Breiðablik því enn möguleika á að vinna B-riðilinn í deildinni og þannig að komast í úr- slitin gegn Þrótti eða Siglu firði. Fyrri hálfleikur var mun meira eign heimamanna, Breiða- bliks, sem áttu hvert færið á fæt- ur öðru, en ekki tókst þeim þó að skora fyrr en á síðustu sekúndum hálfleiksins. Markið skoraði Jón Ingi Ragnarsson upp úr auka- spyrnu. 1 seinni hálfleik skoraði Breiða- blik 2:0 snemma úr vftaspyrnu, sem Jón Ingi skoraði örugglega úr. yn—...................... i Þriðja markið skoraði Breiðablik Framh á bls. 8 r m KERUNGARFJÖLLUM Sumarskfðamót verður haldið i Kerlingarfjöllum laugardaginn 24. og sunnudaginn 25. júlf elns og áð- ur hefur verið auglýst. Mótsstjóri verður Sigurjón Þórðarson Í.R. Skíðafæri er gott f Kerlingarfjöllum um þessar mundir og nemendur frá skfðaskólanum f Kerlingarfjöllum hafa komið útiteknir og ánægðir f bæinn að lokinni dvöl þar. Mótsstjórinn minnir kepp- endur á að panta næturgistingu f skála Ferðafélagsins (sími 13171, Hinrik Hermannsson) og far í Kerlingar- fjöllin hjá Ferðafélagi íslands. Lagt verður af stað föstudagskvöldið 23. júlí og komið aftur til bæjarins á sunnudagskvöld. Tilkynningar um þátttöku f móti þessu verða hjá mótsstjóranum eftir komu keppenda i Kerlingarfjöllin. Það er mjög árfðandi að allir kepp- endur séu mættir á mótsstað á föstudagskvöld, þar sem keppni hefst um hádegi á laugardag. Allar nán- ari upplýsingar varðandi mót þetta eru veittar f síma 13171. íslandsmeistarinn Kristlnn Benediktsson frá Isafirði sveiflar sér niður 1 Kerllngafjöllum. FRÁMARAR HVERFA UR NAUT- HÚLSVÍKAÐ SÓLARLAGSBRAUT Verðn nágrcinnar ICR-inga við æfing- arnar fyrir iokaáfökin í 1. deild Framarar hafa fengið svæði til að æfa sig á fyrir 1. deildar- lið sitt. Við skýrðum frá því mánud. að lögreglan hefði rekið Framara burtu með æf- ingar sínar úr Nauthólsvíkinni og þar með voru þeir „á göt- unni“ með æfingar sínar. Þetta bar þann árangur að ágætismaður einn, Meyvant Sigurðsson á Eiði á Seltjarnar- nesi hringdi í einn af framá- mönnum i Fram og sagði að félaginu væri heimilt að nota tún hans á grandanum þar sem Sólarlagsbraut liggur. „Aðeins eitt skilyrði“, sagði hann, „þið megið ekki falla f 2. deild“. Og staðurinn var skoðaður og í ljós kom, að þetta var hið hentugasta æfingasvæði. Og nú miinu Framararnir geta byrjað að æfa aftur á grasi og vonandi verður þetta til þess að nokkur stig í viðbót fást til að verjast fallinu. Verða þeir að nota bún- ingsklefana í félagsheimilinu fyrir neðan Sjómannaskólann, en aka á bílum sfnum vestur eftir, framhjá bækistöðvum KR inga og æfa f nokkur hundruð metra fjarlægð frá þeim, örlftið nær hinu fallega sólarlagi. Von- andi geðjast Austurbæjarliðinu vel að andrúmsloftinu f Vestur- bænum!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.