Vísir - 10.05.1966, Blaðsíða 8

Vísir - 10.05.1966, Blaðsíða 8
a*» VÍSIR . Þriðjudagur 10. maí 1966. VÍSIR Utgefandi: BlaOaútgátan VISIK Ritstjðri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjðri: Axel Thorsteínson Fréttastjórar: Jönas Kristjánsson Þorsteinn Ó Thorarensen Auglýsingastj.: Halldðr Jðnsson Ritstjörn: Laugavegl 176 Sfmt 11660 (5 linur) Auglýsingar og afgreiðsla Túngðtu 7 Askriftargjald: kr. 90,00 ð mánuð) innanlands f lausasölu kr. 7.00 elntakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f Næstu fjögur ár Eftir tæpan hálfan mánuð ganga Reykvíkingar til borgarstjómarkosninga. Á kjördag verður út um það gert hverjir fara með stjóm Reykjavíkurborgar næstu fjögur árin. Verður það samhent sveit Sjálfstæðis- manna undir forystu þess manns, sem Reykvíkingar þegar þekkja og meta, Geirs Hallgrímssonar Eða verður það riðluð fylking minnihlutaflokkanna, með huldumann sem borgarstjóraefni? Það er ekki óeðli- legt að reykvískir kjósendur geri sér nokkra grein fyrir því upp á hvað minnihlutaflokkarnir bjóða við þessar kosningar. Hverjar horfur em á því að þeir muni veita samhenta og farsæla forystu í hagsmuna- málum borgarbúa? Em hinir litlu flokkar líklegri til stórræðanna, en sú stjórn er borgin hefur haft á und- anförnum árum? Lítum fyrst á Framsóknarflokkinn. Sá flokkur biðl- ar nú til Reykvíkinga og kveðst geta veitt borginni samhenta forystu. En hvemig er ástandið innan þessa flokks, sem ætíð vill láta kenna sig við dreifbýlið? Sjálfur er hann sundurklofinn og þar veður óeining- in uppi. Það kom í ljós á síðustu dögum þingsins þegar flokkurinn klofnaði rækilega tvisvar sinnum í mestu stórmálunum sem þingið afgreiddi. Hver höndin var þar upp á móti annarri og djúpstæð misklíð um stefn- una. Síðan ætlast Framsóknarflokkurinn til þess að Reykvíkingar sýni flokknum þann trúnað að kjósa hirðsveina Eysteins Jónssonar til forystu í borgarmál- um. Er þá skörin sannarlega farin að færast upp í bekkinn. Stefna Eysteins Jónssonar hefur hingað til verið stefnan gegn Reykjavík, gegn höfuðborginni. Það vita allir sem í Reykjavík búa og taka því varlega sendimönnum forystu Framsóknarflokksins, er svo ógn blíðlega mæla í eyru Reykvíkinga þessa dag- ana. Qg þá er það Alþýðubandalagið. Foringjar þess biðja Reykvíkinga að kjósa sig vegna þess að þeir muni veita borginni samhenta og farsæla stjóm. Halda þeir að Reykvíkingar hafi gleymt Öllum deilunum og hjaðningavígunum milli kommúnista, þjóðvamar- manna og Hannibalsmanna, sem staðið hafa leynt og ljóst undanfarin ár? Öll þessi mörgu flokksbrot hafa logað í illdeilum ámm saman og ekkert nema óttinn við kosningar varð til þess að þeir gátu barið saman listann. Eiga Reykvíkingar að treysta þessu deilugeri fyrir málum sínum næstu fjögur árin? Er líklegt að þar náist samstaða um framfaramálin? Svari hver fyrir sig. þessir tveir sundruðu flokkar mynda andstöðuna með Alþýðuflokknum, sem vitanlega má hvorki heyra þá né sjá af ótta við fylgistap. Þetta er liðið sem býðst til þess að taka að sér forsjá Reykvíkinga forystuna í borgarmálum. Það lið á bæði metnaðinn og viljann. En það á ekki það sem mest er um vert, traust íbúa Reykjavíkur. Nefnd Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Myndin er tekin í Flugtuminum á ReykjavikurflugveUi f.v.: Nannel Vaz frá Santa Marfa á Asoreyjum, Valdimar Ólafsson fulltrú! fsl. Fiugumferðarstjómarinnar, Wilson Comlck frá Gander, Nýfundalandi, Wllllam Bain, Prestwick f Skotlandi, Milton Schwartz frá New Yoric. Samræma f lugumf erðar- stjórn á Atlantshafi Nefnd Alþjóðaflugmálastofnunarinnar flaug héðan i morgun Nefnd sú sem hér hefur dval- izt undanfama daga á vegum ICAO, alþjóðaflugmáiástofnunar innar hélt utan í morgun. Nefnd þesi var skipuð af ICAO og eiga í henni sæti fulltrúar frá 5 flug umferðarmiðstöðum kringum Atlantshaf: New York, Prest- Wick, Cander, Reykjavík og Santa María á Asöreyjum. Verkefni nefndarinnar er að ferðast á milli þessara stöðva og fylgjast með flugumferðarstjóm tryggja það að allar stöðvamar starfi eins og gera tillögur til úrbóta, ef einhverju er ábóta- vant. Nefndin dvaldist hér 4 daga og fylgdist hér með flugumferð- arstjóm, þeir skoðuðu einnig stöðina í Gufunesi, sem annast fjarskiptaþjónustuna. Sagði Leifur Magnússon fram- kvæmdastjóri Flugörjrggisþjón- . ustunnar að nefndarmenn hefðu verið mjög ánægðir með dvöl sína hér. Erlendu gestimir hefðu undrazt það hve Flugumferðar stjómin hér væri vel búin tækj- um. Héðan fór nefndin til London, þar situr hún fund með fulltrú- um IATA á morgun en fulltrúar flugfélaganna eru skiljanlega fullir forvitni um störf nefndar- innar og þeim breytingum, sem hún kann að koma til leiðar, sér í lagi þegar haft er I huga að mesti annatími flugfélaganna fer í hönd. Frá London fer nefndin til Santa María á Asoreyjum og er það síöasti áfangi þeirra í 1. hringferð sinni milli áður- nefndra stöðva. Ráðgert er að nefndin fari slíkar ferðir einu sinni á ári. A ðalfundur Húseigendafé- lags Reykjavíkur Aðalfundur Húseigendafélags Reykjavikur var haldinn í Þjðð- leikhúskjallaranum 29. apríl s.l. Fundarstjóri var Páll S. Pálsson hrl., formaður félagsins. Framkvæmdastjóri félagsins, Þórður F. Ólafsson, flutti skýrslu um starfsemina á s.l. ári. Aðalstarfsemi félagsins var fólgin i rekstri skrifstofunnar að Grundarstíg 24, og hefir þeim fjölgað mikið, sem til skrifstofunnar leita, til að fá f ýmsar upplýsingar og lögfræði- legar leiðbeiningar. Flestar eru fyrirspumimar varðandi leigu- hiisnæði og sambýli í fjölbýlis- húsum. Mest er leitað til skrif- Istofunnar fyrst eftir áramót og í kringum fardaga. Eyðublöð fyrir húsaleigusamninga fást S skrifstofu félagsins og enn- fremur í Bókabúð Lárusar Blöndal á Skólavörðustíg. Auglýsingar vegná bruna- vama birti félagið í dagblöðun- um um jólaleytið, eins og áður. Stjóm félagsins sendi frá sér mótmæli vegna hækkaðra fast- eignaskatta, bæði í apríl og í október, þegar fmmvörp lágu fyrir Alþingi um þreföldun og siðar sexföldun fasteignamats til skattálagningar. Stjóm félagsins fór á fund félagsmálaráðherra og ræddi við hann um sexföldun fasteigna- matsins, iögin um hámark húsa- leigu, ennfremur um ný húsa- leigulög og fleira, sem þá var verið að ræða á Alþingi. Þá fór og nefnd á vegum stjómar fé- lagsins á fund fjármálaráðherra í janúar s.l. þeirra erinda að fá fymingu af húsum hækkaða, þannig að hún yrði reijcnuð af fasteignamati sexföldu, miðað við 4% fymingu af steinhúsum en 6% fyrningu af timburhús- um. Var þetta hugsað til að vega eitthvað upp á móti sexföldun- inni til eignarskatts. Um mörg undanfarin ár hefir stjóm Húseigendafélags Reykja- víkur beitt sér fyrir afnámi lag- anna um hámark húsaleigu, nr. 30 frá 1952. Lög þessi voru loks afnumin í desember s.l., og má þá segja, að merkum áfanga hafi verið náð. í janúar s.L festi félagið kaup á skrifstofuhúsnæði fyrir félags starfsemina á 1 .hæð í nýju húsi að Bergstaðastræti 11A, og verður skrifstofan flutt þangað í vor. Nokkrar umræður urðu um skýrslu stjómarinnar og vom menn sammála um nauðsyn þess að efla félagið, og láta það ná til sem flestra húseigenda í borginni. Stjóm Húseigendafélags Reykjavíkur er nú þannig skip- uð: Páll S. Pálsson, formaður, Leifur Sveinsson, ,Jón Guð- mundsson, Friðrik Þorsteinsson og Alfreð Guðmundsson. Vara- stjórn: Jens Guðbjörnsson, Ól- afur Jóhannesson og Óli M. ísaks son. Endurskoðendur voru kosnir Jónas Jósteinsson og Sigurður Hólmsteinn Jónsson, en til vara Guðmundur R. ól- afsson.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.