Vísir - 21.10.1965, Blaðsíða 1
SAMGÖNGULAUSIR
Enn er stórflöð í Jökulsá á Sólheimasandi og ailar samgöngur rofnar við Skaftfellinga eins og
sakir standa. Vatnið er þó heldur í rénun, en ekki viðlit að hefja viðgerð nú. Vtur eru á leið-
inni austur að Jökulsá og eru væntanlegar þangað í kvöld. Bráðabirgðaviðgerð tekur ekki minna
en þrjá daga, þótt allt gangí að óskum, og verður þó mikið verk eftir.Ómögulegt er heldur að
segja tál um hve erfitt reynist að lyfta brúarsporðunum upp. (Ljósm. Vigfús Friðriksson).
VISIR
Stórkostlegar vega og
brúaskemmdir urðu af
völdum vatnavaxta á
Suður og Vesturlandi
síðustu dagana, en
einkum þó í fyrrinótt.
Ár og iækir fiæddu yfir
bakka sína ruddu skörð
í vegi og grófu undan
brúarstöplum. Annars
staðar féllu skriður yfir
vegi. Olli þetta víða sam
göngutruflunum, en
sums staðar eru sam-
göngur þó að komast í
eðlilegt horf aftur.
Miklu stórkostlegust urðu
vega og brúarspjöll hjá Jökulsá
á Sólheimasandi. Hljóp ofsaleg-
ur vöxtur í hana, einhver sá
mesti sem menn muna um ára-
tuga skeið. Braut áin sig vest-
ur fyrir brúna, gróf sig á nokkru
svæði gegnum veginn og jafn-
framt undan brúarstöplunum,
þeim vestustu, þannig að brúar-
sporðurinn féll niður í ána.
Viðgerð á þessum spjöllum
hefst þegar sjatna tekur á ánni,
en nú er ekki unnt að segja
hve langan tíma hún tekur..
Á meðan er ekki um aðra sam-
gönguleið að ræða milli Vestur-
Skaftafellssýslu og Suðurlands-
undirlendisins og Reykjavíkur,
en um Landmannaleið, en búast
má við að hún teppist líka þá
og þegar annað hvort vegna
bleytu og vatnavaxta eða þá
vegrta snjóa.
Snæbjöm Jónasson verkfræð-
ingur hjá Vegagerð ríkisins
sagði, að Múlakvísl myndi ein-
hvem usla hafa gert austan
Vikur og grafið undan brúar-
stöpli þannig að umferð um
brúna var talin ófær stórum
bílum. f morgun höfðu ekki
borizt fréttir þaðan að austan.
Um vestanvert landið urðu
vegaspjöll víða og ollu sam-
göngutruflunum. Einna mest
vestur í Dalasýslu. Þar féllu
skriður vfir þjóðveginn í Svína-
dal og er hann nú lokaður fyrir
allri umferð, Bæði Reykiadalsá
og Hörðudalsá flæddu yfir far-
vegi sína og yfjr vegina, þannig
að þeir urðu ófærir í gær. Vatns-
magn beggja ánna hefur sjatnað
/og í morgun komust stórir bílar
leiðar sinnar yfir Reykjadalsá
og þann vegarkafla sem hún
flæddi yfir.
Hvltá í Borgarfirði flæddi yfir
þjóðveginn skammt frá Ferju-
koti í gær og olli samgöngu-
truflunum um skeið. Þar hefur
vatnið fallið niður og samgöngur
eru komnar í eðlilegt horf.
Skriður féllu í Hvalfirði, í
Lundareykjadal og í Narfevrar-
hlíð í Álftafirði á Snæfellsnesi.
Á öllum þessum stöðum féllu
þær yfir vegi, en hafa verið
Framhald á bls 6
Keflavíkurvegurinn
opnaður á þriðjudag
Eins og Visir hefur áður
skýrt frá stóð til að hinn nýi
Keflavíkurvegur yrði opnaður
til umferðar á iaugardaginn. Eft
ir upplýsingum sem blaðið afl-
aði sér siðdegis í gær mun veg
urinn ekki opnaður fyrr en á
þriðjudaginn. Er ástæðan sú að
vegna rigninga og noks unda’í-
fama daga hafa lokafram-
kvæmdir við veginn tafizt. I-
kveikjan í vegtollsskúmum vlð
Straum í nótt mun engin áhrif
hafa á þá ákvörðun að opna
veginn á þriðjudaginn.
1 WWVWS/VS«/WV/W/WWWVS/VN^W\A/V\/WNA/WAAr
Vafalaust um íkveikju af
mannavöldum að ræða
sér þar ekki urmul eftir nema
undirstöðumar elnar. Enginn
veit um eldsupptök, en telja má
því sem næst öruggt að þar
hafj verið um íkveikju að ræða.
Samkvæmt úpplýsingum, sem
Vísir fékk hjá lögreglunni í
Hafnarfirði í morgun, hafði
maður nokkur komið þangað í
lögreglustöðina, kl. 0.55 eftir
miðnætti í nótt. Hafði hann þá
verið að koma sunnan af Suður-
nesjum og kvaðst hafa séð rautt
rakettuljós hjá Straumi. Fannst
manninum eitthvað, undarlegt
eða dularfullt við þetta og taldi
ástæðu til að skýra lögreglunni
frá því.
Tveir lögreglumenn voru
sendir samstundis suður að
Straumi til að vita hvort þeir
Frh. á bls. 6.
, Þeir taka ekki af manni tollinn í bráð“, sagði vörubílstjóri, sem ók fram hjá brunna tollskýlinu
við Suðurnesjaveginn nýja i morgun. Verkamennirnir, sem höfðu verið að puða við að byggja toll-
':ýlið og hraða því sem mest, norfðu með söknuði i brunarústimar, þar sem verkfærin þelrra
höfðu orðið eldinum að bráð. sagir, hamrar, sleggjur, borvél, heflar og hvaðeina. „Sjáðu oliubms-
ana þama“, sagði einn, „þeir vom ekkl þama, þegar við fórum héðan siðast". (Mynd: stgc)
Vegatollskýlið nýja í Straumi
brann til kaldra kola í nótt og
.
BLAÐIÐ í DAG
Bls. 3 Á norðfirzku síld-
arplani. Myndsjá.
— 7 Sjolokov nóbel-
skáld.
— 8 Trú og matur í
ísráel.
— 9 Hafnarminningar
Guðmundar Arn-
laugssonar rektors.
— 11 Monu-málinu
lokið.