Vísir - 20.10.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 20.10.1965, Blaðsíða 1
VISIR — Miðvikudagur 20. október 1965. - 239. tbl. Sildaraflinn í ár fer kmgt yfir fyrri met Sæmileg sfldveiði var fyrri hluta vikunnar sem leið, en engin velði var sfðustu tvo daga vikunnar 1 vegna brælu, er gerði á miðunum. | Aðalveiðin var á sömu slóðum og vikuna áður 50—60 sjómílur S.A. 24 SKIP YFIR 30.000 — en Jón Kjartansson slær olla út með nærri 50.000 múl og tunnur Hvorki meira né minna en 24 bátar eru nú komnir með yfir 30.000 mál og tunnur á sumar- síldveiðunum. Einungis einn þeirra er þó kominn yfir 40.000 mál og tunnur og skarar langt fram úr öðrum bátum. Það er Jón Kjartansson frá Eskifirði, skipstjóri Þorsteinn Gíslason (bróðir Eggerts), sem er kom- inn með 48.919 mál og tn. Næstur í röðinni er Bjarmi II. frá Dalvík með 39.868, þá Heimir frá Stöðvarfirði (skipst. Eggert Gíslason sjálfur) með 38.901. Þá koma Dagfafl frá Húsavík með 37.539, Sigurður Bjamason frá Akureyri með 37.469, Isleifur IV. frá Vest- mannaeyjum með 36.482, Ól- afur Magnússon frá Akureyri með 36.041, Barði frá Nes- kaupstað með 35.633, Gullver frá Seyðisfirði með 35.199 og Engey frá Reykja' " '169. Á neðri helmirv i tug- þúsundsins eru þes^ .kip: Ak- urey frá Rvfk með 34.944, Keflvíkingur 34,656, Súlan frá Akureyri 34.296, Viðey frá R- vík með 34.293, Þorsteinn frá Rvík með 34.117, Þorbjöm II. frá Grindavík með 33.921, Lóm Laxaræktin í Lúrvaðli: Um 50 hluthafar kafa lagt fram um 3 milljónir króna 49 nýir hluthafar bættust i hlutafélagið um lax- og silunga- rækt á vatnasvæði Lárvaðals i Eyr arsveit á Snæfelisnesi á undirbún- ingsfundinum, sem haldinn var í Tjarnarbúð í gærkvöldi. Hafa safn azt, 2,9 millj. kr. í hlutafé. Vísir hefur áður skýrt frá hin- um stórfelldu framkvæmdum sum arsins við Lárós, stíflugerð, smíði yfirfalls með lokum og gildrum, ræktun seiða og frá frekari fram- kvæmdum, sem þar eru fyrirhug- aðar. í undirbúningsnefnd stofnunar hlutafélagsins voru kjörnir upp- I----1Í--------------- Rhodesia NTB árdegis. Smith forsætisráðherra hefir skýrt frá þvi, að grundvallar- ákvörðun (,,prinsippbeslutning“) hafi verið tekin varðandi einhliða yfirlýsingu um sjálfstæði Rhodesíu á stjómarfundi í morgun, en hann vildl ekki skýra nánar frá henni fyrr en hann hefði sent Wilson for- sætisráðherra „seinasta boðskap“. — Sjá nánar í frétt um málið á 5. síðu. BLAÐIÐ í DAG hafsmenn málsins, þeir Ingólfur Bjarnason forstjóri og Jón Sveins- son rafvirkjameistari, og til við- bótar Tryggvi Þorfinnsson skóla- stjóri, Gunnar Helgason, Loftleiða fulltrúi, Guðm J. Kristjánsson, form. Landssambands stanga- Frh. á bls. 6. ur frá Keflavík með 33.129, Eld ey frá Keflavík með 32.400, Hannes Hafstein frá Dalvík með 30.877, Hrafn Sveinbjam- arson III. frá Grindavík nieð 30.805, Huginn II. frá Vest- mannaeyjum með 30.611, Jör- undur III með 30.267, Bjartur frá Neskaupstað 30.180 og Þórður Jónasson frá Akureyri með 30.121 mál og tn. Tekið . skal fram, að hér eru alls stað- ar lagðar saman tölur af veið- um fyrir austan land og fyrir sunnan land í sumar. Fjöldi skipa er rétt neðan við 30.000 mál og tn., sem þótti fram til þessa vera stórkostleg ur afli. Það verða því margir, sem hverfa af þessari vertíð með seðlaveskin full. Alls hafa 224 skip fengið afla og af þeim hafa 218 skip fengið 1000 mái eða meira. 68 skip stunduðu veiðar bæði auptan- og sunnanlands og 13 skip ein- göngu sunnanlands, en öll hin skipin veiddu eingöngu eystra. j af Dalatanga og í Glettinganesflaki. ! Vikuaflinn var 166.521 mál og jtunnur, en nokkuð af þessu magni ! mun vera frá vikunni áður, því ekki tókst þá að landa öllum þeim afla vegna löndunarerfiðleika. Heildaraflamagnið á miðnætti s.l. laugardags var orðið 2.847.000 mál og tunnur. Síldaraflinn í sömu viku í fyrra var 142.438 mál og tunnur, og var heildaraflinn þá orðinn 2.737.244 mál og tunnur. Heildarsíldaraflinn sunnanlands til miðnættis s.l. laugardags nemur nú 724.545 uppmældum tunnum, sem nær eingöngu hefur farið í bræðslu. Aflinn norðanlands og austan hefur verið hagnýttur þannig: 1 salt uppsaltaðar tn. 393.103 — í fyrra 353.348. í frystingu uppmældar tn. 23.409 — í fyrra 41.062. í bræðslu ipál 2.430.55*1' — í fyrra 2.342. 834. Frá fundinu í Tjarnarbæ í gærkvöidi, j>egar undirbúin var stofnun laxaræktarfélagsins. Ævintýri stúlku og bílþjófs Rannsóknarlögregluna vantar ökuþór, sem ók vörubifreiB frá Miðtúni og inn að Elliðaám sl. Iaugardagsmorgun. Nóttina áður hafði umræddri vörubifreið verið stolið frá Miðtúni 22, en bifreiðin fannst seinna á laugardaginn við hestþús á vestri bakka Elliðaánna. Stúlka nokkur gaf sig fram við lögregluna og skýrði frá því, að ökumaður umræddrar bifreiðar hefði stöðvað sig árla laugardags, en þá var stúlkan á leið til vinnu. Ökumaður bauð henni upp í bíl- inn til sín og kvaðst skyldu aka henni á vinnustað. Þáði hún boð- ið, og sagði ökumanninum jafn- framt hvert hún ætlaði. En þegar stúlkan var komin upp í bílinn, stefndi ökumaðurinn þvert úr leið við það sem stúlkan ætlaði að fara. Hélt hann striki sínu út úr borginnj og síðan upp með Elliða ánum að vestan og nam staðar við hesthús eitt mikið, sem stend ur skammt frá árbakkanum. Stúlkan kvaðst ekki hafa veitt því athygli fyrr en um seinan, að ökumaðurinn var allmjög undir'á- j hrifum áfengis. Var þess ekki i neinn kostur að hann næmi stað- i ar til að hleypa stúlkunni út. En ! þegar að hesthúsinu kom vildi Framh. á bls. 6. MINNA UM RJÚPUR ENIEYRRA — segir Guðmundur Jónasson, bifreiðarstjóri ’Guðmundur Jónasson lang- ferðabílstjóri kom að máli við Vísl fyrir skemmstu og lét það álit í ljós, að mun mihna væri um rjúpu nú heldur en í fyrra. Svo virtist og sem sú rjúpa sem sézt hafi fyrri hluta sumars í ár væri horfin með öllu. Guð- mundur kvaðst hafa séð fyrri hluta sumars talsvert af rjúpna- fjölskyldum, einkum á ferðum sínum um Þingeyjarsýslur. En þegar hann svo hafi verið þar á ferð seinni hluta sumarsins hafi þær verið með öllu horfnar —• en hvert, sagðist hann ekki geta sagt um. Guðmundur kvaðst hafa far- ið um miðjan þennan mánuð með nokkurn hóp manna inn á Landmannalaugasvæðið. En þeir hafi fárra rjúpna orðið var- ir, og mun minna heldur en sézt hafi um sama leyti : fyrrahaust. Og þær fáu rjúpur, sem þeir sáu að þessu sinni hafi enn ekki verið búnar að skipta um lit. Það væri óvenjulegt um þetta leyti hausts. Guðmundur kvaðst ennfremur hafa haft fregnir um rjúpna- skvttur sem lagt hafi leið sína vestur á Tröllakirkju, en það er mjög vinsælt rjúpnaland, og þar hefur snjóað nokkuð svo á- 'stæða væri að ætla að rjúpan héldi sig þar. En þar hafa skytt- urnar lítils orðið varir, þær harð fengustu hafi skotið um 20 rjúpur. Ein skyttan sá enga rjúpuna, en skaut tófu þess í stað. Maður úr Álftaveri skýrði Guðmundi frá því að í fyrra- haust hefði hann séð allmargt rjúpna í göngum, en íhausthefði hann aðeins séð eina rjúpu í allri ferðinni. Guðmundur fór austur að Grænalóni í haust og sá í þeirri ferð lítið af rjúpu. Hins vegar kvaðst hann hafa séð öm við Frostastaðavatn véra að gæða sér á álftarræfli. Kvaðst Guðm. aldrei hafa séð örn á þeim slóðum fyrr. Hafi þama sýnilega verið úm ungan örn að ræða. Guðmundur Jónasson sagðist að lokum verða að taka undir þau ummæli Tryggva bónda frá Miðdal hér í Visi fyrír skemmstu, að allt benti til að minna væri um rjúpu nú heldur en í fyrrahaust. ÍMœZL'ÆK

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.